Skessuhorn - 21.08.2013, Page 9
9MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
F
A
S
TU
S
_E
_1
9.
08
.1
3
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00
Hakkavélin frá Sirman er alvöru
tæki sem afkastar 25kg/10mín.
Úrbeiningahnífarnir frá Granton
eru heldur ekkert lamb að leika
sér við.
Harðjaxlar í eldhúsið
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
ODORITE
ÖRVERUHREINSIR
MILDEX-Q
MYGLUEYÐIR
WIPE OUT
OFNA OG GRILLHREINSIR
NOVADAN
KLÓRTÖFLUR
- Í POTTINN
SEPT-O-AID
ÖRVERUR FYRIR ROTÞRÆR
HÁÞRÝSTIDÆLUR
ERTU Á LEIÐ Í BÚSTAÐINN
ÚRVALS VÖRUR FYRIR VIÐHALDIÐ OG VERKIN Í BÚSTAÐNUM.
KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
Akranesvöllur – Pepsi-deild karla
ÍA – Breiðablik
Fimmtudaginn 22. ágúst kl. 18.00
Allir á völlinn
Heildarafli íslenskra skipa í júlí-
mánuði síðastliðnum, metinn á
föstu verði, var 0,8% meiri en í júlí
2012. Það sem af er árinu veiddist
0,1% meiri afli en á sama tímabili
árið 2012, sé aflinn metinn á föstu
verði samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands. Aflinn nam sam-
tals 101.444 tonnum í júlí á þessu
ári. Botnfisksafli jókst um tæp 2.800
tonn frá júlí 2012 og nam tæpum
27.100 tonnum. Þar af var þorskafl-
inn tæp 13.200 tonn, sem er aukn-
ing um tæp 2.900 tonn frá fyrra ári.
Ýsuaflinn nam rúmum 1.700 tonn-
um sem er 295 tonnum minni afli
en í júlí 2012. Karfaaflinn nam tæp-
um 4.000 tonnum í júlí 2013 sem er
rúmlega 1.200 tonna meiri afli en í
fyrra. Rúm 5.000 tonn veiddust af
ufsa sem er 170 tonna aukning frá
júlí 2012. Afli uppsjávartegunda
nam rúmum 70.900 tonnum, sem
er rúmlega 14.400 tonnum minni
afli en í júlí 2012. Samdráttinn má
rekja til um 6.500 tonna minni síld-
arafla, sem nam 8.900 tonnum í júlí
2013, og rúmum 8.100 tonna minni
makrílafla, sem nam rúmum 61.800
tonnum í júlí 2013. Nær engar aðr-
ar uppsjávartegundir voru veiddar í
mánuðinum. mm
Sölufólk og gestir á Sveitamarkaði
í Nesi í Reykholtsdal áttu góðan
dag á laugardaginn. Sífellt fjölgar
sölufólki og úrvali af varningi sem
í boði er. Markaðurinn er haldinn
í gömlu hlöðunni í Nesi og kenndi
þar ýmissa grasa. Handverk, græn-
meti, sultur, skart, hunang og
smyrsl búin til úr íslenskum jurt-
um og margt fleira. Gestir fengu
sér svo kaffi í Sveitakaffi. Markað-
urinn nú líkt og tvisvar fyrr í sumar
var haldinn af Framfarafélagi Borg-
firðinga og staðarhöldurum í Nesi
og er vafalítið kominn til með að
vera því hann hefur notið vaxandi
vinsælda.
mm/ Ljósm. jsg
Góð aðsókn að
sveitamarkaði í Nesi
Afli íslenskra skipa nánast
jafn mikill og fyrir ári
Búið er að taka ákvörðun um að
gera við Magnús SH, skip Skarðs-
víkur ehf í Rifi, í skipasmíðastöð
Þ&E á Akranesi. Eins og kunnugt
er kom upp eldur í skipinu þegar
unnið var við lengingu þess og við-
gerðir 30. júlí síðastliðinn í Slippn-
um á Akranesi. Upptök brunans
eru rakin til rafmagnstækis í eld-
húsi. Tryggingamiðstöðin hefur
bókfært tjón vegna brunans upp
á 180 milljónir króna, en tjónið á
skipinu er þó mun meira. Það var
þó ekki dæmt ónýtt en óvissa var
um tíma um hvort gera ætti við það
eða ekki. Nú hefur verið ákveðið,
að sögn eiganda skipsins, að láta
gera skipið upp og verður verk-
ið unnið hjá Þorgeiri og Ellert hf.
á Akranesi. Skipta þarf m.a. um lít-
inn hluta af ytra byrði stjórnborðs-
megin, smíða nýja brú og endur-
innrétta allt í kringum brunasvæði í
skipinu. „Það verður klárað að gera
við skipið hjá Þ&E, enda er skip-
ið þar og erfitt að flytja það annað
í þessu ástandi. Þeir hjá Þ&E vinna
vel og það er búið að gera mik-
ið fyrir skipið. Það hefði verið afar
leiðinlegt að þurfa að henda þessu
öllu,“ sagði Sigurður Kristjónsson
skipstjóri og útgerðarmaður Magn-
úsar SH í samtali við Skessuhorn.
Samkvæmt tilboðinu um við-
gerðir á skipinu eiga lagfæringar
á Magnúsi SH að standa yfir í sex
mánuði og á báturinn að verða klár
til veiða í mars. Aðspurður hvort
mögulegt verði að ná að veiða kvóta
Magnúsar SH á þeim tíma sem þá
verður eftir af kvótaárinu, svaraði
Sigurður: „Já, við verðum að veiða
af krafti og taka alvöru stemningu
á þetta þegar skipið kemur úr við-
gerð.“
sko
Gert verður við Magnús
SH á Akranesi
Magnús SH stendur norðan við Slippinn á Akranesi. Nú verður hafist handa við
viðgerðir á ný eftir brunann. Ljósm. mm.