Læknablaðið - 15.10.2000, Side 21
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR
Tafla IV. Fjöldi drengja á mismunandi aldri flokkaðir eftir rúmmáii eistna.
Aldur Rúmmál
1 2 3 4 5 6 8 10 12 15 20 25
631 59 6 - - - - - - . . .
7 85 141 8 í - - - - - - - -
8 77 184 10 - - - - - - - - -
9 70 171 15 í - - - - - - - -
10 42 209 43 5 í í - - - - - -
11 19 160 63 33 n 6 14 1 í - - -
12 7 64 55 43 29 38 21 12 8 8 - -
13 3 23 27 24 25 29 36 37 28 25 13 2
14 - 1 9 8 16 20 31 53 65 49 38 11
15 - 1 1 - 3 6 11 28 47 52 74 10
16 1 3 10 8 36 67 2
Niðurstöður
í rannsókninni tóku þátt samtals 5626 börn og
unglingar, þar af 2751 drengur, og var það meira en
95% af úrtakshópnum.
Tafla I sýnir stigreiningu kynhára drengja
samkvæmt flokkun Tanners. Meðalaldur drengja
með kynhárastig 2 (PH 2), var 12,74 ár (staðalfrávik
1,37 ár). Fyrir stig 5 (PH 5) var meðalaldur 15,17 ár
(staðalfrávik 0,8 ár). Meðaltímalengd milli PH 2 og
PH 5 var 2,43 ár.
Tafla II sýnir aldursdreifingu drengjanna miðað
við stiggreiningu kynhára samkvæmt Tanner. Taflan
sýnir meðal annars að hjá 859 drengjum innan 10 ára
aldurs fannst kynháravöxtur aðeins í átta tilfellum og
kynháraþroski stig 5 fannst aðeins hjá fimm
drengjum innan 14 ára aldurs.
Tafla III sýnir rúmmál eistna í millilítrum miðað
við aldur. Meðalaldur drengja með eistu að stærð 4
ml var 11,89 ár (staðalfrávik 1,08 ár), en miðað er við
að eistnastærð 4 ml marki upphaf kynþroska drengja.
Meðalaldur drengja með 12 ml eistnarúmmál var
14,10 ár (staðalfrávik 0,97 ár), en 12 ml hafa verið
talin neðri mörk eðlilegrar stærðar eistna hjá
fullorðnum körlum.
Tafla IV sýnir aldursdreifingu drengjanna miðað
við rúmmál eistna. Af 1158 drengjum innan 11 ára
aldurs höfðu aðeins sjö náð 4 ml eistnastærð.
Tafla V sýnir samanburð íslensku rannsóknar-
innar við erlendar niðurstöður. Þar kemur fram
tímasetning kynþroskaeinkenna drengja í nokkrum
löndum Evrópu. Tölurnar sýna meðalaldur í árum.
Skilgreining á fyrstu kynþroskaeinkennum „G-2“ var
notuð í hollensku rannsókninni sjá nánari umfjöllun í
umræðu.
Mynd 1 sýnir línurit yfir stærð eistna. Línuritið
sýnir rúmmál í ml, miðað við aldur. Sýnd er
meðaltalskúrfa með einu staðalfráviki.
Mynd 2 sýnir fyrstu kynþroskaeinkenni drengja,
það er eistu að rúmmáli 4 ml og kynhárastig 2. Sýnd
eru eitt og tvö staðalfrávik.
Tafla V. Samanburöur á tímasetningu kynþroskaeinkerma drengja í nokkrum löndum
Evrópu. G-2* markar fyrstu breytingar á kynfærum drengja.
Land Heimild nr. G-2 T4§ PH 2f PH 4
Island 10 11,89 12,74 14,63
Bretland 2 11,64 13,44 14,36
Holland 7 11,33 11,71 13,96
Sviss 5 11,80 12,20 14,20
Svíþjóð 6 12,22 12,52 14,10
* G-2 = Fyrsta merkjanleg stækkun á eistum og fyrstu sjáanlegar breytingar á húð pungsins.
§ T 4 = Eistu ná 4 ml rúmmáli.
11 PH 2 = Fyrsti merkjanlegi vöxtur kynhára.
Mynd 1. Línurit yfir rúmmál eistna íslenskra drengja á aldrinum 6-16 ára, mœlt í
millilítrum með eistnamœli (orcidometer) Praders. Línuritið sýnir meðalrúmmál ásamt
plús og mínus einu staðalfráviki.
Umræða
Rannsókn sú er hér hefur verið lýst er um margt
sérstæð. Flestar rannsóknir á kynþroska unglinga
hafa verið hluti af langtímarannsóknum þar sem
Læknablaðið 2000/86 657