Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2013, Qupperneq 37

Skessuhorn - 04.12.2013, Qupperneq 37
37MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013 Stykkishólmur – miðvikudagur 4. desember Blandaðir jólatónleikar í sal tónlistarskólans kl. 18. Á þessum tónleikum koma fram nemendur úr öllum deildum skólans og verður efnisskrá bæði fjörug og hátíðleg. Allir hjartanlega velkomnir. Akranes – miðvikudagur 4. desember Lesið úr nýjum bókum Uppheima á Bókasafni Akraness kl. 20. Þessir höfundar lesa úr verkum sínum. Bjarki Karlsson: Árleysi alda ; Sigrún Elíasdóttir: Kallar hann mig, kallar hann þig; Bjarni Guðmundsson: Frá hestum til hestafla; Guðjón Friðriksson: Hér heilsast skipin og Sigmundur Ernir Rúnarsson: Ein á enda jarðar. Verið velkomin, heitt kaffi á könnunni. Borgarbyggð – miðvikudagur 4. desember Kvenfélag Álftaneshrepps heldur sitt árlega jólabingó í Lyngbrekku kl. 20. Allur ágóðinn að þessu sinni rennur til heimilisfólks á Brákarhlíð. Borgarbyggð – miðvikudagur 4. desember Tvennir tónleikar verða á vegum Tónlistarskóla Borgarfjarðar kl. 20. Söngdeildartónleikar í Borgarnesi og tónleikar nemenda á Kleppjárnsreykjum verða í Logalandi. Fjölbreytt dagskrá. Allir velkomnir. Borgarbyggð – fimmtudagur 5. desember Tónlistarskólinn heimsækir Ráðhúsið og verður með tónleika þar kl. 14. Tónleikar verða einnig í Logalandi kl. 20 (nemendur á Varmalandi). Allir velkomnir Borgarbyggð – fimmtudagur 5. desember Árlegur jólamarkaður Ullarselsins á Hvanneyri. Bókakynning, geitaafurðir, baðstofustemning og notalegheit frá kl. 16 - 18. Akranes - fimmtudagur 5. desember Jólatónleikar II í Tónbergi kl. 18. Í annað sinn í desember bjóða nemendur okkar bæjarbúum til tónleika í salnum okkar góða. Fjölbreytt efnisskrá og eins og alltaf eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Stykkishólmur – fimmtudagur 5. desember Jólatónleikar – kvöldtónleikar í sal tónlistarskólans. Athugið að þessir tónleikar hefjast kl. 20. Á tónleikunum koma fram nemendur úr öllum deildum skólans og verður efnisskrá fjölbreytt, bæði fjörug og hátíðleg. Allir hjartanlega velkomnir. Borgarnes – föstudagur 6. desember Aðventurölt um gamla bæinn í Borgarnesi frá klukkan 18 til 23. Verslanir og þjónustufyrirtæki opin. Fólk er hvatt til að upplifa gamla bæinn. Sjá auglýsingu í Skessuhorni í dag. Borgarbyggð – föstudagur 6. desember Tónlistarskólinn verður á rölti í Borgarnesi í dag og með tónleika víða um bæinn. Fyrstu tónleikarnir verða í félagsstarfi eldri Borgara Borgarbraut 65A kl. 13:30. Kl. 17 verða tónleikar í Hyrnutorgi. Því næst verður tónlistarflutningur nemenda í Safnahúsinu kl. 18, í Landnámssetrinu kl. 18:30, í Hótel Borgarnesi kl. 19 og í Edduveröld kl. 19:30. Allir velkomnir! Borgarbyggð – laugardagur 7. desember Hinn hátíðlegi jólamarkaður Framfarafélags Borgfirðinga verður í Gömlu Hlöðunni í Nesi í Reykholtsdal, frá kl. 13 – 17. Á markaðnum verður fagurt handverk og úrval gæðaafurða. Komið og njótið þess besta sem sveitin býður! Enn eru nokkur laus pláss fyrir söluaðila, hafið samband við Írisi 863-3028 eða Eddu 699- 2636. Borgarbyggð – sunnudagur 8. desember Vígsluafmæli Norðtungukirkju í Norðtungukirkju kl. 14. Í byrjun desember eru liðin sextíu ár frá því að Norðtungukirkja var vígð. Af því tilefni verður hátíðarmessa þar sem sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup í Skálholti prédikar. Að messunni lokinni verður boðið til kaffisamsætis. Borgarbyggð – sunnudagur 8. desember Aðventusamkoma í Borgarneskirkju í Borgarneskirkju kl. 20. Ræðumaður kvöldsins Sigursteinn Sigurðsson arkitekt. Kór Borgarneskirkju syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur. Ungmenni flytja ljóð og tónlist. Almennur söngur. Ritningarlestur og bænagjörð. Verið velkomin í helgidóminn á aðventu. Grundarfjörður – mánudagur 9. desember Morgunsöngur kl. 10 í Grundarfjarðarkirkju. Tuttugu mínútna löng samverustund með léttum söngvum, bæn og lestri úr ritningunni. Kaffi og spjall á eftir í safnaðarheimili. Allir velkomnir. Borgarnes – þriðjudagur 10. desember Leikskólinn Klettaborg - Söngur í Félagsstarfi aldraðra. Kl. 13.15 fara börnin á Kattholti og Sjónarhóli og syngja jólalögin í Félagsstarfi aldraðra. Markaðstorg Vesturlands ÓE atvinnu - allt kemur til greina Thomas er fimmtugur Þjóðverji sem leitar vinnu frá febrúar til lok maí 2014 og frá júlí til desember 2014. Hann er duglegur, samvisku- samur, skipulagður og tilbúinn í næstum hvað sem er, gegn fæði og húsnæði. Staðsetning skiptir ekki máli. Talar þýsku og ensku. Vinsam- legast hafið samband í gegnum uppgefið netfang ef þið hafið at- vinnu fyrir hann í boði. 67dagny@ gmail.com Atvinna óskast 30 ára kona óskar eftir dagvinnu í Borgarnesi. Er með stúdentspróf og er lærð heilbrigðisritari. Upp- lýsingar í s. 869-4826. 31,5 fm. bílskúr til leigu Bílskúr 31,5 fm við Skarðsbraut á Akranesi. (Rafmagn borgað sér, ekki hiti eða vatn, ný flekahurð). Getur tekið tvo bíla, eða hentugt fyrir búslóðargeymslu. Uppl. á tölvupósti: fridmeyhelga5@ hotmail.com Söluaðilar óskast á gæludýrafóðri Óskum eftir öflugum söluaðilum á Vesturlandi - helst verslunum á einu vinsælasta gæludýrafóðri landins. Brit er hágæða fóður á mjög góðu verði fyrir hunda og ketti. Áhugasamir sendi uppl. á vor- usel@gmail.com. Sjá nánar á www. petmax.is Tveggja sæta svefnsófi Er með fínan IKEA svefnsófa til sölu, flottur í gestaherbergið verð 15 þús. S. 896-0675 Tveir skápar Tveir eins mjög fallegir antik horn- skápar í rococo stíl. Eru í mjög góðu standi. Sá sem er á myndinni er með grænu plussefni og hinn er með fjólubláu plussefni. Málin eru 139cm hæð og breidd og dýpt 55x55cm. Verðið fyrir báða 310 þús en fyrir einn 175 þús. Hægt að fá sófaborð í stíl á 50 þús. Uppl í s. 696-2334 eða ispostur@ yahoo.com Til sölu flatskjár og eldhúsborð Til sölu nýlegur 26” flatskjár. Eins árs ábyrgð. Verð kr. 62.000. Einnig sporöskjulagað eldhúsborð á stál- fæti með hvítri plötu. Verð kr. 2.000. Uppl. í síma 866-0021. Íbúð óskast Vantar íbúð á stór Borgarnes-svæð- inu. Er með hund sem fer með mér í vinnuna og er nánast aldrei einn heima. Sími: 848-5799. Heilsárshús til leigu Glæsilegt heilsárshús til leigu í 5-6 mánuði 11 km norður af Borgar- nesi. Uppl. storaborg@gmail.com Skrifstofuhúsnæði – Akranes Lögfræðingur óskar eftir litlu skrif- stofuhúsnæði. Upplýsingar í síma 661-7409 eða karigunndors@ gmail.com Vínylplötur óskast Ungur tónlistaráhugarmaður óskar eftir gömlum vínylplötum gefins eða ódýrt, allt kemur til greina, sér- staklega íslenskt efni. atlimar88@ gmail.com til að hafa samband – Atli. Óska eftir sjónvarpi Óska eftir ódýru eða gefins sjón- varpi. Ef þið eigið slíkt hafið sam- band í síma 7761124 eða e-mail lisayr83@hotmail.com Nagladekk á álfelgum Til sölu 4 stk BFGoodrich nagladekk á álfelgum voru undir Subaru Forrester í einn vetur. Uppl. í sima 895-2558 eða tölvupóst hraunhals@gmail.com Viltu losna við BJÚGINN og SYKURÞÖRFINA fljótt? Þá er Oo- long- og Pu-er teið eitt það albesta. 1 pakki með 100 tepokum er á 4300. Ef keyptir eru 2 pk. eða fl. er verðið 7800. Sykurþörfin minnkar og hverfur oftast eftir nokkra daga. Gott fyrir líkamlega og andlega heilsu. Þú getur fengið grænt lífrænt te með á 1500. 100 pokar, kynningarverð. S: 845-5715, Nína. Parketslípun og flísalögn Vantar þig að láta fríska upp á parketið eða leggja flísarnar. Kem og geri föst verð tilboð! Örn Geir- dal S: 777-4014. Borgarnes dagatalið 2014 Borgarnes dagatalið 2014 er komið út. Verð 2200 kr. Veggdagatal með 13 myndum úr Borgarnesi. Skoða má myndirnar á dagatalinu og fá nánari upplýsingar á slóðinni: www.hvitatravel.is/dagatal Frí heimsending í Borgarnesi. Dragið ekki of lengi að panta! Nánari upp- lýsingar í síma 661-7173. Eagle bikes 21” kvenhjól Er með til sölu hrikalega flott EAGLE BIKES 21” kvenreiðhjól. Þriggja gíra, kolsvart með körfu og bögglabera. Sér ekki á því, fyrir Á döfinni Markaðstorg Vesturlands www.skessuhorn.is ÝMISLEGT Nýfæddir Vestlendingar 15. nóvember. Stúlka. Þyngd 3.650 gr. Lengd 51,5 sm. Foreldrar Margrét Egilsdóttir og Guðjón Birgir Tómasson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 15. nóvember. Drengur. Þyngd 4.645 gr. Lengd 53 sm. Foreldrar Cherry Berador Candrejo og Þórður Jóhann Sigurðsson, Akranesi. Ljósmóðir: Soffía G. Þórðardóttir. 22. nóvember. Drengur. Þyngd 3.725 gr. Lengd 51 sm. Foreldrar Hulda Ólöf Einarsdóttir og Sigfús Helgi Kristinsson, Akranesi. Ljósmóðir: Jóhanna Ólafsdóttir. 23. nóvember. Drengur. Þyngd 3.675 gr. Lengd 51,5 sm. Foreldrar Beata Bozena Kowalska og Michal Mieczyslaw Kowalski, Stykkishólmi. Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir. ATVINNA ÓSKAST BÍLAR/VAGNAR/KERRUR DÝRAHALD HÚSBÚNAÐUR/HEIMILISTÆKI utan smá rispu á stöng. Hefur aðeins verið notað þrisvar sinnum svo dekkin eru ekkert eydd. Verð 60 þús (kostar nýtt 90 þús) Endi- lega hafið samband ef áhugi er fyrir hendi. Þorgerður s. 691-1873. Hesthúsapláss Sæl verið þið. Ég er tvítug stelpa og er nemi við Landbúnaðarhá- skólann á Hvanneyri. Ég er að leita að plássi í Borgarnesi fyrir eina fjögurra vetra meri eftir áramót og fram á vor. Ég er meira en til í að vinna upp í plássið eins og ég get með skóla. Ef þið hafið eða vitið um laust pláss endilega hafið samband ! Kv. Þuríður Hermanns- dóttir thuridurhe@gmail.com s. 615-2696. LEIGUMARKAÐUR ÓSKAST KEYPT TIL SÖLU

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.