Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.2000, Side 23

Læknablaðið - 15.10.2000, Side 23
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR Önnur ytri einkenni kynþroska hjá drengjum, en hér hafa verið nefnd eru mun síður fallin til marktækra samanburðarrannsókna. I svissnesku langtímarannsókninni fannst til dæmis að meðal- aldur drengja með fyrstu raddbreytingar (mútur) var 14,60 ár (5). Mjög mikill breytileiki er þó í raddbreyt- ingum drengja og erfitt að merkja hvænær þær byrja. Skakkebæk og félagar í Danmörku gerðu tilraunir til að meta fyrstu sæðisfrumuframleiðslu pilta (sper- marche) og fundu að meðalaldur við fyrstu sæðis- frumuframleiðslu hjá dönskum piltum var 13,70 ár (11,70-15,00) (14). Flestar rannsóknamiðurstöður benda til að kynþroski og vöxtur unglinga á Norðurlöndum og' Vestur-Evrópu fylgi svipuðu ferli og að íslenskir drengir skeri sig ekki úr hvað varðar tímasetningu eða hraða kynþroska. Frávik í þroska geta oft verið einkenni um sjúkdóma og því er mikilvægt að gera sér grein fyrir eðlilegum mörkum kynþroska í hverju samfélagi. Með vaxandi flutningi fólks af ýmsum kynþáttum til landsins er nauðsynlegt að hafa í huga að verulegur munur er á upphafi kynþroska í hinum ýmsu heims- hlutum. Til dæmis má nefna að á Norðurlöndum er algengast að finna ótímabæran kynþroska hjá stúlkum sem ættaðar eru frá Asíulöndum. I samantekt hefur rannsókn okkar á líkamsþroska íslenskra drengja sýnt, eins og raunar hefur verið lýst í fyrri rannsóknum erlendis, að tímamörk eðlilegs kynþroska eru víð og ennfremur er mikill breytileiki í hraða kynþroskans milli einstaklinga. Mikilvægt er að þeir sem starfa að heilsugæslu barna geri sér grein fyrir þessum breytileika. Pannig má forðast óþarfa áhyggjur, ef þroskaeinkenni barnsins eru innan eðlilegra tímamarka, en jafnframt gera ráðstafanir til rannsókna þegar þess gerist þörf. Þakkir Rannsóknin var styrkt af Vísindasjóði íslands. Höfundar þakka sérlega öllum þeim skóla- hjúkrunarfræðingum, víðs vegar um landið, sem lögðu fram ómælda vinnu við framkvæmd og skipu- lagningu rannsóknarinnar. Heimildir 1. Marchall WA, Tanner JM. Variations in pattern of pubertal changes in boys. Arc Dis Child 1970; 45:13-23. 2. Wheeler MD. Physical changes at puberty. In: Styne DM, ed. Endocrinology and Metabolism Clinics of North America. Philadelphia: W.B. Saunders; 1991; 20:1-14. 3. Tanner J, Whitehouse R, Clinical longitudinal standards for height, weight, height velocity, weight velocity, and the stages of puberty. Arch Dis Child 1976; 51:170-9. 4. Largo RH, Prader A. Pubertal development in Swizz girls. Helv Paediatr Acta 1983; 38: 229-43. 5. Largo RH, Prader A. Pubertal development in Swizz boys. Helv Paediatr Acta 1983; 38:211-28. 6. Taranger J, Engström I, Lichtensten H, Svenberg-Redegren I. Somatic Pubertal Development. Acta Pediatr Scand Suppl. 1976; 258:121-35. 7. Roede MJ, van Wieringen JC. Growth Diagrams 1980. Tijdschrift vor Sociale Gezondheidszorg 1985; Suppl. 63:1-34. 8. Harlan WR, Harlan EA, Grillo GP. Secondary sex characteristics of girls 12-17 years of age: The U.S. Health Examination Survey. J Ped 1980; 96: 1074-8. 9. Harlan WR, Grillo GP, Cornoni-Huntley J, Leaverton PE. Secondary sex characteristics of boys 12-17 years of age: The U.S. Health Examination Survey. J Ped 1979; 95: 293-7. 10. Dagbjartsson A, Þórsson ÁV, Pálsson G, Arnórsson VH. Hæö og þyngd íslenskra barna og unglinga 6-20 ára. Læknablaðiö 2000; 86: 509-14. 11. Pórsson ÁV, Dagbjartsson A, Pálsson G, Arnórsson VH. Kynþroski íslenskra stúlkna. Læknablaðið 2000; 86: 649-53. 12. Zachmann M, Prader A, Kind HP, Haflinger H, Budliger H. Testicular volume during adolescence. Cross-sectional and longitudinal studies. Helv Paediatr Acta 1974; 29: 61-72. 13. Magnússon ÞE. Meðalaldur íslenskra stúlkna við fyrstu tíðir. Læknablaðið 1980; 66:110-3. 14. Marchall WA, Tanner JM. Variations in pattern of pubertal changes in girls. Arc Dis Child 1969; 44: 291-303. 15. Tanner JM, Whitehouse RH, Marubini E, Resele LE The adolescent growth spurt of boys and girls of the Harpenden Growth Study. Ann Hum Biol 1976; 3:109-26. 16. Nielsen CT, Skakkebaek NE, Darling JA, Hunter WM, Richardson DW, Jorgensen M, et al. Longitudinal study of testosterone and luteinizing hormone (LH) in relation to spermarche, pubic hair, height and sitting height in normal boys. Acta Endocrinol Suppl 1986; 279: 98-10. Læknablaðið 2000/86 659
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.