Læknablaðið - 15.10.2000, Page 27
FRÆÐIGREINAR / KRABBAMEIN
Vefjageröir
Umskiptaþekju-
krabbamein 1
Stórfrumu-,
krabbamein
Gallganga-
krabbamein
Flöguþekju-
krabbamein
Silfurfrumuæxli
Krabbamein, ENT I
Kirtlakrabbamein I
stað við andlát, en 52% þeirra höfðu
kirtlakrabbamein.
Langflest briskrabbameinanna voru
kirtlakrabbamein, eða 13 af 15, en tvö
æxlanna flokkuðust sem krabbamein
ENT (ekki nánar tilgreint). Öll
ristiltilfellin voru kirtlakrabbamein. Af
lungnakrabbameinum var um helmingur
af smáfrumugerð, eða sjö af 13. Tvö
æxlanna voru flöguþekjukrabbamein, tvö
voru silfurfrumuæxli, en eitt krabbamein
ENT og eitt stórfrumukrabbamein.
Nokkur munur var á líklegasta
uppruna kirtlakrabbameins eftir kyni.
Hjá körlum voru 44% upprunnin í ristli
en 27% hjá konum. Hins vegar voru 20%
kirtlakrabbameina kvenna upprunnin í
gallblöðru eða gallvegum, en aðeins 6%
kirtlakrabbameina karla. Svipað hlutfall
kirtlakrabbameina kom frá brisi, 39% hjá
körlum en 40% hjá konum (myndir 3 og
4).
Niðurstöður um staðsetningu frumæxlis voru
byggðar á krufningu í 19 tilfellum (35%). Mynd-
greiningarrannsóknir lágu að baki 15 (27%) grein-
inga. Níu sinnum (16%) var stuðst við klínískar
upplýsingar. Prisvar fékkst greining með ástungu á
viðkomandi líffæri, en einu sinni var æxlið fjarlægt
með aðgerð. í átta tilvikum (15%) var ekki tekið
fram í gögnum Krabbameinsskrár hvernig stað-
setning frumæxlis var ákveðin.
Umræða
I þessari rannsókn fannst upprunastaður í 66%
tilfella þegar lifrarmeinvörp af óþekktum uppruna
voru skoðuð. Hjá 43% sjúklinga fannst frumæxlið
fyrir andlát sjúklings, en hjá 23% fannst uppruna-
staður við krufningu. Pví tekst í innan við helmingi
tilfella að greina uppruna meinvarpanna á meðan
sjúklingurinn er á lífi. I talsverðum hópi sjúklinga
(16%) virðist greining ekki byggð á sérhæfðum
rannsóknum, heldur mati læknis og hjá svipuðum
hópi sjúklinga var ekki tekið fram hvernig greining
var fengin. Alls er því tæpur þriðjungur greininga á
upprunastað fenginn með klínísku mati eða
óþekktum aðferðum og er því ekki ljóst hversu
nákvæmar þær greiningar eru.
Algengustu frumæxlin reyndust vera briskrabba-
mein, lungnakrabbamein og ristil-/endaþarms-
krabbamein (75% tilfella). Pessar niðurstöður eru í
samræmi við aðrar rannsóknir á þessu efni (8). Birtar
voru niðurstöður rannsóknar á 500 sjúklingum sem
greindust með lifrarmeinvörp af óþekktum uppruna.
Alls reyndist unnt að finna upprunastað í 135
tilfellum (27%). Lungu, ristill og bris voru þrír
algengustu staðirnir og höfðu samtals 70 sjúklingar af
135 (51%) meinvörp frá þessum þremur stöðum (8).
□ Konur
□Karlar
Smáfrumu-
krabbamein
9 10
Fjöldi tilfella
Mynd 2. Vefjagerðir 55 lifrarmeinvarpa sem voru af óþekktum uppruna við greiningu en höfðu
skráðan upprunastað í Krabbameinsskrá. Kirtlakrabbamein er algengasta vefjagerðin hjá bœði körlum
og konum.
Umskiptaþekjukrabbamein = transitional cell carcinoma. Silfurfrumuæxli = carcinoid tumor.
Kirtlakrabbamein = adenocarcinoma. ENT = ekki nánar tilgreint.
Tafla II. Vefjageröir lifrarmeinvarpa hjé 55 sjúklingum, 31 karli og 24 konum. Kirtlakrabbamein er algengasta vefjageröin hjá báöum kynjum. ENT = ekki nánar tilgreint silfurfrumuæxli = carcinoid tumour umskiptaþekjukrabbamein = transitional cell cancer
Ve fjagerð Karlar Konur
Fjöldi Hlutfall (%) Fjöldi Hlutfall (%)
Kirtlakrabbamein 18 (58) 15 (63)
Smáfrumukrabbamein 5 (16) 2 (8)
Krabbamein, ENT 3 (10) 1 (4)
Silfurfrumuæxli 2 (6) 3 (13)
Flöguþekjukrabbamein 2 (6) 1 (4)
Gallgangakrabbamein 1 (3) 0 (0)
Stórfrumukrabbamein 0 (0) 1 (4)
Umskiptaþekjukrabbamein 0 (0) 1 (4)
Samtals 31 (100) 24 (100)
Greinist sjúklingur með æxli af óþekktum
uppruna hefur verið mælt með takmarkaðri leit að
frumæxli með því að skoða sjúkling, fá
blóðrannsóknir, leita að blóði í hægðum
(Haemoccult próf), röntgenmynd af brjóstholi og
tölvusneiðmynd af kviði og grindarholi (5,6,9). Með
hliðsjón af staðsetningu algengustu frumæxlanna í
þessari rannsókn (bris, ristill, lungu) virðast þessar
leiðbeiningar vera viðeigandi. Dýrar og tímafrekar
röntgen- og speglunarrannsóknir á einkennalausum
svæðum leiða til greiningar í innan við 10% tilfella
(10). Par sem sjúklingar með meinvörp í lifur hafa
slæmar horfur (2,11), er yfirleitt reynt að hlífa þeim
við erfiðum rannsóknum.
Kirtlakrabbamein var langalgengasta vefjagrein-
ingin (60%). Pessi niðurstaða er einnig í samræmi við
eldri rannsóknir sem hafa sýnt að um kirtlakrabba-
mein er að ræða í um 65-67% tilfella (8,12). Úttekt á
139 sjúklingum með æxli af óþekktum uppruna og
meinvörp í lifur sýndi að 93 (67%) höfðu kirtla-
krabbamein, 24 (17%) krabbamein ENT og 18
(14%) æxli af taugainnkirtlatoga (neuroendocrine).
Læknablaðið 2000/86 663