Skessuhorn - 23.04.2014, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2014
„Atvinnumöguleikarnir eru mikl-
ir víða, ekki síst hérna á Vesturlandi.
Atvinnulífið hrópar eftir menntuðum
iðnaðarmönnum. Ég sé það til dæm-
ist hjá fyrirtækjum á Grundartanga
og hjá Skaganum á Akranesi,“ segir
Hörður Baldvinsson einn verkefnis-
stjóra hjá viðamiklu tilraunaverkefni í
Norðvesturkjördæmi sem ætlað er til
eflingar menntunar. Hörður er kenn-
ari í málmiðnadeild Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi og starfsmað-
ur Símenntunarmiðstöðvar Vestur-
lands. Hörður vinnur í nánu sam-
starfi við Ingu Dóru Halldórsdótt-
ur framkvæmdastjóra Símenntunar-
miðstöðvarinnar og Geirlaugu Jó-
hannsdóttur sem er yfir átaksverk-
efninu. Hörður segir það mikla eftir-
spurn núna, til að mynda eftir málm-
iðnaðarmönnum, að strákarnir sem
nema í FVA geti fengið næga vinnu
með skólanum og séu eftirsóttir, þótt
þeir hafi ekki lokið námi. Starfsmenn
verkefnisins eru þessar vikurnar að
heimsækja fyrirtæki á Vesturlandi og
kynna verkefnið. Hann segir að meira
verði gert af því á næstunni. Skrif-
að var undir samning. um verkefnið
5. febrúar síðastliðinn milli mennta-
málaráðuneytisins og Háskólans á
Bifröst sem leiðir verkefnið undir for-
ystu Vilhjálms Egilssonar og mun það
standa í eitt ár. Markmið þess er m.a.
að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám
á vinnustað í Norðvesturkjördæmi,
auka samstarf atvinnulífs og fræðslu-
aðila um starfstengt nám, fjölga ein-
staklingum sem ljúka iðnnámi og efla
íslenskukunnáttu innflytjenda í kjör-
dæminu. Veigamikill þáttur í þessu
verkefni er raunfærnimat. Það er mat
á færni og þekkingu sem einstakling-
ur hefur aflað sér í starfi og eða frí-
tíma. Raunfærnimat getur mögulega
stytt verulega leiðina að löggiltum
starfsréttindum og er fyrsta skrefið
fyrir þá sem vilja auka möguleika sína
í atvinnulífinu.
Þörfin hefur verið greind
Áherslurnar í verkefninu byggja á ít-
arlegri greiningu á þörfum atvinnu-
rekenda og starfsmanna fyrir nám.
Sú greining var framkvæmd á síð-
asta ári með umfangsmikilli viðtals-
rannsókn og spurningakönnunum á
meðal íbúa í Norðvesturkjördæmi.
Niðurstöður leiddu m.a. í ljós mik-
inn skort á iðn- og tæknimenntuðu
fólki og þörf fyrir sérsniðin starfs-
tengd námskeið. Meginmarkmið til-
raunaverkefnisins árið 2014 eru að
efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á
vinnustað, auka samstarf atvinnu-
lífs og fræðsluaðila í kjördæminu
um starfstengt nám, fjölga einstak-
lingum sem ljúka iðnnámi og efla ís-
lenskukunnáttu innflytjenda. Í verk-
efninu eru sett skýr árangursmark-
mið og er stefnt að því að fjölga fyr-
irtækjum í kjördæminu um 120 sem
bjóða upp á starfstengt nám. Einn-
ig er stefnt að því að styðja 60 ein-
staklinga til að fara í raunfærnimat
og áframhald í námi í kjölfarið, m.a.
í iðngreinum, og fjölga innflytjend-
um sem geta haldið uppi samræðum
á íslensku um fjórðung.
Iðnnemum hefur
fækkað stórlega
Hörður segir að lögð verði sérstök
áhersla á það núna að fjölga mennt-
uðu fólki í mannvirkjagreinum og
véltæknigreinum. Ljóst sé að mark-
aðurinn kalli á mikinn fjölda iðnað-
armanna í þessum greinum á næstu
árum. Raunar sé það líka í fleiri grein-
um þar sem atvinnuhorfur séu góðar,
þar á meðal hjá matreiðslumönnum,
kokkum og þjónustutengdum. Þar
spilar inn í uppbygging í hótelum og
annarri ferðaþjónustu. Hörður segir
að mjög hafi dregið úr því að fólk færi
í iðnnám í bólunni svokölluðu og að-
draganda hennar. Eftir hrun hafi iðn-
aðarmenn síðan flykkst úr landi og
nú sé orðinn mikill skortur á þeim í
landinu. Hörður hefur gert athugun
á fjölda iðnnema á Vesturlandi þessi
misserin. Í ljós kemur að á sumum
svæðum eru ótrúlega fáir iðnnemar.
Þetta er áberandi á sjávarútvegsvæð-
inu Snæfellsnesi. Í Snæfellsbæ eru
einungis tveir iðnnemar, einn í Ólafs-
vík og annar á Hellissandi. Í Grund-
arfirði er einn iðnnemi og tveir í
Stykkishólmi. Staðan er betri á öðr-
um svæðum, en þó ekki góð. Á Akra-
nesi eru 18 iðnnemar, átta í Borgar-
nesi og þrír í Búðardal.
Lágt menntunarstig í
kjördæminu
Háskólinn á Bifröst ber ábyrgð á
verkefninu gagnvart mennta- og
menningarmálaráðuneyti en fram-
kvæmd þess verður unnin í náinni
samvinnu við símenntunarmiðstöðv-
ar og framhaldsskóla í kjördæminu. Í
kynningu á verkefninu segir m.a. að
Norðvesturkjördæmi sé einstaklega
auðugt af öflugum fræðslustofnun-
um en þar eru m.a. starfandi þrjár sí-
menntunarmiðstöðvar, fimm fram-
haldsskólar og þrír háskólar auk há-
skólasetra. Þrátt fyrir það er mennt-
unarstig í kjördæminu umtals-
vert lægra en á landsvísu samkvæmt
vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Ís-
lands. Hlutfall íbúa í kjördæminu á
aldrinum 16-74 ára sem aðeins hafa
lokið grunnmenntun er 48% en 37%
á landsvísu. 32% hafa lokið starfs- og
framhaldsnámi úr framhaldsskól-
um sem er þremur prósentustig-
um lægra en á landsvísu. 20% íbúa
í kjördæminu hafa lokið háskólanámi
en til samanburðar er hlutfallið 27%
á landsvísu.
Raunfærnimatið
Raunfærnimati er ætlað að meta þá
færni og þekkingu sem starfsfólk hef-
ur öðlast í starfi og frítíma. Það getur
mögulega stytt skólagöngu fólks og
þannig haft hvetjandi áhrif á fólk til
að hefja nám að nýju. Hörður seg-
ir að margt sé hægt að meta í raun-
færnimatinu. Svo sem það sem fólk
vinnur að í frítímanum, í sumarbú-
staðnum eða hvar sem er, námskeið
sem viðkomandi hefur sótt um tíð-
ina og þar fram eftir götunum. Fólk
getur snúið sér beint til Símenntun-
armiðstöðvar Vesturlands ef það hef-
ur áhuga á að kynna sér raunfærni-
mat en fyrsta skrefið í því ferli er ein-
mitt heimsókn til náms- og starfsráð-
gjafa sem þar starfar. Ef fyrirtæki vilja
koma á starfstengdum námskeiðum
þá geta þau einnig leitað til símennt-
unarmiðstöðvanna eftir aðstoð við
að skipuleggja nám og finna leið-
beinendur.
Ýmsum öðrum verkefnum verð-
ur síðan ýtt úr vör sem öll hafa það
að markmiði að hækka menntunar-
stig og efla samstarf fræðsluaðila í
kjördæminu. Starfstengd námskeið
í samstarfi við atvinnulífið er áætluð
að verði 120 talsins. Stefnt er að því
að 60 einstaklingar fari í raunfærni-
mat, 45 í áframhaldandi nám og 15
fyrrum framhaldsskólanemar hefji
nám að nýju.
þá
Englamömmur á Akranesi héldu
góðgerðartónleika í Tónbergi á
alþjóðlegum degi barnmissis 15.
október síðastliðinn. Vel tókst til
að safna fyrir bættri aðstöðu þeirra
sem missa börn sín og voru fjöl-
margir einstaklingar og fyrirtæki
sem lögðu málefninu lið. Engla-
mömmur afhentu loks kvennadeild
og kapellu Heilbrigðisstofnunar
Vesturlands á Akranesi og Akra-
neskirkju gjafir þriðjudaginn 15.
apríl síðastliðinn sem keyptar voru
fyrir ágóðann sem safnaðist á tón-
leikunum. Fæðingardeildin fékk að
gjöf kassa með ýmsum hlutum sem
nýtast vel þeim sem missa á með-
göngu eða rétt eftir fæðingu. Í kass-
anum eru meðal annars rammar
sem hægt er að nota til þrykkingar
handa- og fótafara, fallegir minn-
ingakassar undir það helsta sem
fylgir barninu, bæklingarnir „Þeg-
ar gleði breytist í sorg“ sem gefnir
eru út af Líf styrktarfélagi og nöfn
og símanúmer nokkurra Engla-
mamma. Þá fékk deildin einnig að
gjöf Lazy-boy stól sem nýtist til al-
mennra nota á deildinni en hægt er
að færa hann niður í kapellu ef þörf
er á. Kapellunni færðu þær að auki
skiptidýnu til nota í hliðarherbergi
kapellunnar. Akraneskirkju færðu
Englamömmur moldunarker eft-
ir Sigurð Aðalsteinsson og útsaum-
aða dúka, saumaða af Katrínu Guð-
mundsdóttur.
Þá fékk Kirkjugarður Akraness
peningagjöf til að bæta aðstöðu
í kirkjugarðinum við útför lítilla
barna. „Þetta er til að bæta litlu
smáatriðin sem þó skipta svo miklu
máli. Ef hlutirnir koma til með að
verða notaðir, verður fyllt á kass-
ann,“ sögðu Englamömmur við
afhendinguna. Þær bættu því við
að næstu verkefni þeirra væru að
leggja Hollvinasamtökum HVE lið
og safna fyrir einhverju sem nýtist
börn fæðast. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem Englamömmur gefa gjafir.
Í október 2012 gáfu þær tvo minni
blómavasa og tvo litla standa fyrir
blómakransa, sem nýtast í útförum
lítilla barna. Þær gjafir voru gefn-
ar í samvinnu við Steðja og Mód-
el. Englamömmur vilja að lokum
koma á framfæri þökkum til Blikk-
smiðjunnar, Topp útlits, Húsgagna-
hallarinnar, Sigurðar V. Aðalsteins-
sonar og Katrínar Guðmundsdótt-
ur.
grþ
Formannsskipti urðu á aðalfundi
Björgunarsveitarinnar Brákar í
Borgarnesi þann 15. apríl síðast-
liðinn. Pétur Guðmundsson lét af
formennsku í stjórn sveitarinnar
en við því embætti tók Fannar Þór
Kristjánsson. Pétur hefur gengt
formennsku hjá sveitinni undanfar-
in fjögur ár en Fannar hefur á sama
tíma verið varaformaður. Á fundin-
um var Pétri þakkað fyrir vel unnin
störf og Fannari óskað velfarnaðar í
nýju starfi. Aðrar breytingar í stjórn
Brákar eru þær að Sigurður Gunn-
arsson hættir og í stað hans kemur
Margrét Hildur Pétursdóttir sem
áður var varamaður. Ólöf Kristín
Jónsdóttir tekur við varamannssæt-
inu í hennar stað.
grþ
Fannar Þór Kristjánsson (t.v.) og Pétur Guðmundsson.
Formannsskipti
hjá Bsv. Brák
Fulltrúar Englamamma, kvennadeildar HVE á Akranesi og Akraneskirkju við
afhendingu gjafanna.
Englamömmur færðu góðar gjafir
Atvinnulífið hrópar eftir menntuðum
iðnaðarmönnum og starfsmenntun
- spjallað við Hörð Baldvinsson sem vinnur á vegum Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands að tilraunaverkefni
um eflingu menntunar í Norðvesturkjördæmi.
Það er ekki síst málmiðnaðarmenn sem vantar nú á vinnumarkaðinn.
Ljósmynd Friðþjófur Helgason.
Hörður Baldvinsson verkefnisstjóri. Ljósm. þá.