Skessuhorn - 21.08.2013, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
Sveitakeppni Golfsambands Íslands
fór fram um síðustu helgi. Í sveita-
keppninni keppa sveitir klúbbanna
í landinu sín í milli í holukeppni
en bestu kylfingar sérhvers klúbbs
skipa sveitirnar. Keppt er að jafn-
aði í holukeppni, en í neðstu deild-
um í hvorum flokki er keppnisfyr-
irkomulag höggleikur án forgjafar.
Alls sendu fimm golfklúbbar á Vest-
urlandi átta sveitir til leiks, fimm í
karlaflokki og þrjár í kvennaflokki,
og náðu nokkrar af þeim mjög góð-
um árangri.
Borgnesingar sigruðu
Sveit Golfklúbbs Borgarness sigr-
aði í 2. deild karla sem fram fór í
Vestmannaeyjum, en sveitin bar
sigurorð af sveit Golfklúbbsins
Leynis frá Akranesi í úrslitaleik
deildarinnar 3:2. Liðin höfðu áður
mæst í riðlakeppni deildarinn-
ar á föstudeginum þar sem Skaga-
menn höfðu betur 3:2. Með sigrin-
um tryggðu Borgnesingar sér þátt-
tökurétt í 1. deild að ári, en það
mun vera í fyrsta skipti sem GB á
sveit í efstu deild í sveitakeppninni.
Þrátt fyrir tap sitt munu Leyns-
menn fylgja grönnum sínum í
Borgarnesi upp í 1. deild en sveit-
in hafði fallið úr deildinni í fyrra.
Sveit Golfklúbbsins Jökuls frá
Ólafsvík keppti einnig í 2. deild en
hún hafnaði í 5. sæti.
Leyniskonur upp
um deild
Kvennasveit Leynis gerði gott mót
á Víkurvelli í Stykkishólmi þar sem
2. deild kvenna var spiluð og bar
sigur úr býtum. Leikfyrirkomulag
var 36 holu höggleikur án forgjaf-
ar þar sem fjögur bestu skor hverr-
ar sveitar á hring taldi. Skagakon-
ur léku á samtals á 731 höggi, sext-
án höggum betur en heimasveit
Golfklúbbsins Mostra sem lék á
747 höggum. Sveit Golfklúbbsins
Vestarr í Grundarfirði, sem einn-
ig lék í deildinni, hafnaði síðan í
fjórða sæti á 767 höggum. Sveitir
Leynis og Mostra munu því leika í
1. deild að ári, en þetta mun vera í
fyrsta skipti sem Mostri leikur í 1.
deild. Valdís Þóra Jónsdóttir í GL
lék best allra keppenda á mótinu og
gerði hún sé lítið fyrir og setti nýtt
vallarmet á Víkurvelli á föstudeg-
inum þegar hún lék á 71 höggi, eða
einu undir pari.
Vestarr hélt sæti sínu
Karlasveitir Vestarr og Mostra léku
í 3. deild sem fram fór á Grænanes-
velli á Neskaupsstað. Mostramenn
náðu ekki að sigra eina viðureign í
keppninni og urðu því að bíta í það
súra epli að falla niður í 4. deild.
Sveitin hafnaði í 8. sæti. Sveit Vest-
arr átti hins vegar betra gengi að
fagna og komst í undanúrslit eftir
riðlakeppni. Þar tapaði sveitin fyr-
ir sveit Golfklúbbs Akureyrar 3:0.
Í leik um þriðja sæti biðu Grund-
firðingar síðan lægri hlut gegn
sveit Golfklúbbs Ísafjarðar einnig
3:0. Fjórða sætið var því þeirra og
áframhaldandi þátttökuréttur í 3.
deild að ári.
hlh
Fundað var í stjórn Faxaflóahafna
í Ráðhúsinu í Borgarnesi á föstu-
daginn. Að fundi loknum heimsótti
stjórnin, ásamt helstu stjórnendum
Faxaflóahafna, Grímshúsið í Brák-
arey í Borgarnesi. Þar hélt stjórn
Grímshússfélagsins móttöku en eins
og Skessuhorn hefur áður greint frá
stendur félagið að endurbyggingu
þessarar fyrrum vöruskemmu út-
gerðarfélagsins Gríms hf. sem starf-
rækt var í Borgarnesi um miðja síð-
ustu öld. Að sögn Páls S. Brynjars-
sonar sveitarstjóra Borgarbyggð-
ar og stjórnarmanns í Faxaflóahöfn-
um var um hefðbundinn stjórnar-
fund að ræða en megintilgangur þess
að funda í Borgarnesi var að kynna
stjórnarmönnum hafnarsvæðið í
Borgarnesi, sem er í eigu Faxaflóa-
hafna, og þá uppbyggingu sem átt
hefur sér stað í nágrenni þess. Sig-
valdi Arason, formaður Grímshúss-
félagsins, kvaðst verulega ánægð-
ur með að fá Faxaflóahafnarmenn
í heimsókn. Hann segir að smiðir á
vegum félagsins séu að vinna af full-
um krafti í húsinu en gert er ráð fyr-
ir að nýju þaki verði komið á hús-
ið í þessari viku þegar ný límtrés-
sperra verður sett upp á milli út-
veggja hússins.
Ný smábátahöfn
á áætlun
Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa-
flóahafna var ánægður með heim-
sóknina þegar Skessuhorn ræddi við
hann og segir hann algjört grund-
vallaratriði að stjórnendur hafnar-
samlagsins fylgist grannt með því
hvernig landið liggur á hafnarsvæð-
um félagsins. Í áætlunum Faxaflóa-
hafna er gert ráð fyrir því að byggð
verði upp smábátahöfn í Borgarnesi
og hafi stjórnendur einnig verið að
kynna sér svæðið með þá uppbygg-
ingu í huga. Heimsóknin í Gríms-
húsið hafi verið fróðleg og ánægju-
legt hafi verið að kynnast uppbygg-
ingunni þar og ræða við forsvars-
menn Grímshússfélagsins. Vel hafi
verið tekið á móti fulltrúum Faxa-
flóahafna og segir Gísli að áhuga-
vert verði að fylgjast með framvindu
þessa framtaks heimamanna. hlh
Í byrjun september munu hjónin
Kristjana og Baltasar Zamper hefja
viðgerðir á listaverkunum í Flateyj-
arkirkju á Breiðafirði. Listaverkin
eru örlítið farin að láta á sjá enda
var kirkjan ekki nægilega vel upp-
hituð, einangruð eða rakaþétt þeg-
ar listaverkin voru máluð um 1990.
Kirkjan er nú vel einangruð, búið
að komast fyrir allan leka með við-
gerðum utandyra og þakjárnsskipt-
ingu sem Ólafur Gíslason úr Skál-
eyjum og fjölmargir velunnarar
Flateyjarkirkju stóðu svo að fyrir
fáeinum árum. Upphitun kirkjunn-
ar og loftskipti eru eftir það betri,
en það verk er í umsjón Þorgeirs
Kristóferssonar úr Bjargi.
mm/GS/ Ljósm. úr safni
Skessuhorns.
Viðgerðir á listaverkum
Flateyjarkirkju hefjast senn
Stjórn Faxaflóahafna fundaði í Borg-
arnesi og heimsótti Grímshúsið
Stjórn og stjórnendur Faxaflóahafna ásamt stjórn Grímshússfélagsins stilltu sér upp fyrir myndatöku í Grímshúsinu á
föstudaginn.
Leynismenn endurheimtuö sæti sitt í 1. deild. Efri röð f.v. Willy Blumenstein,
Þórður Emil Ólafsson, Kristvin Bjarnason, Alexander Högnason liðsstjóri. Neðri
röð f.v. Hannes Marinó Ellertsson, Stefán Orri Ólafsson, Ingi Fannar Eiríksson og
Hróðmar Halldórsson. Ljósm. Golfklúbbur Vestmannaeyja.
Góður árangur vestlenskra golfklúbba í Sveitakeppni GSÍ
Kvennasveit Leynis með sigurlaun sín. F.v. Þóranna Halldórsdóttir liðsstjóri, Pá-
lína Alfreðsdóttir, Friðmey Jónsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir, Hildur Magnúsdóttir,
Elín Dröfn Valsdóttir og María Sveinsdóttir. Ljósm. Eyþór Ben.
Sveit Golfklúbbs Borgarness, sigurvegar í 2. deild. Efri röð f.v. Ingvi Jens Árnason
formaður GB, Finnur Jónsson liðsstjóri, Jóhannes Ármannsson, Arnór Tumi
Finnsson, Haraldur Már Stefánsson, Rafn Stefán Rafnsson, Hlynur Þór Stefánsson.
Neðri röð f.v. Bjarki Pétursson, Hilmar Þór Hákonarson fulltrúi liðsstjóra og Jón
Örn Ómarsson. Ljósm. Golfklúbbur Vestmannaeyja.
Kvennasveit Mostra sem tryggði sér sæti í 1. deild að ári. F.v. Sara Jóhannsdóttir,
Hulda Mjöll Hallfreðsdóttir, Auður Kjartansdóttir, Elísabet Valdimarsdóttir, Helga
Björg Marteinsdóttir og Unnur Valdimarsdóttir. Ljósm. Eyþór Ben.