Skessuhorn - 04.12.2013, Side 26
26 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Aðventan hefst á
Vesturlandi
Rótarýklúbbur Borgarness
hyggst í annað sinn efna til at-
vinnusýningar í Borgarnesi.
Rótarýmenn héldu atvinnusýn-
ingu í febrúar 2012 í Hjálma-
kletti sem tókst vonum fram-
ar. Þar kynntu 49 fyrirtæki í
Borgar byggð og nágrenni starf-
semi sína en alls sóttu um þús-
und gestir sýninguna. Í tengslum
við hana stóðu Rótarýmenn
einnig fyrir fjölmennri málstofu
þar sem þemað var fyrirtækja-
rekstur á landsbyggðinni. Gert
er ráð fyrir að halda álíka málstofu
á sýningunni sem fer fram laugar-
daginn 22. febrúar á næsta ári.
Sýningin verði að hefð
Að sögn Kristjáns Rafns Sigurðs-
sonar forseta Rótarýklúbbs Borg-
arness er markmið atvinnusýning-
arinnar fjölþætt. Fyrst og fremst er
ætlun Rótarýmanna að efla sam-
stöðu rekstraraðila í héraðinu, gefa
þeim færi á að kynna starfsemi sína
á heimavettvangi og skapa jákvætt
viðhorf. Hann segir að móttökur
síðustu sýningar hafi farið fram
úr björtustu vonum Rótarýmanna
og þátttakenda og hafi verið mik-
il ánægja með framtakið. „Rótarý
eru samtök sem vilja fyrst
og fremst láta gott af sér
leiða og eru áhugasöm
um að efla nærsamfélag-
ið,“ segir Kristján sem
telur sýninguna nauðsyn-
legt til að efla samstöðu
heimamanna og fyrir-
tækja. „Markmið okkar
er síðan að sýningin verði
sjálfbær og verði að hefð í
héraðinu.“
Kristján Rafn vildi að
lokum koma á framfæri að
áhugasamir þátttakendur eru beðn-
ir um að hafa samband við Daníel
Inga Haraldsson í síma 897-1090,
netfang dih@simnet.is fyrir 20.
desember nk. til að tilkynna þátt-
töku. Framhald málsins ræðst síðan
af viðbrögðum þátttakenda. Boðað
verður til fundar og nánari kynn-
ingar í byrjun janúar 2014. hlh
Slökkvilið Grundarfjarðar fór í
sína árlegu heimsóknir í 3. bekk
Grunnskólans í Grundarfirði og
til elsta árgangs Leikskólans Sól-
valla í liðinni viku. Þar frædd-
ust krakkarnir um eldvarnir og
það sem ber að varast nú þeg-
ar að hátíð ljóss og friðar geng-
ur í garð. Eflaust fengu einhverjir
foreldrar fyrirlestur um eldvarnir
frá áhugasömum krökkum þegar
heim var komið. Var slökkviliðs-
mönnunum vel tekið af krökkun-
um.
tfk
Freisting vikunnar
Freistingu vikunnar fengum
við að þessu sinni frá Hrönn
Ríkharðsdóttur, skólastjóra
í Grundaskóla. Hrönn er
mikill matgæðingur og var
á sínum tíma með bloggsíðu
þar sem hún deildi góðum
uppskriftum með lesendum.
Blaðamaður Skessuhorns
hafði einhverju sinni leit-
að að uppskrift að heims-
ins bestu kjúklingasúpu á
veraldarvefnum og fund-
ið eina slíka á bloggsíðu Hrannar.
Eftir nánari athugun kom í ljós að
um var að ræða sömu uppskrift og
blaðamaður hafði fengið annars
staðar frá en þar gekk hún undir
nafninu „Skólastjórasúpa.“ Hrönn
fékk uppskriftina upphaflega hjá
Einari Viðarssyni, samkennara
sínum. Spurningin er hvort nafn-
giftin á súpunni góðu hafi breyst
eftir að skólastjórinn deildi henni
með öðrum? Því verður ekki svar-
að hér en við mælum svo sannar-
lega með því að þeir sem ekki hafa
smakkað Skólastjórasúpu, prófi
hana sem fyrst. Auðvelt er að gera
súpuna, hún er fljótleg og dásam-
leg á bragðið og Hrönn var tilbúin
að deila uppskriftinni með lesend-
um Skessuhorns.
Kjúklingasúpa fyrir
10 – 12 manns
3-4 msk olía
1,5 msk karrý
1/2 - 1 hvítlaukur - marinn
1 púrrulaukur, skorinn smátt
3 paprikur (ein af hverjum lit)
Þetta er allt steikt saman í potti en
best er að svissa karrý og hvítlauk
áður en hinu er bætt út í.
1 dós rjómaostur
1 flaska Heinz chilisósa (verður að
vera Heinz)
1 grænmetisteningur
3 súputeningar
1/2 lítri rjómi
1,5 - 2 lítrar vatn
salt og pipar
Þessu er blandað út í pottinn og
látið malla í góðan tíma. Að lokum
er bætt í pottinn 6-8 kjúklinga-
bringum sem skornar hafa verið í
bita, steiktar og kryddaðar vel.
Gott er að hafa nýtt brauð með.
Við bendum á að brauðbollurnar,
sem Hjördís Grímarsdóttir deildi
með okkur í Freistingu vikunnar
nýlega, eru einstaklega góðar með
súpunni.
Einnig er gott að hafa mulið
Dorritos snakk, rifinn ost og sýrð-
an rjóma sem meðlæti og strá því
ofan í hverja skál, eftir smekk.
Skólastjórasúpan góða
Rótarýmenn efna til
atvinnusýningar á nýjan leik
Frá atvinnusýningu Rótarýklúbbs Borgarness 2012 sem
fjöldi fólks skoðaði.
Slökkviliðsmenn fræddu
börnin um eldvarnir
Hefðbundinn jólamarkaður var haldinn í Safnaskálanum að Görðum á Akranesi,
sunndaginn 1. desember. Ingibjörg Gestsdóttir bregður hér á leik við eitt sölu-
borðanna. Ljósm. Safnasvæðið Akranesi
Laugardaginn 7. desember klukkan 16:00 verða ljósin tendruð á jólatrénu á
Akratorgi á Akranesi. Jólasveinarnir úr Akrafjalli ætla að mæta ásamt fleiri góðum
gestum. Vegna framkvæmda við endurbætur á Akratorgi stóð til að jólatréð yrði
á safnsvæðinu á Görðum. Framkvæmdir á torginu hafa hins vegar gengið vel og
því hefur verið ákveðið að hafa tréð á sínum hefðbundna stað. Eins og síðustu árin
er jólatréð fengið úr Hvammsskógi í Skorradal. Þeir Kristófer Ernir Stefánsson og
Guðmundur Antonsson, starfsmenn hjá Gísla Jónssyni ehf., unnu að því í vikunni að
reisa tréð á torginu og ganga tryggilega frá því fyrir laugardaginn. Ljósm. mþh
Nemendur Tónlistarskóla Snæfellsbæjar héldu jólatónleika sína 2. og 3. desember.
Nemendur skólans á Lýsuhóli halda svo sína tónleika þann 19. desember. Þema
tónleikanna að þessu sinni var íslensk jólalög. Valentína Kay skólastjóri bauð
gesti velkomna. Nanna Þórðardóttir kennari sá svo um að kynna nemendur sem
spiluðu og sungu af hjartans list. Hljómsveit skólans flutti einnig nokkur lög.
Einnig var flutt lagið Jólafrí af Hlöðver Smára Oddssyni en hann samdi sjálfur lag
og texta. Ljósm. þa.
Jólamarkaður kvenfélagsins Gleym mér ei í Grundarfirði var með hefðbundnu
sniði fyrstu helgina í aðventu þar sem handverkskonur bæjarins slógu upp sölu-
borðum og tóku á móti gestum og gangandi. Hér er Steinunn Hansdóttir.
Ljósm.tfk