Skessuhorn - 12.03.2014, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2014
Svæðistónleikar Nótunnar 2014,
uppskeruhátíðar tónlistarskólanna
á Íslandi, fóru fram í Hjálmakletti
í Borgarnesi á laugardaginn. Tugir
þátttakenda frá tíu tónlistarskólum á
Vesturlandi, Vestfjörðum og Húna-
þingi vestra tóku þátt í tónleikun-
um, alls 25 atriði. Atriðin voru af
fjölbreyttum toga og bera tónlist-
arlífinu í skólunum gott vitni. Flutt
voru sígild og nýleg tónverk í bland
við frumsamin, bæði með söng og
hljóðfæraleik. Fram komu nem-
endur af öllum námsstigum skól-
anna og var ýmist um samspil eða
einleik að ræða. Að atriðum lokn-
um veitti dómnefnd, sem skipuð
var þeim Ólöfu Kolbrúnu Harðar-
dóttur söngkonu, Sigurði Helga
Oddssyni píanóleikara og Sigurði
Ingva Snorrasyni klarínettuleikara,
tíu atriðum sem sköruðu fram úr
sérstakar viðurkenningar og verð-
launagrip Nótunnar.
Af þessum tíu atriðum voru síð-
an þrjú valin til að verða fulltrú-
ar svæðisins á lokahátíð Nótunnar
sem fram fer í Hörpu sunnudaginn
23. mars næstkomandi. Þetta voru
Oliver Rähni frá Tónlistarskóla
Bolungarvíkur sem flutti tónverkið
Til Elísu eftir Beethoven á píanó,
Nikodem Júlíus Frach frá Tónlist-
arskóla Ísafjarðar sem flutti tón-
verkið Country eftir Dabsky á fiðlu
ásamt bræðrum sínum Makymili-
an og Nikolaj og loks Hljómsveit
Tónlistarskólans á Akranesi sem
flutti lagið „Þú komst við hjartað í
mér,“ eftir tónlistarmanninn Togga
við texta Páls Óskars Hjálmtýsson-
ar. Hljómsveitina skipa þau Hjördís
Tinna Pálmadóttir söngur/fiðla,
Margrét Brandsdóttir söngur/
fiðla, Harpa Rós Daníelsdóttir gít-
ar, Hjördís Brynjarsdóttir trompet,
Sigurlaug Rún Hjartardóttir söng-
ur/hljómborð, Sigurður Jónatan
Jóhannsson trompet, Guðjón Jós-
ep Baldursson trommur, Erlendur
Rúnar Reynisson saxófónn, Krist-
inn Bragi Garðarsson gítar, Ingi-
björg Elín Jónsdóttir saxófónn og
Hugi Sigurðarson á bassa. Stjórn-
endur hljómsveitarinnar eru þau
Eðvarð Rúnar Lárusson og Elfa
Margrét Ingvadóttir.
hlh
Hinni árlegu ræðukeppni Háskól-
ans á Bifröst lauk nýverið. Kepp-
endur að þessu sinni voru ell-
efu. Umsjón með ræðukeppninni
hafði Sigríður Arnardóttir (Sirrý)
en það voru nemendur við skólann
sem tóku þátt. Keppnin er hluti af
námskeiðinu framsögn og tján-
ing sem Sirrý hefur umsjón með.
Þar leiðbeinir hún nemendum í
framkomu og hvernig halda skuli
ræður. Sigurvegari í keppninni að
þessu sinni var Ása María Guð-
mundsdóttir en í öðru sæti varð
Selma Smáradóttir. Dómnefnd
keppninnar skipuðu þau Stella Sif
Jónsdóttir, Þórir Páll Guðjónsson,
Vilhjálmur Egilsson og Sigríður
Arnardóttir.
mm
Slysavarnafélagið Landsbjörg og
Öryggismiðstöðin standa nú í
marsmánuði fyrir átakinu „Glöggt
er gests augað.“ Þetta er annað árið
í röð sem einstaklingar eldri en 75
ára fá bréf þar sem þeim er boðin
heimsókn frá fulltrúum slysavarna-
deilda Landsbjargar. Í heimsókn-
um þessum er farið yfir öryggismál
og slysavarnir á heimilum, fólki að
kostnaðarlausu. Hvert heimili sem
þiggur heimsókn fær reykskynj-
ara að gjöf. Í fyrra voru 300 heim-
ili heimsótt. Í ljós kom að öryggis-
og slysavörnum var víða ábótavant,
þriðjungur heimila hafði t.a.m. ekki
eldvarnarteppi og reykskynjara
vantaði víða. Á fimmtungi heimila
vantaði handrið við útidyr og í ljós
kom að öryggisatriðum á baðher-
bergjum var mjög ábótavant.
Í átakinu sem nú stendur fyr-
ir dyrum verður sérstök áhersla
lögð á mikilvægi fallvarna á bað-
herbergjum, en niðurstöður síðasta
árs sýna að í mjög mörgum tilfell-
um vantar upp á að stamar mottur,
handföng og að baðstólar og fótstig
séu á baðherbergjum eldra fólks.
„Eitt af meginmarkmiðum átaksins
Glöggt er gests augað er að benda
eldri borgurum og aðstandendum
þeirra á mikilvægi þess að huga að
eigin öryggis- og slysavörnum og
grípa til fyrirbyggjandi aðgerða.
Auk þess telja aðstandendur átaks-
ins afar brýnt að opin og upplýs-
andi umræða um þessar slysavarn-
ir fari fram í samfélaginu til að bæta
lífsgæði eldra fólks í heimahús-
um,“ segir í tilkynningu um átakið
Glöggt er gests augað.
mm
Sigurvegarar ásamt dómnefnd.
Ræðukeppninni
lokið á Bifröst
Vilja stórbæta öryggi eldri borgara
Vel heppnaðir svæðistónleikar
Nótunnar í Hjálmakletti
Góð mæting var á tónleikana.
Tónlistarfólkið unga sem vann sér inn þátttökurétt á lokahátíð Nótunnar sem fram fer í Hörpu í lok mars.
Fulltrúar Auðarskóla í Dölum eða „Pink Panthers“ eins og þær kölluðu sig flytja
lagið Price Tag.
Fulltrúar Tónlistarskóla Borgarfjarðar, þeir Árni Hrafn Hafsteinsson, Guðjón Snær
Magnússon og Pétur Snær Ómarsson, leika lagið Autumn leaves.