Skessuhorn - 12.03.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 11. tbl. 17. árg. 12. mars 2014 - kr. 600 í lausasölu
HEFUR SAFNAÐ FYRIR
ÖKUTÆKI
FYRIR HVERJU
LANGAR ÞIG AÐ SAFNA?
Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður
Fermingarboðskort
www.framkollunarthjonustan.is
Jón Jónsson
ratiopharm
- fæst án lyfs
eðils
Jakkaföt, þröng snið
Skyrtur, munstraðar
og einlitar
Bindi • Slaufur • Belti
Öskudagurinn var í síðustu viku og víða glatt á hjalla hjá börnum af því tilefni, jafnvel fullorðnum einnig. Þær Þórhildur Hólmgeirsdóttir, Kristín Alma Rúnarsdóttir, Sara
Rós Róbertsdóttir og Rúna Birna Jóhannsdóttir í Stykkishólmi voru allar málaðar á öskudaginn af Menju von Schmalensee. Sannkallað listaverk á ferð. Fleiri myndir frá
öskudeginum er að finna bls. 26-27. Ljósm. Róbert Arnar Stefánsson.
Samkomulag milli allra veiðirétt-
arhafa í Borgarfirði um uppkaup
netalagna á vatnasviði Hvítár virð-
ist nú í uppnámi eftir að leigutak-
ar Þverár hafa tilkynnt að þeir ætli
ekki að fara eftir samkomulaginu
þar sem þeir telja það ekki í gildi.
Krefjast þeir endurgreiðslu á gjaldi
því sem þeir inntu af hendi fyrir
síðasta sumar, sem var fyrsta ár á
samningstímabilinu til 2017. Síðan
átti samningurinn að framlengjast
um eitt ár í senn. Starir ehf, leigu-
taki Þverár, sem jafnframt leigja
tvö veiðisvæði við Hvítá, byggja
ákvörðun sína að hverfa frá sam-
komulaginu á ákvæði í samningum
sem segir að samkomulagið öðlist
ekki gildi nema allir samningsað-
ilar staðfesti það með undirskrift.
Veiðifélag Reykjadalsár staðfesti
ekki samninginn sem gerður var í
febrúarmánuði 2014.
Um málið var fjallað á aðalfundi
Veiðifélagsins Hvítár sl. mánudags-
kvöld. Í ályktun frá fundinum seg-
ir að félagsmenn lýsi fullri ábyrgð
á hendur Störum ehf, leigutök-
um Þverár, vegna þeirrar óvissu
sem þeir hafa skapað í veiðimál-
um í Borgarfirði. Ljóst sé að veiði-
leyfi á vatnasvæðinu fyrir komandi
veiðisumar hafa verið seld í trausti
þess að staðið verði við samninga
um upptöku neta á vatnasviði Hvít-
ár. Áform sem lögmaður Stara ehf
kynnti veiðifélaginu Hvítá um síð-
ustu áramót, þess efnis að Star-
ir ehf hyggist ekki efna samninga
við Veiðifélagið Hvítá, muni leiða
af sér mikla óvissu fyrir hérað-
ið verði netaveiði aftur tekin upp
í Hvítá. „Veiðifélagið Hvítá hef-
ur aflað lögfræðiálits um réttar-
stöðu félagsins vegna þeirra samn-
inga sem gerðir hafa verið, m.a. við
Starir ehf. Niðurstaða þess er að
samningarnir um upptöku netanna
séu í fullu gildi. Leigutökum Þver-
ár hlýtur að vera fullljóst að góð
veiði og ímynd veiðivatna skipt-
ir mestu þegar kröfuharðir veiði-
menn eru annars vegar. Gott sam-
starf veiðiréttareigenda í héraðinu
sl. 20 ár hefur skipað veiðiánum í
Borgarfirði í fremstu röð. Leigu-
takar Þverár stefna nú þessu sam-
starfi í hættu og það ber að harma,’’
segir í ályktun frá aðalfundinum.
Óðinn Sigþórsson formaður
Veiðifélags Hvítár sagði í samtali
við Skessuhorn að ákvörðun leigu-
takanna Störum ehf veki ekki síst
furðu vegna þess að annar samn-
ingur hafði verið gerður síðar á
árinu 2012 sem byggi á fyrri samn-
ingi þar sem inni er afnám leigu
netalagna. Þessir samningar séu
gagnvirkir að mati lögmanns Veiði-
félags Hvítar. Óðinn segir að Veiði-
félag Hvítár hafi ekki fallist á end-
urgreiðslu gjalds til Stara ehf, enda
talið að félagið sé bundið af sam-
komulaginu. Ítrekað hafi verið ósk-
að eftir því hvort staðið verði við
samninga vegna komandi veiði-
sumars en engin svör borist.
Nú verði beðið til eindaga
greiðslu fyrir upptöku netalagna
fyrir næsta sumar en hann er 1.
maí næstkomandi. Þá kemur í ljós
hvort Starir ehf muni láta verða af
því að standa ekki við gerða samn-
inga. Hinn kosturinn væri að fara í
dómsmál verði ekki staðið við sam-
komulagið en ósennilegt að veiði-
félagið taki þá ákvörðun. „Við telj-
um að samkomulagið hafi komið
öllum veiðiréttarhöfum til góða og
trúum því ekki að nú ætli einn aðili
að taka sig út úr og vilji taka til sín
allan ávinning af netaupptökunni,“
segir Óðinn Sigþórsson.
þá
Upptaka netalagna á vatnasviði Hvítár í óvissu