Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.2000, Page 28

Læknablaðið - 15.10.2000, Page 28
FRÆÐIGREINAR / KRABBAMEIN r Mynd 3. Uppruni lifrarmeinvarpa af kirtlakrabbameinsgerð hjá 15 konum. Briskrabbamein er algengasta frumœxlið samkvœmt Krabbameinsskrá, en j)ar á eftir kemur krabbamein í ristli og gallvegum. Mynd 4. Uppruni lifrarmeinvarpa af kirtilkrabbameinsgerð hjá 18 körlum. Bris- og ristilkrabbamein eru tvö algenguslu frumœxlin (samtals 83%) samkvœmt Krabbameinsskrá. Aðrar gerðir voru mun sjaldgæfari (8). Hátt hlutfall kirtlakrabbameins endurspeglar þá staðreynd að flest æxli sem meinverpast í lifur eru upprunnin í mellingarvegi. í flestum tilfellum snýst því vandamálið um að finna uppruna meinvarpa frá kirtlakrabbameini. Hjá körlum voru 83% kirtlakrabbameina komin frá tveimur stöðum, það er ristli eða brisi, en hlutfallið var 67% hjá konum. Þessi munur útskýrist af því að heldur færri æxli voru upprunnin í ristli hjá konum, en hins vegar voru gallblöðru- og gallvegakrabbamein meira áberandi í þeim hópi. Þessum niðurstöðum ber þó að taka með nokkurri varúð vegna þess hve fá tilfelli er um að ræða. Fjöldi sjúklinga með bris- og gallvegakrabbamein í þessum hópi endurspeglar hve erfið þessi æxli geta verið í greiningu. Eins og áður hefur verið bent á geta kirtlakrabbamein frá mismunandi líffærum haft líkt vefjafræðilegt útlit, þannig að hefðbundin smá- sjárskoðun hefur takmarkað gildi við að finna uppruna meinvarpa af kirtilkrabbameinsgerð (5,7). Sérlitanir geta verið mikil viðbót við hefðbundna smásjárskoðun og hefur CK7/CK20 ónæmislitun umtalsvert notagildi við greiningu á upprunastað kirtilmyndandi meinvarpa í lifur (7,13,14). Vænta má þess að fleiri rannsóknir á þessu sviði komi fram, og hugsanlega eiga sérlitanir eftir að skipta verulegu máli við leit að frumæxli í framtíðinni. Þau æxli sem ekki voru af kirtlakrabbameinsgerð voru oft af smáfrumu- eða silfurfrumugerð. Öll smáfrumuæxlin kornu frá lungum, sem ekki kemur á óvart. Þó smáfrumuæxli séu þekkt í öðrum líffærum svo sem brisi, vélinda og ýmsum fleiri stöðum, eru þau sjaldgæf annars staðar en í lungum. Silfur- frumuæxli hafa nokkra sérstöðu, því horfur sjúklinga með meinorpin silfurfrumuæxli eru sýnu betri en sjúklinga með meinvörp af öðrum toga, til að mynda frá kirtilæxlum, auk þess sem þessir sjúklingar fá gjarnan sérhæfða lyfjameðferð (2,8). Mikilvægt er því að þau séu rétt greind til þess að sjúklingarnir hljóti viðeigandi meðferð. Annað æxli sem miklu máli skiptir að greina er brjóstakrabbamein. Að vísu er sjaldgæft að brjóstakrabbamein greinist fyrst vegna meinvarpa (5) og í þessari rannsókn fundust einungis tvö tilfelli af brjóstakrabbameini hjá 55 sjúklingum. Hins vegar þurfa þessir sjúklingar oft sérhæfða meðferð (hormónameðferð) sem greinir þá frá öðrunt hópum. Alltaf ætti því að hafa þennan möguleika í huga hjá sjúklingum sem greinast með lifrarmeinvörp. Sjúklingar með meinvörp af óþekktum uppruna hafa talsvert verið rannsakaðir á undanförnum árum. Fundist hafa undirhópar sem virðast hafa gagn af meðferð með krabbameinslyfjum og/eða geislum (5), en kirtlakrabbameinsmeinvörp og lifrarmeinvörp almennt eru meðal þeirra æxla sem ekki hafa verið talin lyfjanæm. Það kemur ekki á óvart þar sem krabbamein upprunnin í meltingarvegi (flest kirtlakrabbamein og lifrarmeinvörp koma þaðan) svara lyfjameðferð yfirleitt illa. I nýlegri rannsókn á 216 sjúklingum með meinvörp í lifur af óþekktum uppruna kveður þó við nokkurn annan tón en þar höfðu sjúklingar, sem fengu krabbameinslyfja- meðferð, lægri dánartíðni en þeir sem enga slíka meðferð fengu og voru áhrif lyfjameðferðarinnar mest hjá sjúklingum með kirtilkrabbamein (8). Þó staðfesta þurfi þessar niðurstöður með fleiri rannsóknum, vekja þær von um að í framtíðinni takist að þróa lyfjameðferð sem gagnist þessum sjúklingum. Eins og áður sagði hafa sjúklingar með meinvörp í lifur slæmar horfur. Því mætti velta fyrir sér tilgangi þess að rannsaka þennan hóp og leita að uppruna- 664 Læknablaðið 2000/86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.