Skessuhorn


Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 18.09.2013, Blaðsíða 15
15MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013 Vilhjálmur Egilsson rektor Há- skólans á Bifröst og formað- ur verkefnisstjórnar tilraunverk- efnis í Norðvesturkjördæmis um hækkað menntunarstig kynnti fyrir fundarmönnum stöðuna í verkefninu og næstu skref í því. Að sögn Vilhjálms er framkvæmd könnunarinnar á lokastigi, búið sé að taka öll viðtöl en eftir eigi að ljúka úthringingum. Skessu- horn hefur áður sagt frá könn- unni en þátttakendur í henni eru stjórnendur og forsvarsmenn fyr- irtækja í kjördæminu auk íbúa á svæðinu. Þá hafa viðhorf íbúa af erlendu bergi brotnu verið sér- staklega könnuð í könnuninni. „Stóru línurnar liggja fyrir þó að könnuninni sé ekki lokið. Yfir heildina séð eru svarendur al- mennt mjög jákvæðir fyrir að- gerðum til þess að efla menntun í kjördæminu og er því stóra nið- urstaðan sú að mikil eftirspurn sé eftir þeim. Það veitir framhaldi átaksins byr í seglin,“ segir Vil- hjálmur sem segir niðurstöðuna koma þægilega á óvart. „Svarend- ur eru spenntir fyrir framhaldinu og eru því miklar vonir bundnar við það.“ Fjölþættar aðgerðir Meðal þess sem fram hefur kom- ið í könnuninni er að drjúg- ur meirihluti fyrirtækja á svæð- inu eru tilbúinn að fjárfesta í auk- inni menntun starfsmanna sinna auk þess sem þau virðast vilj- ug til þess að hækka laun þeirra starfsmanna sem myndu mennta sig frekar. Einnig kemur fram að þörf sé á samráðsvettvangi fyrir- tækja og menntastofnana í kjör- dæminu. Vilhjálmur telur brýnt að verkefninu verði haldið áfram á grunni þessara upplýsinga sem fram koma í könnuninni og sé ljóst að menntastofnanir og sí- menntunarmiðstöðvar þurfi að tengjast miklu betur við atvinnu- líf og fyrirtæki á svæðinu. „Meðal þeirra aðgerða sem við ætlum að leggja til er stofnun samráðsvett- vangs fræðsluaðila og atvinnulífs með aðkomu sveitarfélaganna, að sérstakir erindrekar átaksins verði ráðnir til starfa sem vinni mark- visst að því með fyrirtækjunum að þróun fræðslustefnu innan þeirra svo dæmi sé tekið og að kom- ið verði upp námsleið í náms- tækni hjá fræðslumiðstöðvum. Þá leggjum við til sérstakar aðgerð- ir vegna iðnmenntunar og heild- stæðar nálganir á öllum námsstig- um hvað varðar framboð á námi í þjónustu og matvælaiðnaði.“ Verkefnin útfærð á næstunni Að auki sé ríkur vilji að efla náms- tækifæri fyrir íbúa af erlend- um uppruna, meðal annars til að efla færni fólks í íslensku. „Með- al þess sem við erum að skoða er að koma á fót kennaranámskeið- um fyrir Pólverja, sem eru fjöl- mennasti hópurinn af íbúum af er- lendum uppruna á svæðinu. „Við höfum líka huga á að taka samstarf við pólskar menntastofnanir vegna sérhæfðra námskeiða,“ sagði Vil- hjálmur. Innan skamms verða til- lögur verkefnahópsins lagðar fyr- ir stýrihóp menntamálaráðuneyt- is sem ákveður síðan fyrir sitt leyti hvort hann sé tilbúinn að hleypa málinu áfram. „Við eigum þó enn eftir að útfæra verkefnin frekar sem við hyggjumst leggja til við stýrihópinn en það er verkefni næstu daga og vikna.“ hlh Eitt stærsta málið sem var til um- fjöllunar á aðalfundi SSV voru til- lögur starfshóps að nýju starfs- skipulagi samtakanna, en hópur- inn hafði verið skipaður í byrjun mars á þessu ári af stjórn samtak- anna. Markmið starfshópsins var að skoða rekstrarfyrirkomulag á skrif- stofu SSV og verkefnum samtak- anna og leggja til úrbætur ef þess væri þörf. Starfshópinn skipuðu þau Ólafur Sveinsson, forstöðu- maður atvinnuráðgjafar SSV, Ingi- björg Valdimarsdóttir varaformað- ur stjórnar SSV og Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna, sem leiddi vinnuna. Það var síðan Gísli sem kynnti tillögur hópsins á aðal- fundinum. Yfir það heila má segja að tillögur hópsins felist í að hag- ræða í rekstri SSV, einfalda og skýra ábyrgð á einstökum verkefnum sem eru á ábyrgð samtakanna, ná fram betri nýtingu starfsmanna og að tryggja betri yfirsýn stjórnenda og aðildarsveitarfélaga á starfseminni. Tilefnið þessara ráðagerða eru auk- in umsvif á vegum SSV sem hafa sérstaklega átt sér stað á allra síð- ustu árum, m.a. vegna yfirtöku samtakanna á ýmsum málaflokk- um. Nefna má sem dæmi að heild- arvelta verkefna sem SSV stend- ur að nemur nú um 900 milljónum króna á ári, en einungis þrjú sveit- arfélög í landshlutanum eru stærri að umfangi. Horft til Austurbrúar Róttækasta tillagan sem hópurinn leggur til snýr að því hvort bjóða eigi fleiri aðilum að samtökunum, svo sem fyrirtæki, stofnanir, skóla eða stéttarfélög, og stofna þannig vettvang álíkan Austurbrú á Aust- urlandi sem stofnað var til á síðasta ári. Tillöguna kallar starfshópurinn ,,Vesturbrú“ í samantekt sinni og leggur hann til að taka eigi sem fyr- irmynd það skipulag sem Austurbrú styðst við í dag, kjósi sveitarfélögin að þróa SSV í þá átt. Starfshópur- inn leggur þó einnig til að samtök- in verði rekin með óbreyttu aðild- arformi. Fleiri tillögur til breytinga voru einnig lagðar til sem hópur- inn leggur áherslu á að nái fram að ganga óháð því hvernig stjórn- skipulag og aðild að samtökun- um verði háttað. Snerta tillögurnar skipulag á bókhaldi og fjárreiðum samtakanna, ábyrgð á verkferlum, upplýsingastreymi og ýmsu öðru. Bókhald einfaldað Starfshópurinn leggur til að fjár- reiður SSV og undirstofnana verði færðar til bókar á einum miðlægum stað á skrifstofu SSV en með þessu telur hópurinn að ná ætti fram vissri hagkvæmni í rekstri og betri yfirsýn yfir stöðu mála. Að auki myndi ný skipan í þessum efnum auðvelda alla áætlanagerð hjá samtökunum. Í þeim verkefnum sem gert er ráð fyrir ráðningu starfsmanna, ýmist til lengri eða skemmri tíma, telur hópurinn að ákvörðun skuli verða tekin af stjórn SSV. Þá leggur hóp- urinn til að ákvarðanir nefnda sem hafa í för með sér útgjöld skuli í öllum tilvikum staðfesta á stjórn- arfundi til að tryggja að kostnaður falli innan fjárhagsáætlana og þess samnings sem til grundvallar ligg- ur um viðkomandi verkefni. Einn- ig skuli þóknanir vegna stjórnar- setu og setu í nefndum verða sam- kvæmt samþykktum aðalfundar. Starfshópurinn hvetur jafnframt til aukins upplýsingaflæðis í tillög- um sínum og nefnir í því sambandi að auka útsendingu fundargerða til sveitarstjórna og að framkvæmda- stjóri skuli senda frá sér saman- tekt um stöðu verkefna sem unnin eru hverju sinni. Ennfremur er lagt til að framkvæmd verði þjónustu- könnun meðal aðildarsveitarfélaga þar sem leitað verði eftir viðhorfum þeirra til þjónustu SSV og ábend- inga um það sem betur megi fara. Þá vill hópurinn að aðalfundur SSV fari fram í aprílmánuði, en sér- stakt málþing um ýmis hagsmuna- mál sveitarfélaganna, sem yrði öðr- um þræði stefnumótunarvettvang- ur, í staðinn haldið að hausti. Markaðsstofan og Menningarráð lögð niður Í samantekt sinni leggur hópur- inn fram drög að tveimur skipurit- um fyrir starfsemi SSV, annað fyr- ir Vesturbrú en hitt fyrir óbreytt aðildarform. Bæði skipuritin hafa í för með sér tilfærslur á verkefn- um og breytingar á formgerð sam- takanna eins og hún er í dag. Þann- ig er til dæmis lagt til í báðum út- færslum að Markaðsstofa Vestur- lands ehf. verði lögð niður í nú- verandi mynd og starfsemi hennar flutt undir atvinnuráðgjöf á skrif- stofu SSV. Rekstur Markaðsstof- unnar hefur ekki gengið vel og því eðlilegra að mynda frekar samráðs- vettvang undir atvinnuráðgjöfinni með aðild fagaðila í sérstakri mark- aðsnefnd. Þannig náist hagræð- ing að mati starfshópsins auk þess sem tengsl við fagaðila í greininni myndu viðhaldast. Verkefni vegna menningarsamnings við ríkisvaldið, sem hingað til hafa verið á forræði Menningarráðs Vesturlands, mælir hópurinn með að verði færð undir skrifstofu SSV og að stöðugildi sem sinnti verkefninu verði lagt nið- ur. Hópurinn leggur til að úthlut- un fjár yrði falin sveitarfélögunum á grundvelli samkomulags sem yrði byggt á hlutfallsskiptingu. Tekið skal fram að núgildandi menning- arsamningur rennur út á þessu ári og er óljóst hvort hann, eða Vaxtar- samningur Vesturlands sem einnig rennur út í árslok, verði endurnýj- aður, en fyrri ríkisstjórn hafði boð- Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst og formaður verkefnisstjórnar. Fyrirtæki eru jákvæð fyrir menntunarátaki Tvær grundvallartillögur lagðar fram um breytt skipulag SSV að að samningarnir yrðu færðir á vettvang sóknaráætlunar. Landshlutasamtökin verði skilgreind Í máli Gísla á aðalfundinum kom fram að ljóst sé að koma þurfi vissum skikk á form og tilgang SSV, líkt og hjá öðrum landshlutasamtökum í land- inu, sem hafi vaxið töluvert á allra síð- ustu árum. Ástæðurnar fyrir þessum vexti eru ýmsar. Til dæmis vilji sveit- arfélaganna til að leysa sameiginleg verkefni á samvinnugrundvelli inn- an landshlutanna og jafnvel áhuga- leysi þeirra til að sameinast. Þá segir í samantekt starfshópsins að ríkisvaldið hefur í auknum mæli sett verkefni yfir á landshlutasamtökin í stað þess að leita til sveitarfélaganna sjálfra. ,,Án vafa er þetta gert í hagræðingarskyni fyrir ríkið, sem þarf þá aðeins að hafa samband við þau átta landshlutasam- tök sem heimilt er að starfrækja.“ Á það er hins vegar bent af starfshópn- um að löggjafinn þurfi að skýra bet- ur hlutverk landshlutasamtakanna í sveitarstjórnarlögum, ekki síst til þess að skýra hvaða verkefni þau mega taka að sér og hvaða verkefni ekki, hvers konar rekstrarform megi vera á þeim og hve umfangsmikil ábyrgð sveitar- félaga á starfsemi þeirra er. Ákvörðun tekin í október Á aðalfundinum var ekki tekin ákvörðun um hvaða leiðir skuli fara í skipulagsbreytingunum en þess í stað var tillögum starfshópsins vís- að til annars starfshóps sem kem- ur til með að móta endanlegar til- lögur fyrir framhaldsaðalfund SSV í október. Hópurinn mun starfa und- ir stjórn Páls S. Brynjarssonar sveit- arstjóra Borgarbyggðar, en í honum munu sitja oddvitar og framkvæmda- stjórar sveitarfélaganna í landshlutan- um. Í vinnu sinni mun hópurinn, auk skýrslu Gísla-hópsins, styðjast við at- hugsemdir sem borist hafa frá sveit- arstjórnum í landshlutanum um mál- ið. hlh Gísli Gíslason leiddi vinnu starfshópsins sem vann tillögur að nýju starfsskipulagi SSV.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.