Skessuhorn - 23.04.2014, Qupperneq 13
13MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2014
Verts
Dag ur í lífi...
Nafn: Guðrún Kristjánsdóttir
Starfsheiti/fyrirtæki: Annar af
tveimur vertum í Edduveröld í
Borgarnesi og smurbrauðs jómfrú
í Geirabakarí.
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý í
Borgarnesi, er gift og á tvær dæt-
ur.
Áhugamál: Það er vinnan og úti-
vera, sérstaklega úti í náttúrunni.
Vinnudagurinn: þriðjudagurinn
15. apríl.
Mætt til vinnu og fyrstu verk?
Ég var mætt í Geirabakarí klukk-
an 6:40. Fyrstu verk voru að setja
á mig svuntu, skera rúnstykki og
smyrja þau.
Klukkan 10? Þá var ég búin að
smyrja allt sem smurt er í Geira-
bakarí og komin upp í Edduver-
öld þar sem ég fór að undirbúa
hádegismat fyrir okkar gesti.
Hádegið? Þá var ég að framreiða
kjötbollur og meðlæti ásamt mínu
starfsfólki til okkar viðskiptavina.
Bollurnar hafði ég sjálf búið til
um morguninn.
Klukkan 14? Þá var ég að búa til
ananasfrómas á rjómatertu og var
að setja á hana í eldhúsinu. Hún
var svo sett fram í kökukælinn til
sölu.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti að vinna kl. 20:30. Það síð-
asta sem ég gerði var að gera upp
kassann og ganga frá uppgjör-
inu ásamt því að fara yfir lokaverk
dagsins með starfsfólki.
Fastir liðir alla daga? Það eru
alltaf einhverjir fastir liðir. Föst
verk eru meðal annars að hafa til
hádegismatinn, að baka til að eiga
og geta sett fram. Svo þarf auðvit-
að að svara tölvupóstum, gera til-
boð og svo framvegis.
Hvað stendur upp úr eftir
vinnudaginn? Það stendur upp-
úr gleði yfir því að geta tekið á
móti fólki og veitt því upplýsing-
ar og leiðbeiningar um svæðið
okkar og það sem við höfum upp
á að bjóða hér í héraðinu. Einn-
ig stendur upp úr að geta fram-
reitt góðan mat fyrir þá gesti sem
hingað koma.
Var dagurinn hefðbundinn?
Hann var í lengri kantinum.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég byrjaði hér í Edduver-
öld fyrir ári síðan en hafði verið
áður uppi á Hamri. Í þessu starfi
sem veitingahúsarekandi hef ég
verið í fjögur ár, þetta er fimmta
árið sem ég er að fara inn í núna.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Já mér sýnist það nú. Framtíðar-
starfið er í ferðaþjónustugeiran-
um. Maður veit aldrei hvað fram-
tíðin ber í skauti sér en í mínum
huga myndi ég segja það.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Já, ég geri það, annars væri
ég ekki í þessu.
Eitthvað að lokum? Að vakna til
skemmtilegs dags er það sem gef-
ur lífinu gildi, maður veit aldrei
hvað dagurinn ber í skauti sér.
Maður tekur því á móti deginum
með gleði, það er ekkert sjálfgef-
ið að vakna.
Vantar hross og nautgripi til slátrunar.
Forðist biðlista í haust.
Í samræmi við stefnu félagsins um ráðstöfun
tekjuafgangs, greiddi það bændum í mars sl. 2,7%
viðbót ofan á afurðaverð síðasta árs
fyrir allar kjöttegundir.
Sláturpantanir í síma 480 4100.
Sláturfélag Suðurlands
Selfossi
Hrossa- og nautgripabændur!!!
Sýning
Á sumardaginn fyrsta 24. apríl n.k. verður
sýndur afrakstur listnámskeiða hjá
Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi.
Sýningin verður í húsnæði miðstöðvarinnar að
Bjarnarbraut 8 í Borgarnesi og verður
opin þann dag frá kl. 14-17.
Allir velkomnir!
Merki fyrir
List án landamæra.
Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis
Aðalfundur
Aðalfundur Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis
verður haldinn 30. apríl kl. 20, í húsnæði Hvers endurhæfingar-
húss, Suðurgötu 57 (gamla Landsbankahúsið) efstu hæð.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar,
Rannveig Björk Gylfadóttir kynnir starf sitt í Ljósinu og kynntar
verða hugmyndir um breytingar á starfsemi félagsins.
Áætlaður tími um 1 ½ klst.
Munið líka eftir facebook-síðu félagsins.
Krabbameinsfélagið
Pantone: Reflex blue
CMYK: C90 M70 K30
Pantone: Reflex blue
CMYK: C90 M70 K30
Pantone: Reflex blue
CMYK: C90 M70 K30
Pantone: Reflex blue
CMYK: C90 M70 K30
Pantone: Reflex blue
CMYK: C90 M70 K30
Icelandic
Cancer Society
Icelandic
Cancer Society
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500
Í Frystiklefanum í Rifi á Snæfells-
nesi hafa síðustu fjögur árin verið
sett upp fimm leikrit sem öll hafa
hlotið frábærar viðtökur gagnrýn-
enda og áhorfenda. Leikhúsið hef-
ur til að mynda verið tilnefnt til
Grímuverðlaunana og menning-
arverðlauna DV. Nú hefur Kári
Viðarsson leikari og leikhússtjóri
Frystiklefans ákveðið að gera enn
betur og bjóða einnig upp á sýn-
ingar fyrir erlenda ferðamenn. „Ég
er byrjaður að æfa fyrir sumarið en
það stendur til að setja upp tvær
mismunandi sýningar í sumar og
verða báðar leiknar á ensku og ís-
lensku. Um er að ræða tvær sýn-
ingar sem hafa verið sýndar áður í
Frystiklefanum. Annars vegar gam-
anleikurinn Hetja, sem er byggð-
ur á Bárðarsögu Snæfellsáss. Þetta
var mjög vinsæl sýning, hún var
frumsýnd 2010 og sýnd til 2012 og
nú ætla ég að taka hana upp aftur.
Hins vegar er það geimverusýning-
in 21:07 sem fjallar um geimver-
urnar sem áttu að lenda á jöklin-
um 1993,“ útskýrir Kári sem leikur
í báðum sýningunum.
„Ég er að æfa á ensku og íslensku
þannig að nú geta bæði erlend-
ir ferðamenn og Íslendingar séð
sýningarnar. Þetta eru um klukku-
stundarlangar sýningar og henta
því vel sem stopp eða afþreying,
til dæmis fyrir fólk sem er á ferða-
lagi. Ég verð með fastar sýning-
ar nánast hverja helgi í allt sumar.
Sýningar á Hetju hefjast um miðj-
an maí og standa fram í lok ágúst.
Hin sýningin verður sýnd um miðj-
an júní fram í júlí, í um það bil einn
mánuð.“ Kári bætir því við að hóp-
ar geti einnig sérpantað sýning-
ar og hann muni þá setja þær upp
eftir samkomulagi. Miðapantanir
ásamt öllum upplýsingum um við-
burði og sýningar Frystiklefans má
finna bæði á ensku og íslensku á
nýrri heimasíðu hans, www.frysti-
klefinn.is.
„Þá má að lokum geta þess að ár-
legir sumartónleikar Frystiklefans
verða núna á sumardaginn fyrsta.
Nú ætlar Kaleo að vera með tón-
leika í salnum og við vonumst til að
sjá sem flesta,“ segir Kári Viðarsson
að lokum.
grþ
Kári Viðarsson leikari.
Leikið á ensku og íslensku
í Frystiklefanum
Frystiklefinn í Rifi.