Skessuhorn


Skessuhorn - 04.12.2013, Page 39

Skessuhorn - 04.12.2013, Page 39
39MIÐVIKUDAGUR 4. DESEMBER 2013 | www.flytjandi.is | sími 525 7700 | OG EIMSKIP FLYTJANDI KEMUR JÓLAPÖKKUNUM TIL SKILA 750KR.ALLT AÐKG45 Viðtakandi fær tilkynningu þegar sækja má sendingu. Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m og hámarksþyngd 45 kg. ALLT AÐ 0,5 x 0,5 x 0,5 m KG45 Skallagrímsmenn náðu loksins að sýna sitt rétta andlit sl. fimmtudags- kvöld þegar þeir sigr- uðu Valsmenn í 8. umferð Dominos deildar karla í körfubolta. Lokatölur urðu 83:102 og lyftu Borgnesingar sér þar með úr fallsæti í deildinni. Leikurinn fór hressilega af stað og var nokkuð ljóst að bæði lið voru tilbúin í slaginn. Borgnes- ingar voru þó ívið betri og leiddu þeir með einu stigi eftir fyrsta leik- hluta og síðan sex stigum í hálfleik, 44:38. Engu breytti þó að Banda- ríkjamaðurinn Oscar Bellfield hafi orðið að fara meiddur af velli í fyrsta leikhluta hjá Skallagrími eftir tognun í læri, maður kom í manns stað. Borgnesingar mættu síðan sprækir til leiks í seinni hálfleik og náðu fljótlega tíu stiga forskoti um miðjan þriðja leikhluta. Valsmenn bitu í skjaldarrendur og söxuðu muninn á nýjan leik niður í fimm stig undir lok leikhlutans; 64:69. Í fjórða leikhluta sýndu Skallagríms- menn frábæra takta og var frammi- staða þeirra ein sú besta á leiktíð- inni til þessa. Munaði sérstaklega um framlag Páls Axels Vilbergsson- ar sem skoraði alls 15 stig í leikhlut- anum. Lokatölur því 83:102 fyrir Skallagrím. Stigahæstur í liði Skallagríms var Grétar Ingi Erlendsson sem átti frábæran leik með 21 stig og 13 frá- köst. Næst á eftir komu þeir Eg- ill Egilsson og Páll Axel Vilbergs- son með 18 stig hvor. Orri Jóns- son kom næstur með 16 stig og 7 stoðsendingar, Trausti Eiríksson var með 11 stig, Davíð Ásgeirsson 9, Oscar Bellfield 5, Ármann Örn Vilbergsson 3 og Sigurður Þórar- insson 1. Skallagrímsmenn verma eft- ir leikinn 10. sæti deildarinnar með fjögur stig. Næsti leikur liðs- ins í Dominos deildinni er á morg- un, fimmtudag gegn toppliði KR heima í Borgarnesi. hlh Inga Elín Cryer sund- kona frá Akranesi keppti á Íslandsmeistaramótinu í 25m laug sem fram fór nýverið. Þar synti hún í 400m og 800m skrið- sundi, 200m og 50m flugsundi ásamt því að vera í fimm boðsund- ssveitum. Inga Elín sigr- aði í 400m / 800m skrið- sundi og 200m flugsundi, varð í öðru sæti í 50m flugsundi. Samtals vann hún til sex gullverðlauna og þriggja silfurverð- launa á mótinu. Inga Elín náði lágmörkum á EM (Evrópumeistaramótið) í 400m og 800m skrið- sundi en mótið verður haldið í Herning í Dan- mörku dagana 11.-15. desember nk. Spenn- andi verður að sjá hvern- ig henni á eftir að ganga þar, en Inga Elín kveðst staðráðin í að gera sitt besta og verða landi og þjóð til sóma. Inga Elín fór í tvær mjög stórar og erfið- ar kjálkaaðgerðir á liðnu ári. Þá fyrri 29. nóvem- ber 2012 og aftur í byrjun febrúar 2013. Ekki síst í ljósi þessa telst þetta vera frábær endurkoma hjá þessari flottu sundkonu. mm Snæfell og Skallagrímur eru úr leik í Powerade bikarkeppni karla í körfubolta eftir að liðin biðu lægri hlut í leikjum sínum á sunnu- dagskvöldið, þegar 16 liða úrslit bikarsins fóru fram. Snæfell lék gegn spútnikliði Hauka á útivelli í Hafnarfirði. Hólmarar höfðu yfir- höndina í fyrri hálfleik og komust mest 13 stigum yfir í miðjum öðr- um leikhluta. Hafnfirðingar létu ekki deigan síga og söxuðu á for- skot Hólmara fyrir hálfleik og var staðan þá 45:51. Haukar bættu svo um betur og komust yfir í þriðja leikhluta og var staðan í lok leik- hlutans 66:65 fyrir heimamenn. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu til að ná forystunni á nýjan leik í lokaleikhlutanum en án árangurs. Lokatölur því 87:84 fyrir Hauka. Stigahæstur í liði Snæfells í leikn- um var Bandaríkjamaðurinn Vance Cooksey með 27 stig. Á eftir hon- um komu síðan Pálmi Freyr Sig- urgeirsson með 15, Stefán Kar- el Torfason 13, Sigurður Á. Þor- valdsson 12, Finnur Atli Magnús- son 9, Sveinn A. Davíðsson 5 og Kristján P. Andrésson 3. Heillum horfnir án Páls Axels Í Borgarnesi tóku Skallagrímsmenn á móti liði Þórs frá Þorlákshöfn. Nokkuð jafnt var með liðunum í fyrri hálfleik en Skallagrímsmenn voru þó skrefinu framar og leiddu lengst- um. Undir lok annars leikhluta sigu Sunnlendingar hins vegar fram úr og höfðu yfir í hálfleik 51:48. Borgnes- ingar komu heillum horfnir til leiks í seinni hálfleik og fylgdust með Þórs- urum raða niður hverri körfunni á fætur annarri. Ráðaleysi var í vörn og sókn heimamanna sem gestirnir nýttu sér óspart. Staðan að loknum þriðja leikhluta var 83:66. Sama lán- leysi var allsráðandi í lokaleikhlutan- um hjá heimamönnum og urðu loka- tölur 108:80. Orri Jónsson var stigahæstur í liði Borgnesinga í leiknum með 16 stig en á eftir honum kom Grétar Ingi Erlendsson með 14. Þá skoruðu Eg- ill Egilsson 12, Oscar Bellfield 11, Trausti Eiríksson og Davíð Guð- mundsson 9 hvor, Sigurður Þórar- insson 5, Ármann Vilbergsson 3 og Davíð Ásgeirsson 1. Liðið lék án Páls Axels Vilbergssonar í leiknum. hlh Taphrina Skallagríms- manna í Dominos deild karla í körfubolta hélt áfram í gær þegar liðið beið lægri hlut gegn Þór frá Þorlákshöfn 110:91 á heimavelli Þórs. Borgnesingar sáu vart til sól- ar í leiknum sem Þórsarar stýrðu með umtalsverðum yfirburðum. Fyrsti leikhluti var þó fremur jafn en staðan að honum loknum var 28:22 fyrir heimamenn. Allt öðru máli gegndi um annan leikhluta þar sem Þórsarar gjörsamlega kjöld- rógu Borgnesinga. Gestirnir skor- uðu einungis 11 stig í leikhlutan- um á móti 36 stigum heimamanna. Staðan í hálfleik var því 64:33 fyr- ir Þór. Heimamenn héldu upp- teknum hætti í þriðja leikhluta, bættu við forskot sitt og var stað- an 91:56 þeim í vil eftir leikhlutann. Borgnesingar náðu hins vegar að rétta sinn hlut í lokaleikhlutanum, skoruðu 37 stig á móti 19 stigum heimamanna sem dugði hins vegar ekki til þar sem munurinn á liðun- um var orðinn alltof mikill. Loka- staðan því 110:91. Atkvæðamestur í liði heima- manna í gær var Páll Axel Vil- bergsson sem skoraði 35 stig og hirti 8 fráköst. Grétar Ingi Er- lendsson kom næstur með 19 stig og þá skoraði Oscar Bellfield nýj- asti leikmaður liðsins 18 stig en hann gaf einnig 9 stoðsendingar. Einnig skoruðu Egill Egilsson 7, Davíð Guðmundsson 5, Davíð Ás- geirsson 4, Trausti Eiríksson 2 og Orri Jónsson 1. Borgnesingar vilja vafalaust gleyma þessari sneypuför til Þor- lákshafnar sem allra fyrst. Lið- ið mun þó þurfa að mæta Þórs- urum aftur á sunnudaginn kem- ur þegar liðin mætast í 16-liða úr- slitum Powerade bikarsins í Borg- arnesi. Í Dominos deildinni sitja Skallagrímsmenn áfram í 10. sæti með einungis 2 stig og er jafnt KFÍ og Val sem eru í 11. og 12. sæti. Næsti leikur liðsins er gegn Val á fimmtudaginn í Reykjavík og verður um afar mikilvægan leik að ræða fyrir bæði liðin sem eru orð- ið langeyg eftir sigri. hlh Snæfellskonum fataðist flugið í toppbaráttunni sl. miðvikudags- kvöld þegar þær töpuðu naumlega í Hólminum 60:64 fyrir KR í Dom- inosdeildinni. Á sama tíma vann Keflavík nágranna sína í Njarðvík og Haukar lögðu Val. Keflavík er á toppnum með 20 stig, Snæfell í öðru sæti með 18 stig og Haukar í því þriðja með 16 stig. Leikurinn byrjaði rólega í Hólm- inum og var jafn allan fyrri hlutann. Gestirnir voru einu stigi yfir í hálf- leik 27:28. KR stúlkurnar komu bet- ur inn í seinni hálfleikinn og náðu sjö stiga forskoti, 29:36. Snæfells- stúlkur reyndu að bregðast við en virtust ekki hafa árangur sem erfiði því áfram var KR með frumkvæð- ið og náði stöðunni 35:43. Forskot KR var sjö stig eftir þriðja leikhluta 41:48. Snæfellsstúlkur reyndu hvað þær gátu í fjórða hluta að saxa á en lítt gekk lengst af. Þegar 49 sek- úndur voru eftir tókst heimastúlk- um að minnka muninn í þrjú stig, 57:60. KR átti boltann og settu nið- ur tvö stig 57:62 en þá kom Helga Hjördís með stóran þrist fyrir Snæ- fell 60:62 og 21 sekúnda eftir. Snæ- fellsstúlkur brutu og KR setti niður tvö stig 60:64 sem urðu úrslit leiks- ins. Sanngjarn sigur KR og Snæ- fellsstúlkur ekki líkar sjálfum sér frá síðustu leikjum. Hjá Snæfelli var Chynna Brown stigahæst með 21 stig, 10 fráköst og 4 stolna bolta. Hildur Sigurðardóttir skoraði 14 stig, tók 10 fráköst og átti 5 stoð- sendingar. Helga Hjördís Björg- vinsdóttir skoraði 8 stig og tók 8 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteins- dóttir 6 stig og 7 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 5 stig og 7 frák., Eva Margrét Kristjánsdóttir 5 stig og Rebekka Rán Karlsdóttir 1. Hjá KR var Ebone Henry atkvæða- mest með 27 stig og 19 fráköst. Í næstu umferð fá Snæfellskonur Hauka í heimsókn sunnudaginn 8. desember. þá Ekki tókst Snæfelling- um að fylgja eftir góðu gengi í Dominosdeild- inni að undanförnu þeg- ar Stjörnumenn komu í heimsókn í Hólminn sl. fimmtu- dagskvöld. Stjörnumenn reyndust þar talsvert sterkari og unnu góðan 107:85 sigur. Með sigrinum höfðu þeir sætaskipti við Snæfellinga í deildinni, en bæði liðin eru með 8 stig og eru í 7. og 8. sæti. Leikur- inn byrjaði fjörlega og allt útlit fyr- ir jafnan og spennandi leik, svo sem í stöðunni 12:12 og 16:16. Stjarnan var yfir eftir fyrsta leikhluta 26:19 og komst síðan í tíu stiga mun strax við upphaf annars leikhluta, 31:21. Þrátt fyrir að Snæfelli tækist aðeins að kroppa í það voru Stjörnumenn sterkari og höfðu 16 stiga forskot í hálfleik 54:38. Snæfellingar byrjuðu seinni hálf- leikinn ágætlega og virtust á góðri leið með að komast vel inn í leik- inn og jafnvel gera hann að sínum. Þeir komust nær í 60:69 með Finn Atla og Pálma Frey ansi einbeitta og liðsfélagarnir voru með á nótun- um. Hafþór Ingi lagði inn þrist og Sigurður Þorvaldsson fór á línuna og kláraði tvö víti. Þvílík innkoma Snæfells og staðan orðin 67:69 fyrir Stjörnuna. Gestirnir voru ekki á því að leyfa heimamönnum að ná yfir- höndinni og komst í níu stiga forskot fyrir lokakaflann, 76:67. Stjörnu- menn komu síðan einbeittir á loka- sprettinn með sömu baráttu og fyrr í leiknum. Þeir komu sér strax í þægi- legt forskot 69:85 og síðan 71:92. Þá var orðið formsatriði að klára leik- inn og lokatölur eins og áður segir 107:85 fyrir Stjörnuna. Hjá Snæfelli var Vance Cook- sey langatkvæðamestur með 30 stig, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 15, Sig- urður Þorvaldsson 12, Sveinn Arnar Davíðsson 11, Hafþór Ingi Gunn- arsson 6, Finnur Atli Magnússon 5, Stefán Karel Ólafsson 4 og Jón Ólafur Jónsson 2. Hjá Stjörnunni voru Matthew James Hairston með 31 og Marvin Valdimarsson 29. Næst mætir Snæfell Ísfirðingum vestra nk. föstudagskvöld, 6. des- ember. þá Sneypuför hjá Skallagrímsmönnum Orri Jónsson var stigahæstur í liði Skallagríms í gær. Karlaliðin úr leik í Powerade bikarnum Snæfellskonur féllu af toppnum Snæfellingar lágu fyrir sterkum Stjörnumönnum Borgnesingar aftur á sigurbraut Inga Elín náði lágmörkum á EM

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.