Skessuhorn - 04.12.2013, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013
Af hverju ætti fólk að vera á
Facebook eða öðrum
samfélagsmiðlum?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi)
Kristrós Erla Bergmann
Baldursdóttir
Til að vera í betri tengslum við
vini sína sem búa annars staðar.
Sigurður Heiðar Guðjónsson
Því nú til dags er flestur félags-
skapur á netinu.
Karen Alda Þorvaldsdóttir
Til að eiga samskipti við fólk
sem býr langt í burtu.
Sóley Lind Hilmarsdóttir
Af því að það er alltaf eitthvað
nýtt að gerast í heiminum.
Hlynur Sævar Jónsson
Til þess að geta talað við ann-
að fólk.
Unglingar í félagsmiðstöðinni
Óðali í Borgarnesi standa fyrir ár-
legu jólaútvarpi sínu í næstu viku í
miðstöðinni. Útsending hefst sam-
kvæmt venju kl. 10 mánudaginn 9.
desember með ávarpi útvarpsstjóra
sem að þessu sinni er Klara Ósk
Kristinsdóttir. Útvarpið stendur yfir
fram til föstudagsins 13. desember
og er dagskráin og framkvæmd út-
sendinga borin uppi af nemendum
í 8.-10. bekk Grunnskólans í Borg-
arnesi. Aðrir leggja einnig hönd
á plóg. Í dagkránni er einnig að
finna efni frá öllum bekkjum GB,
frá unglingadeildum Grunnskóla
Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum
og Varmalandi, frá Laugargerðis-
skóla og loks nemendum Mennta-
skóla Borgarfjarðar. Á lokadegi út-
varpsins verður síðan efnt til pall-
borðsumræðna um sveitarstjórnar-
mál í Borgarbyggð og verða í hljóð-
stofu m.a. Páll S. Brynjarsson sveit-
arstjóri og Björn Bjarki Þorsteins-
son formaður byggðarráðs.
Þetta er í 21. skipti sem jólaút-
varpið fer fram og er mikill hug-
ur í aðstandendum þess sem eru á
fullu þessa vikuna að undirbúa út-
sendingu, að sögn Sigurþórs Krist-
jánssonar umsjónarmanns Óðals.
FM tíðni útvarpsins er sem fyrr
101,3 en Sigurþór minnir á að út-
sending fer einnig fram á vefnum
í boði Nepals hugbúnaðar. Hlust-
endur um víða veröld ættu því ekki
að vera í vandræðum með að heyra
í borgfirskum ungmennum í jóla-
skapi. hlh
Jólatónleikar Stórsveitar Snæfells-
ness voru haldnir að kvöldi 1. des-
ember sl. í Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga. Stórsveitin fékk Karla-
kórinn Kára og sjö einsöngvara til
liðs við sig. Dagskráin samanstóð
af sígildum jólalögum og dægur-
jólalögum og því fengu allir, ung-
ir og aldnir, að heyra sín uppáhalds
jólalög. Öllu var til tjaldað í hljóð-
kerfi, hljóðblöndun og ljósum og
var því um stórkostlega hljóðræna
og sjónræna upplifun að ræða. Við
sama tækifæri var vígt nýtt svið í
FSN, sem keypt hefur verið og sett
upp fyrir gjafafé.
Stórsveit Snæfellsness er skip-
uð ungu fólki af Snæfellsnesi og
er rekin í samstarfi við Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga. Baldur Orri
Rafnsson hefur stjórnað sveitinni
frá því hún tók til starfa. Á þeim
stutta tíma hafa þessir ungu tón-
listarmenn náð ótrúlegum árangri
og tónleikar þeirra með flottustu
menningarviðburðum á Snæfells-
nesi.
mm/ Ljósm. tfk
Skagamenn léku sl.
laugardag æfingarleik
gegn annarrar deildar-
liði Gróttu og fór leikur-
inn fram við erfiðar aðstæð-
ur á Seltjarnarnesinu, hvassviðri og
rigningu. ÍA tefldi fram mjög ungu
liði í leiknum þar sem nokkur for-
föll voru í hópnum. ÍA var tveim-
ur mörkum yfir í hálfleik og sigr-
aði 5:1. Jón Vilhelm Ákason skor-
aði þrennu og Eggert Kári Karsson
tvö mörk. Eins og áður segir voru
nokkur forföll í leikmannahópi ÍA.
Ármann Smári, Garðar Gunnlaugs
og Páll Gísli fengu frí. Albert Haf-
steinsson var á æfingu með U19
ára landsliðinu, en Ólafur Valur
Valdimarsson, Andri Adolphsson
og Aron Ýmir eru meiddir. Hall-
ur Flosason veikur og Gylfi Veig-
ar Gylfason í prófi. Ný nöfn í leik-
mannahópnum voru Steinar Æg-
isson sem hefur verið til reynslu
að undanförnu en hann er upp-
alinn hjá Aftureldingu og á ættir
að rekja til Akraness. Steinar Þor-
steinsson sem fæddur er 1997 var
að spila sinn fyrsta leik í byrjunar-
liði með meistaraflokki og Arnór
Snær Guðmundsson spilaði sinni
fyrsta leik eftir að hafa gengið til
liðs við ÍA frá Aftureldingu í byrj-
un nóvember. Gunnlaugur Jóns-
son þjálfari var mjög ánægður með
leikinn, baráttuna og frammistöðu
leikmanna, ekki síst þeirra sem voru
að stíga sín fyrstu skref í meistara-
flokki og ungrar varnarlínu.
þá
Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdótt-
ir frá Akranesi er um þessar mundir
að takast á við stærstu áskorun sem
hún hefur tekið í íþróttinni og sínu
lífi. Hún afsalaði sér áhugamanna-
réttindum um miðjan september-
mánuð síðastliðinn og hefur sett
stefnuna á að verða atvinnumaður
í golfi. Valdís Þóra er komin út til
Marokkó þar sem úrtökumót fyr-
ir Evrópumótaröðina hefjast í vik-
unni. Á morgun, fimmtudaginn 5.
desember, byrja fyrstu mótin og
keppir Valdís Þóra á móti í borg-
inni Rabat. Stendur mótið yfir í
fjóra daga og endar á sunnudag-
inn. Um 30 efstu á mótinu kom-
ast áfram, en það fer eftir árangri
stúlknanna í samanburði við kepp-
endur á öðru úrtökumóti hve marg-
ar fara áfram. Takist Valdísi Þóru
að komast áfram fer hún á næsta
stig úrtökumótanna sem fram fer
í borginni Marrakech dagana 14.-
17. desember. Takist Valdísi Þóru
að verða meðal 60 efstu á því móti
kemst hún í lokahringinn sem fram
fer næsta dag, 18. desember. Þrjá-
tíu fyrstu eftir lokahringinn kom-
ast beint í evrópsku mótaröðina en
þeir sem verða í 31.-60. sæti fá tak-
markaðan rétt, það er fá keppnis-
rétt í ákveðnum mótum.
Valdís æfði við frábærar aðstæð-
ur í Orlando í Bandaríkjunum í tvo
mánuði í haust og byrjun vetrar og
var nýkomin þaðan þegar hún hélt
til Marocco um síðustu helgi. Þar
æfði hún undir leiðsögn þjálfara frá
Dallas í Texas Jake Sandusky og þá
hafi Nökkvi Gunnarsson golfþjálf-
ari verið henni innan handar. Val-
dís sagðist í samtali við Skessu-
horn vera vel undirbúin og teldi sig
eiga ágæta möguleika að ná stóra
takmarkinu að komast í Evrópu-
mótaröðina. „Ég hef æft mjög vel
og hef spilað vel á æfingum. Leik-
formið virðist vera gott og ég fer
full sjálfstrausts til Marocco. Fyrsta
takmarkið hjá mér verður að kom-
ast áfram úr fyrsta mótinu og þá
gefst tími til að undirbúa sig fyrir
næsta takmark,“ sagði Valdís Þóra
Jónsdóttir. Hún vill koma á fram-
færi kæru þakklæti til allra þeirra
sem styrkt hafa hana í undirbún-
inginum, ekki síst félaganna í Golf-
klúbbnum Leyni og fyrirtækja á
Akranesi og víðar. þá
Ungt Skagalið með
góðan sigur á Gróttu
Stórsveit Snæfellsness
hélt jólatónleika
Valdís Þóra á úrtökumót
fyrir Evrópumótaröðina
Jólaútvarp Óðals í
loftið í næstu viku
Útsendingar FM Óðals fara fram í Félagsmiðstöðinni Óðal við Gunnlaugsgötu.