Skessuhorn - 21.08.2013, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2013
abc
Grundaskóli á Akranesi verður
settur í dag, miðvikudaginn 21.
ágúst og kennsla hefst samkvæmt
stundaskrá á morgun. Í skólann
eru skráðir í vetur 617 nemend-
ur og eru drengir í meirihluta, en í
fyrra voru nemendur rétt rúmlega
600. Starfsmenn eru tæplega 100,
kennarar 56 að skólastjórum með-
töldum og almennir starfsmenn um
40 í misstórum stöðugildum. Allir
kennarar eru með kennsluréttindi
á grunnskólastigi og margir hafa
einnig kennsluréttindi á fram-
haldsskólastigi. Nokkrir kennarar
eru í framhaldsnámi. Litlar breyt-
ingar verða á starfsmannahópnum
í vetur, að sögn Hrannar Ríkharðs-
dóttur skólastjóra.
Móðurskóli í
umferðarfræðslu
Grundaskóli er móðurskóli í um-
ferðarfræðslu og vinnur náið með
Umferðarstofu, sem nú tilheyr-
ir raunar Samgöngustofu. Á ung-
lingastiginu verður haldið áfram
að þróa breytta starfshætti í formi
verkefnabundins náms þvert á ár-
ganga fremur en kennslu ein-
stakra bekkjadeilda. Unnið verð-
ur með fjölbreyttar námsmatsað-
ferðir og leiðsagnarmat auk þess
sem nemendur meta sjálfa sig með
tilliti til námsins, að sögn Hrann-
ar. Á yngsta stiginu er einnig val-
ið að vinna frekar með árganga en
einstaka bekki. „Það er góð reynsla
af þessari leið og krakkarnir kynn-
ast fleirum en sínum bekkjarfé-
lögum. Miðstigið er svo þátttak-
andi í Comeníusar verkefni þar
sem áhersla er lögð á að kennar-
ar taki meiri ábyrgð á eigin end-
urmenntun,“ segir Hrönn skóla-
stjóri. „Við höldum áfram góðu
samstarfi við Brekkubæjarskóla
og tónlistarskólann um tónlistar-
val og verkefnið Ungir-Gamlir. Ég
vona einnig að framhald verði á
nemendaskiptum milli grunnskól-
anna sem byrjað var á síðastlið-
inn vetur og nemendur voru afar
ánægðir með. Það er mikilvægt að
auka samstarf á milli skólanna enn
frekar. Ég tel að við getum lært
hvert af öðru, mikill mannauður er
í skólunum hér á Akranesi,“ bætir
Hrönn við.
Samstarf í
verknámsgreinum
Grundaskóli verðum einnig í sam-
starfi við FVA um kennslu í verk-
námsgreinum og jafnan eru nokkr-
ir nemendur á unglingastigi í
framhaldsskólaáföngum í Verslun-
arskólanum. „Við höfum um árabil
átt frábært samstarf við þessa skóla.
Áfram verður haldið með nám-
skrárvinnuna og ný aðalnámskrá
mun hafa margvísleg áhrif á skóla-
starfið, ekki síst á námsmat. Verk-
efni eins og „uppeldi til ábyrgð-
ar“ er mikilvægur hluti skólastarfs-
ins, auk þess sem við leggjum allt-
af áherslu á Skólahreysti, stærð-
fræðikeppnina í FVA, upplestr-
arkeppnina og fleiri slík verkefni.
Brúum bilið verður á sínum stað,
samstarfsverkefni við leikskólana,“
segir Hrönn. Hún segir að nú sé
beðið eftir nýjum lausum kennslu-
stofum á lóð skólans og tilhlökkun
sé hjá starfsfólkinu til vetrarstarfs-
ins. „Í þróunarverkefni sem báð-
ir grunnskólarnir tóku þátt í fyrir
margt löngu var unnið út frá því
að gera góða skóla betri. Það er
enn markmið okkar og örugglega
sameiginlegt fyrir báða grunn-
skólana,“ sagði Hrönn Ríkharðs-
dóttir að endingu. þá
Skólastarf byrjar í Grunnskóla
Grundarfjarðar í dag, miðvikudag-
inn 21. ágúst. Nemendur við skól-
ann í vetur verða um 100, aðeins
færri en í fyrra þegar þeir voru 105.
Skólastjóri er Anna Bergsdóttir sem
hefur starfað við skólann í 16 ár og
aðstoðarskólastjóri er Helga Guð-
rún Guðjónsdóttir sem hóf störf
fyrir ári. Að sögn Önnu skólastjóra
verða litlar breytingar í starfs-
mannaliði á komandi vetri, nema
að því marki að starfsmenn koma
úr námsleyfi eða fæðingarorlofi og
aðrir fara í tímabundið leyfi í stað-
inn. Enginn nýr kennari var ráðinn
við skólann fyrir komandi skólaár.
Helstu áherslur í skólastarfi seg-
ir Anna vera fjölbreytta kennslu-
hætti, notkun upplýsingatækni og
spjaldtölva í skólastarfi, samvinn-
unámi og vendikennslu. „Vendi-
kennsla er þannig að kennari tek-
ur upp ákveðið innlegg, kafla eða
hluta af kennslu, sem nemandi get-
ur skoðað þegar honum hentar fyr-
ir kennslustund og glöggvað sig á
efninu. Þegar hann mætir í tíma
ætti efnið að liggja nokkuð ljóst fyr-
ir og næsta skref er að vinna úr því
með aðstoð kennara þegar þörf er
á,“ segir Anna.
Unnið verður áfram að innleið-
ingu á nýrri aðalnámskrá og mun sú
vinna standa yfir í vetur hjá kenn-
urum og stjórnendum. Breyttar
áherslur eru í kennslu valgreina og
reynt að auka framboðið þrátt fyrir
fáa nemendur. Grunnskóli Grund-
arfjarðar mun taka þátt í þriggja
ára verkefni sem styrkt verður af
RANNÍS um fartæki og/eða spjald-
tölvur og skólaþróun ásamt nokkr-
um öðrum skólum.
þá
„Undirbúning-
ur að skólabyrj-
un hefur gengið
vel. Allar stöð-
ur mannaðar og
voru það strax
í vor, margar
umsóknir bár-
ust um þær ör-
fáu stöður sem
lausar voru.
Þessi staða er
auðvitað lúxus-
vandamál hjá
skólum á lands-
byggðinni í dag. Sem betur fer er
þannig háttað hjá mörgum skólum
og er það vel,“ segir Gunnar Svan-
laugsson skólastjóri Grunnskólans í
Stykkishólmi.
Skólasetning verður í Stykkis-
hólmi fimmtudaginn 22. ágúst kl.
11. Þá hitta nemendur sína um-
sjónarkennara, fá stundatöflur sem
og aðrar upplýsingar um skólastarf-
ið. Kennsla hefst síðan samkvæmt
stundaskrá föstudaginn 23. ágúst.
Skráðir nemendur eru 145 og er
það svipaður fjöldi og síðasta skóla-
ár. „Því miður höfum við verið að
horfa á fækkun nemenda undanfar-
in ár, en eigum við ekki að vona að
sú þróun muni
snúast við með
tíð o g tíma,“
segir Gunn-
ar skólastjóri.
Við Grunnskól-
ann í Stykkis-
hólmi eru starf-
andi 23 kennar-
ar, auk 16 sem
sinna almenn-
um störfum,
það er skólalið-
ar og stuðnings-
fulltrúar. Skóla-
stjóri segir að í vetur verði mesti
þunginn í áframhaldandi vinnu
vegna innleiðingar aðalnámsskrár
og öllum þeim þáttum er þar koma
við sögu. „Við höfum endurnýjað
húsbúnað í mötuneytinu og svo er
líka unnið að viðhaldi húsnæðis ut-
andyra. Teikningar af nýrri skóla-
lóð og byggingum liggja fyrir og
vonum við að hafist verði handa
mjög bráðlega, en einhverjar tafir
hafa því miður orðið á verkinu. Við
hlökkum til skólastarfsins og vinnu-
dagar okkar gefa okkur tilefni til að
vera mjög bjartsýn á skemmtilegt
skólaár,“ segir Gunnar Svanlaugs-
son skólastjóri. þá/ Ljósm. eb.
Eldri nemendur Grundaskóla í gangbrautavörslu.
Grundaskóli á Akranesi
Verkefnabundið nám þróað þvert á árganga
Samsöngur á stóru morgunstundinni.
Fjör í frímínútum.
Grunnskólinn í Stykkishólmi
Góður undirbúningur
fyrir skemmtilegt skólaár
Frá árshátíð Grunnskólans í Stykkishólmi.
Yngri nemendur á góðri stund.
Grunnskóli Grundarfjarðar
Fjölbreyttum kennsluháttum beitt
Spjaldtölvurnar notaðar í kennslustund.
Spilað í frímínútum.