Skessuhorn


Skessuhorn - 21.08.2013, Side 16

Skessuhorn - 21.08.2013, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013 abc Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi verður settur á morg- un, fimmtudaginn 22. ágúst í 36. skipti. Sama dag verður nýnema- kynning og afhending stundataflna en kennsla samkvæmt stundatöflu hefst á föstudaginn. Að sögn Atla Harðarsonar skólameistara eru hátt í 570 nemendur skráðir í nám við skólann á haustönn sem er nokk- ur fækkun frá því í fyrra þegar 630 hófu nám á haustönn. Flestir nem- endur koma frá Akranesi en einnig koma nemendur frá öðrum byggð- arlögum Vesturlands og verða um 60 nemendur á heimavist skólans í haust. Nýnemar sem luku grunn- skóla í vor eru um 110 talsins og er það svipaður fjöldi og síðustu ár. „Skýringin á fækkun nemenda er sú að eldri nemendum fækkar milli ára. Vegna takmarkaðs fjárfram- lags til skólans þurfum við að for- gangsraða í innritun og njóta allir þeir sem eru 25 ára og yngri for- gangs fram yfir þá sem eldri eru. Því þurftum við að synja nokkr- um umsóknum eldri nemenda að þessu sinni þó svo að við vildum gjarnan taka við þeim. Umsóknum fækkaði líka aðeins milli ára,“ segir Atli en fjárframlög til skólans hafa dregist verulega saman frá banka- hruni 2008. „Segja má að skólinn sé rekinn með fjárframlagi sem er að raunvirði 75 prósent af því sem hann hafði í framlag fyrir hrun. Þetta takmarkar okkar starf.“ Flestir í bóknámi en færri í iðnnámi Flestir nemendur FVA stunda nám til stúdentsprófs, langflest- ir á félags- og náttúrufræðabraut. Þá fjölgar nemendum um helm- ing á starfsbraut. Aðsókn í iðnnám skólans dregst aftur á móti saman milli ára og eru einungis 20 nýnem- ar skráðir til iðnnáms á haustönn. Samtals eru um 150 nemendur sem stunda iðnnám við FVA, ýmist í húsasmíði, málmiðn eða rafvirkjun. „Innritun er með allra minnsta móti og veldur þessi staða okkur nokkr- um áhyggjum þar sem við getum hæglega tekið við fleiri nemendum í þessar greinar. Ástæðurnar fyrir þessu eru eflaust nokkrar og er ein sú helsta að mínu mati að æ færri nemendur kynnast iðn- og tækni- greinum af eigin raun á grunn- skólaaldri. Af þessum sökum virk- ar iðnnám framandi fyrir nemend- ur og því minni líkur að nemend- ur skrái sig í slíkt nám,“ segir Atli sem bendir einnig á að sú sérhæf- ing sem felst í iðnnámi virki fælandi fyrir ungt fólk sem vill halda fleiri möguleikum opnum hvað varð- ar frekara nám í framtíðinni. „Slík- ar aðstæður finna nemendur í bók- náminu. Raunin er hins vegar sú að iðnnám, sem er nám í háþróaðri tækni, býður upp á marga mögu- leika til frekara náms. Þessu þarf að koma betur á framfæri.“ Eftirspurn eftir námi með vinnu Atli segir að skólinn reyni með ýmsu móti að mæta þörfum eldri nemenda þrátt fyrir skert fjárfram- lög og er leitast við að bjóða upp á námsúrræði þar sem eftirspurnin er mest. „Skólinn býður upp á þrjár námsleiðir í þessu sambandi; húsa- smíða-, sjúkraliða- og vélvirkjanám með vinnu. Nokkur hópur nem- enda stundar nám á þessum náms- leiðum en kennt er í lotum á ýms- um tímum sem við sníðum að að- stæðum nemendahópsins. Kennsla í húsasmíði fer t.d. fram um helgar.“ Ýmsar nýjungar eru síðan í burðar- liðnum á vegum skólans. Atli seg- ir að í haust ætli skólinn í samstarfi við Símenntunarmiðstöð Vestur- lands að bjóða upp á undirbúnings- námskeið í ensku fyrir nemend- ur sem eru af erlendu bergi brotn- ir og hafa ekki fengið næga ensku- kennslu á grunnskólastigi. „Nám- skeiðið er hugsað sem undirbún- ingur fyrir fyrstu áfanga í ensku í framhaldsskóla auk náms í öðr- um áföngum. Kunnátta í ensku er ein af forsendum þess að nemend- ur geti stundað nám á framhalds- skóla- og háskólastigi. Eftirspurn hefur verið eftir slíkum undirbún- ingsáfanga hjá erlendum nemend- um sem hyggja á nám hjá okkur og viljum við með þessu koma til móts við þarfir þessa hóps.“ FVA á síð- an áfram aðkomu að Stóriðjuskóla Norðuráls á Grundartanga. hlh Skólahald við Menntaskóla Borgar- fjarðar í Borgarnesi hófst á þriðju- daginn með móttöku nýnema þar sem starfsfólk skólans bauð til morg- unverðar samkvæmt hefð. Kennsla hófst síðan í gær samkvæmt stunda- skrá en komandi skólaár er það sjö- unda í sögu MB. Að sögn Kolfinnu Jóhannesdóttur skólameistara eru um 160 nemendur skráðir í nám við skólann á haustönn og er nemenda- fjöldi á svipuðu róli og hefur ver- ið undanfarin ár. Flestir nemendur eru á félagsfræðabraut og náttúru- fræðibraut en einnig eru nemend- ur á framhaldsskólabraut, almennri braut með áherslu á tækninám og starfsbraut. „Þá bjóðum við upp á sérstakt kjörsvið fyrir nemendur á bóknámsbraut, íþróttasvið á báð- um brautum og búfræðisvið á nátt- úrufræðibraut í samstarfi við Land- búnaðarháskóla Íslands á Hvann- eyri. Núna er 21 nemandi á íþrótta- sviði og átta á búfræðisviði. Nem- endur á búfræðisviði ljúka námi sínu í bændadeild á Hvanneyri og eru sex nemendur sem hafa stundað nám við MB að taka fyrra árið sitt á Hvanneyri þetta skólaár,“ segir Kolfinna en nám til stúdentsprófs við skólann er þriggja ára nám. Líkt og í fyrra heldur skólinn úti nem- endagörðum og verða sjö nemend- ur í dvöl á görðunum á þessu skóla- ári í húsnæði farfuglaheimilisins við Borgarbraut í Borgarnesi og öðru húsnæði á vegum skólans í bænum. Mikilvægt að fólk stundi nám í heimabyggð Dreifnám er ein helsta nýjung- in í starfi MB að þessu sinni en námið er starfrækt í nýstofnaðri framhaldsdeild skólans í Búðar- dal. „Deildin var stofnuð í sumar og er dreifnámið samstarfsverkefni skólans og Dalabyggðar. Alls hafa átta nemendur skráð sig í námið og munu þeir stunda það að mestu leyti í framhaldsdeildinni sem er til húsa að Vesturbraut í Búðar- dal. Nemendurnir munu þó koma í námslotur í Borgarnes í nokkur skipti og dvelja á nemendagörð- um okkar meðan á lotunni stend- ur.“ Kennsla fer fram með aðstoð nútíma fjarskiptalausna og fylgjast nemendur með kennslustundum í tölvum sínum á staðnum. „Þetta er verkefni sem leggst afar vel í okkar að leysa og þróa með heimamönn- um í Dölum. Nútímasamskipta- lausnir bjóða upp á útfærslur sem þessar og það gerir fólki kleift að stunda nám í heimabyggð sem við teljum afar mikilvægt,“ bætir Kol- finna við. Umsjónarmaður fram- haldsdeildarinnar í Búðardal í vet- ur er Jenny Nilsson. Þriggja ára nám stenst kröfur Kolfinna segir rekstur Mennta- skóla Borgarfjarðar vera í góðu jafnvægi og hefur hann hæg- lega burði til þess að taka á móti fleiri nemendum. Flestir nemend- ur komi af Borgarfjarðarsvæðinu en einnig koma nokkrir nemend- ur frá nágrannasvæðum héraðsins á borð við Dalasýslu. „Þá höfum við alltaf haft hóp af eldri nemend- um í námi sem ýmist eru að hefja nám á framhaldsskólastigi eða eiga að baki einhverja áfanga. Augljóst er að þessir nemendur eru að hefja nám sökum nálægðar við skólann og það er ánægjulegt að sjá.“ Alls eru 24 starfsmenn við skólann og starfa þeir flestir við kennslu. „Við erum einn af fáum skólum á Ís- landi sem býður upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs. Skólinn hef- ur sýnt það að hann er vel sam- keppnishæfur við aðra skóla og hafa nemendur okkar sem hafa út- skrifast á liðnum árum staðið sig vel í háskóla, t.d. staðist inntöku- próf í læknisfræði og sjúkraþjálf- un, þrátt fyrir að vera ári yngri en venjan er. Okkar áherslur eiga því að ríma ágætlega við áherslur nú- verandi menntamálaráðherra sem vill stytta nám í framhaldsskólum landsins.“ hlh Glatt á hjalla í kennslustund í húsasmíði. F.v. Steinn Helgason, Jóhannes Helgason, Sigurgeir Sveinsson og Geir Harðarson. Ljósm. þá. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi Nemendum fækkar milli ára Atli Harðarson, skólameistari FVA. Frá nýnemadegi í FVA sl. haust. Ljósm. ah. Menntaskóli Borgarfjarðar Dreifnámið er helsta nýjungin Námsefnið rætt af áhuga í kennslustund. Kolfinna Jóhannesdóttir, skóla- meistari. Nemendur MB í verkefnavinnu.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.