Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2013, Page 16

Skessuhorn - 04.12.2013, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013 Berglind Gunnarsdóttir, starfs- maður í Garðakaffi á Akranesi, hefur ákveðið að standa fyrir svo- kölluðum prjónakaffi-kvöldum á kaffihúsinu. Þangað eru allir vel- komnir og hvattir til að koma með prjónana sína eða hvaða handa- vinnu sem er. „Við ætlum að hitt- ast og spjalla. Hægt verður að fá sér kaffi og köku, sitja og hafa það kósý saman. Kaka dagsins verð- ur á tilboði. Það er um að gera að mæta með handavinnuna sína með sér,“ segir Berglind. Hún prjónar sjálf og segist hafa vitað af alls kyns handavinnuklúbbum sem eru í gangi. Hún nefnir að margar stelp- ur séu að byrja að prjóna en hafi litla aðstoð. „Mömmur og ömm- ur búa kannski ekki á svæðinu. Þær vilja jafnvel ekki ónáða fólk með heimsóknum, finnst þær vera með átroðning ef þær eru að biðja um hjálp. Þess vegna fannst mér sniðugt að halda þessi kvöld. Þá geta þær sem eru nýbyrjaðar feng- ið hjálp frá þeim sem eru reynd- ari. Auk þess langaði mig að auka starfsemina hérna í Garðakaffi. Það gæti verið gaman að vera hér með virkan hóp.“ Berglind bæt- ir því við að ef aðsókn verður góð og vel gengur er möguleiki á fyr- irlestrum og kynningum á vörum tengdum handavinnu. „Við ætlum að hafa þetta næst fimmtudaginn 5. desember frá klukkan 19:30 til 22. Við erum búnar að hittast einu sinni og ég vil endilega halda þessu áfram. Hugs- unin er að hafa þetta tvisvar í mán- uði, fyrsta og þriðja fimmtudags- kvöld í hverjum mánuði. Við verð- um þó bara með eitt kvöld í des- ember og sleppum seinni dagsetn- ingunni. Þá er svo stutt til jóla og allir hafa nóg annað að gera.“ Að lokum vill Berglind hvetja alla sem hafa áhuga á prjónaskap eða ann- arri handavinnu að kíkja í Garða- kaffi á prjónakvöld. „Bara koma og eiga notalega stund, skemmta sér og hlæja. Handavinnufólk er nefnilega mjög skemmtilegt,“ seg- ir Berglind Gunnarsdóttir prjóna- kona að lokum. grþ Sveitarstjórn Borgarbyggðar ákvað á fundi sínum í síðustu viku að ráða Signýju Óskarsdóttur sem nýjan skólastjóra Grunnskólans í Borgarnesi. Signý kemur til starfa í grunnskólann frá Háskólanum á Bifröst þar sem hún hefur starfað og stundað nám á liðnum árum, nú síðast sem framkvæmdastjóri kennslu og þjónustu. Ráðning hennar markar tímamót í sögu grunnskólans þar sem hún verð- ur fyrsta konan til að stýra honum frá upphafi. Skessuhorn setti sig í samband við Signýju og ræddi við hana um nýja starfið og skólann sem hún segir vera á tímamótum og eiga mörg sóknartækifæri. Rætur liggja víða Blaðamaður hitti Signýju á heim- ili hennar að Helgugötu 13 í Borgarnesi sem svo skemmtilega vill til að var heimili skólastjóra- hjónanna Guðmundar Sigurðs- sonar og Hildar Þorsteinsdótt- ur í marga áratugi. Guðmundur stýrði skólanum í 20 ár en húsið er við hlið grunnskólans. Signý, sem er 41 árs, kveðst vera uppal- inn Akureyringur þó hún viður- kenni að sér finnist erfitt að festa rætur sínar við eitt byggðarlag. „Ég er fædd á Siglufirði en flutti fljótlega til Akureyrar ásamt fjöl- skyldu minni þar sem ég ólst upp. Síðan lá leið mín í Hveragerði þar sem ég bjó sem unglingur.“ Skömmu eftir stúdentspróf fór hún til Ítalíu í tungumálanám og síðan lá leiðin út á vinnumarkað- inn. Hún á sterkar rætur á Djúpa- vogi þar sem hún bjó í mörg ár, stundaði nám við Kennaraháskól- ann og starfaði m.a. sem kenn- ari við grunnskóla bæjarins í sex ár. Einnig starfaði hún í afleys- ingum sem sveitarstjóri Djúpa- vogshrepps og framkvæmdastjóri heilsugæslunnar á Djúpavogi og Breiðdalsvík. Skólinn á Bifröst mikilvægur Signý söðlaði um árið 2004 og flutti þvert yfir landið í Borgar- fjörðinn þar sem hún hóf nám við Háskólann á Bifröst. Í Borgarfirði hefur hún síðan verið búsett allar götur síðan. „Ég fann mikla þörf fyrir að breyta til á þessum tíma og hélt beinustu leið á Bifröst. Ég hóf nám í viðskiptafræði en færði mig yfir í HHS (heimspeki, hagfræði, stjórnmálafræði) sem ég lauk árið 2007. Á Bifröst var vel tekið á móti mér og námið uppfyllti sannarlega væntingar mínar. Það er gaman að horfa til baka og minnast þess að ég kom einstæð með tvö börn í nám og ákvað að láta reyna á þetta í eina önn. En skólaumhverfið var þægilegt og nemendahópurinn fjölbreyttur. Ég er viss um að það hefði verið erfiðara fyrir mig að fóta mig í námi sem einstæð móðir í höfuðborginni, fyrir utan þá stað- reynd að ég hefði ekki getað stund- að sama nám þar og ég gerði á Bif- röst,“ segir Signý. „Við þurfum að varðveita fjölbreytnina í háskóla- umhverfi okkar þrátt fyrir kreppu- ástandið og gera okkur grein fyrir samfélagslegu hlutverki skólanna. Fórnarkostnaðurinn getur verið of mikill á móti óskýrum ávinningi með sameiningu stofnana.“ Stýrði kennslumálum á Bifröst Eftir að hafa klárað nám í HHS Berglind Gunnarsdóttir á kafi í bakstri. Í Garðakaffi eru allar kökur bakaðar á staðnum. Hægt verður að gæða sér á nýbakaðri köku á prjónakvöldunum. Koma saman með prjónana í Garðakaffi Er bjartsýn fyrir hönd Grunnskólans í Borgarnesi -segir Signý Óskarsdóttir nýráðinn skólastjóri grunnskólans fór Signý í kennsluréttindanám í Háskólanum í Reykjavík og hefur réttindi sem grunn- og framhalds- skólakennari. Í kjölfarið stund- aði hún MA nám í menningar- stjórnun frá Háskólanum á Bif- röst sem hún útskrifaðist úr í fyrra. „Ég byrjaði að vinna fyrir Háskól- ann á Bifröst rétt áður en ég út- skrifaðist úr grunnnáminu og hélt áfram að vinna fyrir skólann meðfram kennsluréttindanáminu og meistaranáminu. Fyrst starf- aði ég sem umsjónarmaður fjar- náms í viðskiptadeild skólans árið 2007 og störf mín þróuðust síðan á þann veg að ég varð gæðastjóri og kennsluráðgjafi og nú síðast fram- kvæmdastjóri kennslu og þjónustu. Meðal þeirra verkefna sem ég hef sinnt með mjög hæfileikaríku sam- starfsfólki var að stýra samstarfi við aðra háskóla um kennslu í sýndar- heimum, kynna nýjungar í kennslu- háttum, aðstoða kennara við inn- leiðingu hæfniviðmiða í námskeið og námskrár skólans og almenn mannauðsstjórnun svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún og telur reynslu sína frá Bifröst vera gott veganesti í starf skólastjóra Grunnskólans í Borgarnesi. Góður grunnur Samtalinu víkur þá að grunnskól- anum. Signý segist hlakka veru- lega til að setjast í stól skóla- stjóra og segir hún starfið leggj- ast einkar vel í sig. Fyrr um dag- inn sem blaðamaður Skessuhorns hitti hana hafði hún einmitt heim- sótt skólann og kynnt sig þar fyrir starfsfólki og nemendum. „Það var ánægjulegt að koma í skólann og það var vel tekið á móti mér. Mér líst mjög vel á skólann og ég veit að hann byggir á góðum grunni, enda er þar að finna fjölbreyttan mann- auð sem hefur á að skipa hæfileika- ríku og reynslumiklu fólki. Sjálf hef ég upplifað faglegt starf skólans á mjög jákvæðan hátt sem foreldri og er því afar bjartsýn á framhaldið fyrir hans hönd. Ég vil byggja ofan á þennan grunn.“ Víðtækur stuðningur við uppbyggingu Skólann segir hún vitaskuld á tíma- mótum og muni hún setja gott samstarf á oddinn í því uppbygg- ingarstarfi sem framundan er. „Ég vil stuðla að öflugum og góðum tengslum á milli skólans, foreldra og sveitarfélagsins og ekki síst við nemendur. Gamla máltækið sem segir að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn á því enn vel við,“ seg- ir Signý sem finnur sterkan vilja hjá öllum aðilum í skólaumhverfinu til að taka þátt í uppbyggingunni framundan. „Ég finn fyrir miklum áhuga og stuðningi frá sveitarfé- laginu til að styrkja innviði skólans, hvort sem það felst í endurnýjun á starfsaðstöðu eða eflingu á faglegu starfi. Það þarf að nýta vel tæki- færi sem bjóðast í gegnum hugsan- leg samstarfsverkefni og ýta undir virka og skapandi hugsun. Grunn- skólinn er yfir 300 manna samfé- lag kennara og nemenda sem koma saman á hverjum degi og takast á við verkefni dagsins í blíðu og stríðu. Þar á öllum að líða vel og því er það verkefni okkar allra að vinna saman að því.“ Skólinn ekkert eyland Að hennar mati á skólinn að hugsa stórt og leitast við að vera í farar- broddi í þróun kennsluhátta og vera þannig óhræddur við að takast á við nýjar áskoranir. „Ég hef tölu- verðan áhuga á því að opna skólann meira og gera starf hans sýnilegra með ýmsum hætti. Ég vil einn- ig efla tengslin við hina skólana í Borgarbyggð og öðrum sveitarfé- lögum. Það eru mörg tækifæri að finna fyrir skólasamfélagið í Borg- arbyggð. Skóli á ekki að vera neitt eyland heldur virk og öflug eining í samfélagsheildinni.“ Signý býst við því að hefja störf strax eftir áramótin og mun mæta til starfa full eldmóðs og bjartsýni. „Ég tel mig vera bjartsýna, lausna- miðaða og kærleiksríka manneskju að eðlisfari og hef trú á því að þau verkefni sem ég tek mér fyrir hend- ur leysist farsællega. Minn stjórn- unarstíll byggist á þeirri trú að til þess að leiða samstarfsfólk að sett- um markmiðum þarf að gefa því tækifæri til þess að taka þátt í virkri sköpun starfsumhverfisins og tæki- færi til að eflast faglega í starfi. Það mun ég hafa að leiðarljósi sem skólastjóri Grunnskólans í Borg- arnesi.“ hlh Signý Óskarsdóttir, nýráðinn skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.