Læknablaðið - 15.10.2000, Side 84
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALNÆMI
Alnæmi í Afríku
Alnæmi krefst fleiri
mannslífa í Afríku á ári
hverju en nokkur önnur
dánarorsök. Styrjaldir,
malaría, hungursneyð,
berklar og aðrar plágur sem
hrjá álfuna eru ekki eins
mannskæðar og alnæmis-
plágan. Að undanförnu
hafa niðurstöður 13. al-
þjóðaráðstefnunnar um
alnæmi verið birtar víða um
heim. Hún var haldin í
Durban í Suður-Afríku í júh'
í sumar.
Pað er einkum fólk í
blóma lífsins sem smitast
af alnæmi. Fátækt álfunnar
Framtíð þessa unga pilts
við Nyong -fljótið í
Kamerún verður vonandi
björl en hann og annað
ungtfólk í álfunni býr í
skugga alnœmis. Myndin
er ótengd efni greinarinnar.
Ljósm: -aób
nciui iiau injcig uivcuicg
áhrif á útbreiðsluna, bæði fátækt í þeim löndum
þar sem alnæmi breiðist hraðast út og fátækt
einstaklinga sem getur leitt til áhættusamra
lífshátta svo sem vændis.
En það er ekki einungis í skugga örbirgðar og
fáfræði sem sjúkdómurinn hefur breiðst út.
Alnæmi er talið ein helsta ógn við uppbyggingu
menntunar, hagkerfis og félagslegra réttinda í
álfunni. Til dæmis hefur verið tekið að allt að 25%
lækna í ýmsum löndum sunnanverðrar Afríku
muni látast af völdum sjúkdómsins fyrir árið 2005.
Ástandið verst í Botswana
Ef litið er á einstök lönd álfunnar kemur í ljós að
ástandið er verst í Botswana þar sem 35,8% íbúa á
aldrinum 15-50 ára eru smitaðir. Fleiri lönd álfunnar
eru með yfir fimmtung smitaðan, af fólki á besta
aldri. Öll löndin sunnan Sahara hafa orðið fyrir
barðinu á sjúkdómnum en iila gengur að fá staðfestar
tölur í sumum löndunum þar sem stjómvöld hafa
tilhneigingu til að líta framhjá vandanum.
í Suður-Afríku er vandinn vaxandi
í Suður-Afríku breiðist alnæmi nú út með vaxandi
hraða. Talið er að 3,5 milljónir manna hafi sýkst nú
þegar og sú tala verði komin upp í að minnsta kosti
sex milljónir árið 2010. Það merkir að um 13% íbúa
landsins á aldrinum 20-64 ára beri smitið.
Munaðarleysingjar munu nálgast að vera orðnir um
milljón eftir fimm ár og verða væntanlega nálægt
tveimur milljónum um 2010.
Helstu þættir í útbreiðslu alnæmis
Þótt nú sé litið æ meir á aðra þætti en fátækt leikur
enginn vafi á því að hún er helsta ástæða
alnæmisvandans í Afríku. Fjármagn vantar til að
byggja upp öflugt heilbrigðiskerfi og einnig til fræðslu
um útbreiðslu sjúkdómsins og úrræði til varnar
honum.
• Forystumenn í afrískum samfélögum hafa horft
framhjá alnæmisvandanum og hann hefur hvergi
verið tekinn föstum tökum.
• Ýmsar hefðir auka á hættuna á að smit eigi sér stað.
Til að mynda er sá siður í sunnanverðri Afríku að
nota plöntur ti! að þurrka slímhúðina innan á
kynfærum kvenna.
• Akveðin bannhelgi hvílir víða á því að ræða
kynferðismál við börn. Foreldrar veita börnum
sínum því ekki nauðsynlega kynfræðslu.
• Ýmsir trúarhópar hafa lagst gegn því að börn fái
kynfræðslu í skólum. Þar af leiðandi fá þau ekki
fræðslu um að verjur geti varið einstaklinga fyrir
alnæmissmiti.
• Ólæsi er útbreitt og það setur fræðslu til al-
mennings skorður.
• Hefðbundnir hjúskaparsiðir ýta oft undir út-
breiðslu veikinnar, til dæmis þar sem siður er að
ekkjur giftist mági sínum eftir andlát fjöl-
skylduföðurins. Sé banamein mannsins alnæmi,
eins og æ oftar gerist, er konan oftast smituð og
ber smitið áfram. Oft eiga giftir menn fleiri
rekkjunauta og því er smit fljótt að berast áfram.
• Alnæmissmituðu fólki er víða útskúfað úr sam-
félaginu. Vændi er algengt úrræði, ekki síst þeirra
sem eiga undir högg að sækja. I þeirra hópi eru
fjölmargir alnæmissmitaðir.
• Fátækt rekur marga karlmenn langan veg í at-
vinnuleit og hættan á skyndikynnum eykst enn
frekar við slíkar aðstæður.
• Síðast en ekki síst er heilbrigðiskerfið í fátækari
löndum Afríku mjög vanþróað, hreinlæti víða
ábótavant, vatn af skornum skammti og starfsfólk
og sjúkrahús illa tækjum búið. Þetta eykur mjög
áhættuna á útbreiðslu alnæmis.
-aób
Heimildir
Ugeskrift for Læger 38/2000
JAM A 12. júlí 2000
(http://jama.amaassn.org/issues/v284n2/ffuli/jmn0712-l.html);
http://www.unaids.org
714 Læknablaðid 2000/86