Skessuhorn - 21.08.2013, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
abc
Ívar Orri Kristjánsson í Dölum
„Ég fór í Grunnskólann á Laugum
í Sælingsdal 1995. Ég man að ég
fékk rosalega fallega tösku og var
mjög ánægður með nýju grænu
kassatöskuna frá foreldrum mínum
en á henni voru myndir af dýrum.“
Einar Viðarsson á Akranesi
„Ég byrjaði í Brekkubæjarskóla árið
1978. Fyrsti skóladagurinn var í
kjallaranum undir íþróttarhúsinu
á Vesturgötu þar sem keilan er
núna og ég man að mér fannst
ógeðslega gaman að byrja í
skólanum. Ég man líka að öll borð
báru dýranöfn. Þó man ég ekki
við hvaða borð ég var, en ég man
að mér fannst mitt borð ekkert
sérstaklega töff og ég vildi vera á
einhverju öðru.“
Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir í
Borgarfirði
„Ég byrjaði í Kleppjárnsreykjaskóla
haustið 1964 þegar ég var níu ára.
Þetta var þá heimavistaskóli þar
sem maður var í viku í senn og viku
heima þótt maður ætti heima rétt
hjá. Ég man að við vorum fjórar
stelpur saman í herbergi á vistinni
og manni fannst þetta ekkert létt
og var ég því alltaf voða fegin
að komast aftur heim. Þetta var
fjölmennur bekkur og voru t.d.
fimm drengir sem hétu Jón. Ég man
að þegar kennarinn las upp nafnið
„Jón,“ svöruðu allir fimm í einum
kór: „Mættur“.“
Særún Gestsdóttir á Akranesi
„Ég byrjaði í Brekkubæjarskóla
haustið 1984. Ég gekk upp mikið
af stigum og það var mjög sérstakt
fyrir mig að upplifa að vera með
öllum þessum fjölda barna því ég
hafði aldrei farið í leiksskóla. Ég
hlakkaði svo mikið til að fara að
læra að ég var eiginlega bara alveg
dáleidd þennan fyrsta dag. Inga
Rún Garðarsdóttir var kennarinn
minn í 1. bekk og hún varð svo
líka meðkennarinn minn þegar ég
byrjaði aftur í skólanum í fyrra, þá
sem kennari.“ jsb
Vignir Sveinsson í Stykkishólmi
„Ég byrjaði í Grunnskólanum í
Stykkishólmi haustið 1966. Það
sem kemur fyrst upp í hugann
er að foreldrar mínir gáfu mér
íþróttatösku merkta Manchester
United og þar með byrjaði ég að
halda með því liði og geri enn í
dag. Ég man það líka að ég gekk í
skólann og gerði það hvern einasta
dag í 10 ár.“
Sigrún Sigurðardóttir í Ólafsvík
„Ég byrjaði í Grunnskólanum á
Hellissandi vorið 1963 þegar ég var
sjö ára gömul en þá fóru krakkar
í smá vorskóla áður en skólinn
byrjaði á haustin. Ég man að ég
var mjög spennt að byrja og að fá
nýja hluti fyrir skólann. Ég man að
það mátti aldrei fara inn í stofurnar
fyrr en komin var röð fyrir utan
og algjör þögn. Það var mikill agi
í skólanum og manni var kennt
að bera virðingu fyrir fullorðnum.
Skólastjórinn var til dæmis mjög
alvarlegur maður og var alltaf með
pípu í munninum.“
Fyrsti skóladagurinn rifjaður upp
Að mæta í skólann í fyrsta sinn er stór áfangi í lífi hvers manns. Gjarnan er
minnisstæður sá dagur sem fólk tók sín fyrstu skref inn á braut menntunnar.
Skessuhorn fékk nokkra Vestlendinga, á ýmsum aldri til segja frá því sem það mundi
frá sínum fyrsta skóladegi.
Kennsla er við það að hefjast í Há-
skólanum á Bifröst en allar náms-
brautir verða komnar á fullt skrið
þegar september gengur í garð.
Næstu þrjá laugardaga fara fram
árvissir nýnemadagar fyrir hvert
námsstig þar sem nýir nemendur
skólans eru boðnir velkomnir. Vil-
hjálmur Egilsson, nýráðinn rekt-
or skólans, segir að fleiri nemend-
ur séu að hefja nám á Bifröst en
verið hefur undanfarin ár. „Aukn-
ingin skýrist fyrst og fremst af því
að aðsókn í Háskólagáttina, aðfar-
arnámið, hefur stóraukist í kjölfar
þess að skólagjöld voru felld nið-
ur. Almennt er aðsókn í fjarnám-
ið þokkaleg en við höfum enn pláss
fyrir fleiri nemendur í staðnáminu
hér á Bifröst. Það er verkefni okk-
ar fyrir næsta vetur að laða fleiri að
í hið frábæra umhverfi í Norðurár-
dalnum,“ segir Vilhjálmur.
Nemendum fjölgar í heild nokk-
uð milli ára, bætir hann við og er
viðsnúningur í skólanum hvað það
varðar. „Við reiknum með hátt á
annað hundrað nemendum í stað-
nám hér á Bifröst en á fjórða hundr-
Nemendum fjölgar í haust í Háskólanum á Bifröst
að í fjarnámi, samtals um 600 nem-
endur. Vöxturinn er fyrst og fremst
í Háskólagáttinni þar sem nem-
endur verða væntanlega á annað
hundrað ýmist í staðnámi eða fjar-
námi. Að öðru leyti eru ekki mikl-
ar sviptingar í aðsókn eftir náms-
línum, nema helst að nýir nemend-
ur í meistaranámi í alþjóðaviðskipt-
um eru fleiri en verið hefur árum
saman.“
Vinnumarkaðsrann-
sóknir í burðarliðnum
Í viðtali við Skessuhorn í vor boðaði
Vilhjálmur að rannsóknir á vegum
skólans yrðu efldar og segir hann
nú að ýmis verkefni í þá veru séu
að fara af stað auk annarra nýjunga.
„Rannsóknastofnun atvinnulífsins á
Bifröst er að fara í gang í samstarfi
við Samtök atvinnulífsins svo dæmi
sé tekið. Við ætlum einnig að fara
af stað með rannsóknir á aðferða-
fræðinni við gerð kjarasamninga á
Íslandi í samanburði við nágranna-
löndin og ýmsar rannsóknir sem
tengjast vinnumarkaðnum. Vegna
undirbúnings að nýrri braut í mat-
vælarekstrarfræði, sem nú er haf-
inn, munum við eiga í samstarfi við
ýmsa aðila í atvinnulífinu, stofn-
anir og aðra skóla vegna námsins.
Við höfum strax fengið afar góð
viðbrögð frá fyrirtækjum yfir þau
áform en námið verður hluti af við-
skiptafræðinni við skólann,“ seg-
ir Vilhjálmur en stefnt er að því að
bjóða upp á námið næsta haust.
Auka tengsl
við atvinnulífið
Háskólinn hefur í sumar sinnt um-
sýslu með tilraunaverkefni um
hækkað menntunarstig í Norðvest-
urkjördæmi en því er stýrt af sér-
stakri verkefnisstjórn. „Á vegum
tilraunaverkefnisins hefur verið tal-
að við á fjórða hundrað starfsmenn
fyrirtækja og stofnana í kjördæminu.
Þar af hefur verið rætt við á ann-
að hundrað stjórnenda. Ennfremur
er viðamikil könnun í gangi með-
al þessa hóps. Það ræðst svo á næst-
unni hvort og hvaða verkefni fara
í gang í framhaldi af öflun þessara
upplýsinga. Við fengum síðan sér-
stakan styrk frá sóknaráætlun Vest-
urlands til að efla tengsl skóla og at-
vinnulífs. Á vegum þeirrar áætlun-
ar er að fara í gang sérstakt verkefni
um gerð rekstraráætlana fyrir lít-
il og meðalstór fyrirtæki en Lands-
bankinn og Arion banki hjálpa okk-
ur sérstaklega við það verkefni.“
Spennandi vetur
framundan
Smávægilegar breytingar hafa átt
sér stað á fasteignum Bifrastar að
undanförnu sem helst felast í til-
færslum innanhúss „Kaffihúsið hef-
ur nú verið flutt í hátíðarsalinn og
umgjörð hótelsins hefur verið bætt.
Margir eru sérstaklega ánægð-
ir með breytingarnar á kaffihúsinu
því að hátíðarsalurinn og Kringlan
eru svo sterkur þáttur í hefðinni og
menningunni hér á Bifröst.“
Vilhjálmur segist horfa björt-
um augum á þennan fyrsta vet-
ur sem rektor skólans og kveðst
spenntur fyrir starfinu framund-
an. „Skólastarfið hér er í sífelldri
þróun en engar afgerandi bylting-
ar verða næsta vetur. Fleiri nýmæli
í skólanum eru á döfinni og verða
þau kynnt eftir því sem málin þró-
ast betur áfram. Veturinn framund-
an er mjög spennandi og við vilj-
um tengjast atvinnulífinu betur og
rækta betur bakland skólans hér á
Vesturlandi og í Norðvesturkjör-
dæminu öllu.“
hlh
Námsefnið rætt á grasflötinni á skólasvæðinu.
Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst.
Frá kennslustund á Bifröst.