Skessuhorn - 18.09.2013, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2013
Náðir þú þér í hvalkjöt
um daginn?
Þórhalla Baldursdóttir
Nei, ég gerði það ekki.
Arnar Laxdal
Nokkra bita já.
Gunnar Helgi Baldursson
Já, ég náði í kjöt.
Heiðar Magnússon
Nei ég fór ekki.
Spurning
vikunnar
(Spurt í Ólafsvík)
Sigurgeir Freyr Pálmason
Ég gerði það reyndar ekki, því
ég var of seinn á svæðið.
Íþróttadagur fjölskyldunnar var
haldinn í Íþróttahúsi Snæfellsbæj-
ar í Ólafsvík síðastliðinn fimmtu-
dag. Þar með hefst formlega að
hausti íþróttastarf Víkings/Reyn-
is. Fjölmenni var saman komið í
íþróttahúsið af þessu tilefni. Þjálf-
arar voru á staðnum til að kynna
starf vetrarins. Í vetur verður boð-
ið upp á fótbolta, fimleika, sund og
þá nýbreytni að hefja æfingar fyrir
Skólahreysti. Einnig verður hald-
ið námskeið í karate, fyrir þá sem
hafa áhuga, en það verður kynnt
síðar.
af
Lið landsbyggðarinnar í golfi bar
sigurorð af liði höfuðborgarinn-
ar í KPMG Bikarnum sem fram
fór á Hólmsvelli í Leiru 12. – 14.
september. Þetta er í fimmta skipti
sem keppnin er haldin. Keppt var í
holukeppni og sigruðu landsbyggð-
armenn nokkuð örugglega með
18,5 vinningum gegn 5,5. Meðfram
keppninni fór fram áheitagolf sem
er nýjung en að þessu sinni söfnuðu
kylfingarnir áheitum fyrir Ljós-
ið; endurhæfingar- og stuðnings-
miðstöð. KPMG lagði 20.000 kr á
hvert högg sem endaði á 16. flöt í
keppninni og söfnuðust 540 þús-
und krónur sem renna óskiptar til
Ljóssins.
Tveir Vestlendingar voru í sig-
ursveit landsbyggðarliðsins, þau
Bjarki Pétursson Golfklúbbi Borg-
arness og Valdís Þóra Jónsdóttir
Golfklúbbnum Leyni Akranesi.
hlh
Golfklúbbarnir Vestarr í Grund-
arfirði og Mostri í Stykkishólmi
hafa í yfir tíu ár háð holukeppni
sín á milli vor og haust, sem gjarn-
an er kölluð „Ryderinn“ eftir sam-
nefndri stórkeppni í golfi úti í
heimi. Tímabilið byrjar og end-
ar hjá klúbbunum með keppninni
og í vertíðarlok grilla klúbbfélag-
ar þeirra saman. Seinni hluti Ry-
derkeppninnar fór fram á golfvell-
inum við Suður-Bár í Grundar-
firði sl. laugardag. „Mostramenn
unnu með sex vinningum í vor
og héldu því forskoti í keppninni
núna, þar sem jafnt var í mótinu á
laugardaginn. Skemmtileg stemn-
ing er í þessum keppnum og góð
samskipti á milli klúbbanna,“ sagði
Dagbjartur Harðarson formað-
ur Vestarr í Grundarfirði í samtali
við Skessuhorn. Um 40 kylfingar
tóku þátt í mótinu að þessu sinni
og fór það fram við ágætar að-
stæður. Dagbjartur segir að golf-
áhugi sé talsverður í Grundarfirði.
Félagsmenn í Vestarr eru um 120
og þar af er á fimmta tug kvenna í
klúbbnum. Létu þær ekki sitt eft-
ir liggja í að taka vel á móti gesta-
klúbbnum á laugardaginn.
þá/ Ljósm. sk.
Karlalið Snæfells átti ekki í vand-
ræðum með lið ÍR þegar liðin
mættust í Stykkishólmi í þriðju um-
ferð Lengjubikars karla í körfubolta
sl. þriðjudagskvöld. Lokatölur urðu
97:72 og hafa Hólmarar þar með
styrkt stöðu sína á toppi D-riðils
bikarsins með sex stig. Heldur jafnt
var með liðunum í byrjun leiks og
skiptust þau á um að hafa forystu
í fyrsta leikhlutanum sem gestirn-
ir leiddu með einu stigi að honum
loknum, 21:22. Áfram var jafnfræði
með liðunum í öðrum leikhluta en
þegar leið á hann sigu Snæfelling-
ar nokkrum stigum framúr með
góðum leik og leiddu að endingu í
hálfleik með sjö stigum, 45:38. Síð-
ari hálfleikur var hins vegar eign
heimamanna sem réðu lögum og
lofum á báðum helmingum vallar-
ins. Forskot þeirra var komið í 20
stig að afloknum þriðja leikhluta
og varð lokaleikhlutinn einungis
formsatriði fyrir liðið klára.
Sigurður Þorvaldsson var stiga-
hæstur í liði Snæfells með 23 stig,
en á eftir honum kom Bandaríkja-
maðurinn Zachary Jamarco Warren
með 20 stig. Aðrir sem skoruðu fyr-
ir Snæfell í leiknum voru Jón Ólafur
Jónsson, sem skoraði 13 stig, Stef-
án Karl Torfason, einnig með 13,
Kristján Andrésson með 10, Sveinn
Davíðsson 7, Finnur A. Magnússon
4 og 12 fráköst að auki, Þorbergur
Sæþórsson 3, Snjólfur Björnsson 2
og Viktor Alexandersson 2.
Snæfell mætti KR í gærkvöldi í
Stykkishólmi og lágu úrslit ekki fyr-
ir áður en blaðið fór í prentun.
hlh
S k a l l a g r í m s m e n n
þurftu að lúta í lægra
haldi gegn öflugu liði
Stjörnunnar á úti-
velli í Garðabæ sl. mið-
vikudag, þegar liðin mættust í
þriðju umferð C-riðils Lengjubik-
ars karla í körfubolta. Stjörnumenn
voru mun öflugri en Borgnesing-
ar í leiknum og leiddu hann nán-
ast allan tímann. Helst var jafnræði
með liðunum í fyrsta leikhluta,
sem heimamenn þó leiddu að hon-
um loknum 29:18. Staðan í hálfleik
var síðan 57:41 fyrir heimamenn.
Hvorki gekk né rak hjá Borgnes-
ingum í seinni hálfleik að minnka
muninn og urðu lokatölur 94:77
fyrir Garðbæinga.
Nýjasti leikmaður Skallagríms,
Grétar Ingi Erlendsson, var stiga-
hæstur í liði Skallagríms ásamt
Davíð Ásgeirssyni, en þeir skor-
uðu báðir 13 stig. Einnig tók Grét-
ar 10 fráköst. Næstir komu þeir
Egill Egilsson og Sigurður Þór-
arinsson með 10 stig hvor. Á eftir
þeim komu Valur Sigurðsson með
9 stig, Davíð Guðmundsson með
8, Orri Jónsson og Trausti Eiríks-
son með 6 hvor og Kristján Ingi
Ómarsson með 2. Með sigrinum
komst Stjarnan fram fyrir Skalla-
grím í C-riðli og voru Borgnes-
ingar fyrir leik sem fara átti fram í
gærkvöldi, þriðjudag, í öðru sæti á
meðan Garðbæingar vermdu topp-
sætið. Skallagrímur spilaði í gær
gegn Hamri í Borgarnesi. Leiknum
var ekki lokið þegar Skessuhorn var
sent í prentun.
hlh
Svipmynd frá fjölskyldudeginum.
Íþróttadagur fjölskyld-
unnar í Snæfellsbæ
Tap hjá Borgnesingum
í Garðabæ
Lið Snæfells stillti sér upp til myndatöku eftir leikinn. Ljósm. Sumarliði Ásgeirs.
Öruggt hjá Snæfelli gegn ÍR
Sigurreifir Mostrafélagar.
Mostri vann
„Ryderinn“ þetta árið
Þátttakendur á mótinu.
Lið landsbyggðarinnar fagnar sigri sínum á 18. flötinni í Leirunni. Ljósm. Golfsam-
band Íslands.
Landsbyggðin sigraði
höfuðborgina