Skessuhorn - 19.03.2014, Qupperneq 31
31MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2014
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500
HDS 5/11 U/UX
HDS 10/20-4 M/MX
HDS 8/18-4 C/CX
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
Sýning leikhóps FVA á gaman- og
söngleiknum Gauragangi við leik-
stjórn Hallgríms Ólafssonar virð-
ist ætla að slá í gegn, enda stór-
skemmtileg sýning hjá fjölbrauta-
skólanemum. Húsfyllir var á frum-
sýningu sl. laugardagskvöld og sal-
urinn þétt skipaður á sýningu á
mánudagskvöld. Leikritið sem er
eftir Ólaf Hauk Símonarson og
fjallar um unglinga og þeirra sýn
á lífið verður sýnt áfram í vikunni
í Bíóhöllinni. Leikhópunum und-
ir stjórn Hallgríms, betur þekkt-
um sem Halla Melló, hefur tek-
ist að gera mjög skemmtilega sýn-
ingu, vel leikna og sungna. Leik-
myndin er vídeoklippur, mikið
myndir af Skaganum, og þótt leik-
stjórinn hafi sjálfur leikið í Gaura-
gangi í Borgarleikhúsinu er þetta
allt öðruvísi sýning. Og það er
sama þótt fólk hafi séð þetta vin-
sæla leikrit annars staðar áður, að
alltaf heldur þessi beitti húmor
sem er rauði þráðurinn í gegnum
verkið. Enn og aftur kemur í ljós
á þessari sýningu hvað samfélagið
á Akranesi er ríkt af hæfileikafólki.
Talentarnir eru þarna innan um
en í heild er það leikhópurinn sem
slær í gegn og á hrós skilið fyrir
frammistöðu sína.
þá
Það er óhætt að segja að hvert stór-
virkið á sviði leiklistar reki ann-
að um þessar mundir. Að minnsta
kosti fjögur áhugaleikfélög hér á
Vesturlandi eru nú að sýna verk.
Eitt þeirra, Leikdeild Umf. Skalla-
gríms, frumsýndi síðastliðinn föstu-
dag söng- og gamanleikinn Stöng-
in inn. Leikritið var æft og er sýnt í
félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýr-
um. Undirritaður var á frumsýn-
ingu verksins og verður að segjast
eins og er að sjaldan hef ég skemmt
mér jafn vel á leiksýningu. Kannski
að ABBA sýning úti í Lundúnum
slái þetta við, en þar var vissulega
atvinnufólk á ferð. Frábært starf
hefur verið unnið í Lyngbrekku;
jafnt í leik, söng og dansi.
Starf leikdeildarinnar hvílir á
gömlum merg en allt frá árinu 1916
hefur hún fært á fjalirnar um 80
leikverk stór og smá. „Stöngin inn“
er bráðskemmtilegt nýtt verk eftir
Guðmund Ólafsson leikara. Höf-
undurinn fór á efri árum að semja
leikrit og má segja að það sé synd
að hann hafi ekki byrjað fyrr, því
verk þetta er hreint út sagt frábær-
lega skrifað og kryddað með heims-
þekktum slögurum hinnar sænsku
ABBA hljómsveitar. Stöngin inn var
frumsýnd í fyrsta sinn fyrir ári hjá
sameiginlegu leikfélagi Ólafsfjarðar
og Siglufjarðar og hlaut á síðasta ári
verðlaun sem athyglisverðasta leik-
sýning áhugaleikfélaganna og var
því í kjölfarið sýnt i Þjóðleikhúsinu
eins og hefð er fyrir.
Efni söng- og gamanleiks þessa
vísar í forngríska gamanleik-
inn Lýsiströtu þar sem konurnar
reyndu að fá karlana til að láta af
stríðsrekstri með því að setja þá í
kynlífsbann. Hér eru það hins veg-
ar eiginkonurnar í litlu bæjarfélagi
sem freista þess að fá karlana til að
sýna sér meiri athygli. Þeir eru jú
forfallnir knattspyrnuáhugamenn
og sem slíkir horfa á fótbolta í tíma
og ótíma og sniðganga konur sínar
á meðan. Konurnar deyja hins veg-
ar ekki ráðalausar og bindast sam-
tökum um að setja karlana í kynlífs-
svelti þar til þeir láta af þessu hátt-
arlagi sínu. Líf án fótboltans reynist
körlunum erfitt og sem slík heppn-
ast hugmynd kvennanna fullkom-
lega.
Leikarar í uppsetningu Umf
Skallagríms eru sextán talsins. Þar
af er helmingur að stíga sín fyrstu
spor á sviði. Ekki er með nokkru
móti hægt að sjá hverjir eru sviðs-
vanir og hverjir ekki því leikur-
inn er jafn og góður. Alls koma
svo yfir þrjátíu manns að sýning-
unni með einum eða öðrum hætti
baksviðs og í undirbúningi. Sam-
lestur hjá ungmennafélögum hófst
í byrjun desember. Í febrúar tóku
við sviðsæfingar í Lyngbrekku und-
ir stjórn Rúnars Guðbrandsson-
ar leikstjóra sem hlotið hefur frá-
bæra dóma fyrir sýningar sem hann
hefur stýrt á undanförnum árum.
Fjörug Abbalögin leika svo stórt
hlutverk eins og áður segir og var
leikhópurinn við stífar söngæfing-
ar hjá Theodóru Þorsteinsdóttur
skólastjóra í Tónlistarskóla Borgar-
fjarðar í janúar mánuði. Birna Haf-
Leikhópur FVA slær í gegn með Gauragangi.
Glæsileg sýning hjá
FVA á Gauragangi
Stöngin inn – aldeilis frábær
kvöldskemmtun
stein stýrði dansatriðum sem voru
býsna mörg í sýningunni. Þriggja
manna hljómsveit leikur svo undir
í sýningum undir stjórn Steinunn-
ar Pálsdóttur, en auk hennar skipa
hljómsveitina Halldór Hólm og
Magnús Kristjánsson.
Augljóst er að stjórn leikdeildar,
undir stjórn Olgeirs Helga Ragn-
arssonar, er ekki að víla hlutina fyr-
ir sér. Hún ræðst í hvert stórvirk-
ið á fætur öðru. Af þeim sýning-
um sem ég hef séð undanfarin ár,
sem þó eru býsna margar, verð ég
að segja að þessi er best. Handrit-
ið er hreint út sagt stórvel skrif-
að, hnittin tilsvör og kómísk atriði
sem hvert um sig gerir sýninguna
að samfelldum gleðileik. Verkið er
því bráðskemmtilegt og hvet ég alla
sem þess eiga kost að mæta í Lyng-
brekku og láta það ekki framhjá sér
fara. Til hamingju ungmennafélag-
ar.
mm