Skessuhorn - 10.09.2014, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
3 Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Fimmtudaginn 11. september
munu organistarnir Sveinn Arn-
ar Sæmundsson og Jón Bjarnason
leika tónlist úr ólíklegustu áttum á
orgel Akraneskirkju. Flutt verða lög
úr kvikmyndum og sjónvarpsþátt-
um en einnig þekkt dægurlög og
klassísk verk. Tónleikarnir hefjast
kl. 20 og er aðgangseyrir kr. 1.500
en Kalmansvinir greiða kr. 1.000.
Frítt er fyrir 16 ára og yngri.
Þeir félagar taka einnig á móti
krökkum úr 2.- 4. bekk grunnskól-
anna á Akranesi um morguninn og
bjóða upp á tónleika í kirkjunni.
Orgelið er undrahljóðfæri og það
er fátt sem ekki er hægt að spila á
það. -fréttatilkynning
Tónlistarfélag Borgarfjarðar hef-
ur 48. starfsár sitt laugardaginn 20.
september næstkomandi. Guðrún
Ingimarsdóttir sópransöngkona
kemur þá fram á tónleikum í Reyk-
holtskirkju ásamt rússneska selló-
kvartettinum Rastrelli. Dagskráin
verður lífleg; rússnesk tónlist, ís-
lensk sönglög, jazz- og dægurlög,
tangóar og fleira í þeim dúr.
Guðrún er Borgfirðingum að
góðu kunn en hún er fædd og upp-
alin á Hvanneyri. Hún stundaði
söngnám við Söngskólann í Reykja-
vík og framhaldsnám m.a. í London
og Stuttgart. Síðan námi lauk hef-
ur Guðrún starfað sem söngkona í
Þýskalandi og fleiri löndum á meg-
inlandi Evrópu.
Rastrelli sellókvartettinn er
skipaður þeim Kira Kraftzoff, Ser-
gej Drabkin, Mikhail Degtjareff
og Kirill Timofeev.
Tónleikarnir í Reykholts-
kirkju hefjast kl. 16.00. Aðgangs-
eyrir er 2000 krónur, 1000 krón-
ur fyrir eldri borgara og frítt fyr-
ir félaga og börn. Ekki er tekið við
greiðslukortum.
-fréttatilkynning
Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands stóð sl. mánudag fyrir móttöku
til heiðurs þátttakendum á Ólymp-
íuleikum ungmenna sem fram fóru í
Nanjing í Kína 16. - 28. ágúst s.l. Á
leikunum voru íslenskir keppendur í
sundi og knattspyrnu. U15 ára lands-
lið drengja í knattspyrnu náði þeim
eftirtektarverða árangri að tryggja
sér bronsverðlaun á leikunum. Er
það frábær árangur og því er vert að
fagna sérstaklega, segir í tilkynningu
frá íþrótta- og ólympíusambandinu.
Þess má geta að Borgfirðingurinn
og Framarinn Helgi Guðjónsson lék
stórt hlutverki í íslenska liðinu, var
m.a. markahæsti maður liðsins.
Við móttökuna ávörpuðu hóp-
inn þeir Lárus L. Blöndal forseti
ÍSÍ, Andri Stefánsson sviðsstjóri
Afreks- og Ólympíusviðs ÍSÍ,
Hörður Oddfríðarson formað-
ur Sundsambands Íslands og Geir
Þorsteinsson formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands. Sýnt var
myndband með svipmyndum frá
þátttöku Íslendinga á leikunum og
forseti ÍSÍ, Lárus L. Blöndal og
framkvæmdastjóri ÍSÍ, Líney Rut
Halldórsdóttir, afhentu þátttak-
endum viðurkenningu fyrir þátt-
tökuna frá ÍSÍ og Alþjóða Ólymp-
íunefndinni.
þá
Fimmtudaginn 30. ágúst sl. hélt
hópur Samfylkingarfólks í sína
árlegu sumarferð og var ferðinni
heitið í þetta sinn í Hvalfjörðinn
og á Akranes. Snemma um morg-
uninn hélt um 70 manna hópur af
stað og var ferðinni fyrst heitið á
Hlaðir þar sem Gaui litli leiddi
hópinn um Hernámssetrið. Það-
an var haldið í Fannahlíð þar sem
Samfylkingarfélagið á Akranesi
tók á móti hópnum og bauð þar
Guðbjartur Hannesson hópinn
velkominn.
Eftir stutt stopp í Fannahlíð var
tvennt í boði og ákvað hluti hóps-
ins að halda í gönguferð á Akra-
fjall undir leiðsögn heimamanns
á meðan hinn hlutinn hélt áleið-
is á Skagann þar sem heimsótt-
ir voru nokkrir staðir. Byrjað var
á að heimsækja Hilmar í Akra-
nesvita þar sem hann bauð uppá
kynningu og tónlist en Bergþóra
og Rósa Sveinsdætur sungu og
spiluðu fyrir hópinn við góðar
undirtektir. Þaðan var svo haldið
í Gallerí Urmul þar sem hönnun
heimamanna var skoðuð og ferða-
löngum bauðst að kaupa lífræn
matvæli í nestispakkann. Í kjölfar-
ið var farið með hópinn á Langa-
sand og Aggapall þar sem sagt var
frá Bláfánaverkefninu og er óhætt
að segja að hópurinn var afar hrif-
inn af þessari frábæru strönd sem
Skagamenn eiga og ekki skemmdi
fyrir Flórídaveðrið sem heima-
menn buðu uppá.
Af Langasandi var haldið í
Garðalund þar sem boðið var uppá
kaffi og kleinur á meðan Hallbera
Jóhannesdóttir fór yfir sögu skóg-
ræktarinnar ásamt því að lesa úr
bókinni sinni “Á ferð og flugi með
ömmu.”
Þaðan var farið í sund og á Safn-
asvæðið þar sem tekið var á móti
hópnum og hann leiddur í gegnum
Byggðasafnið og sagt frá því helsta
sem bar fyrir augu.
Dagurinn var svo kláraður í
Fannahlíð þar sem grillað var fyrir
hópinn, Árni Páll formaður flokks-
ins hélt ávarp, sungið var saman,
sagðar sögur og hlegið ásamt því
sem Rósa Sveinsdóttir tók nokkur
lög af nýrri plötu sinni.
Gaman er frá því að segja að all-
ir voru afar ánægðir með ferðina og
kvaddi hópurinn saddur og sæll. Þau
orð voru m.a. látin falla þegar fólk var
að stíga upp í rútu að það kom fólki á
óvart að hægt væri að skoða og gera
svona margt skemmtilegt á Skagan-
um.
Við kvöddum því hópinn með
þakklæti fyrir komuna og vorum
mjög ánægð með hvernig til tókst.
Þetta hefði ekki gengið svona vel
nema með hjálp þeirra sem aðstoð-
uðu okkur við að taka á móti hópn-
um á Skaganum eins og Hilmar og
Hannibal í Akranesvita, stelpurn-
ar í Gallerí Urmul, Ingibjörg á Safn-
asvæðinu og Hallbera í Garðalundi.
Ingibjörg Valdimarsdóttir og
Valgarður Lyngdal Jónsson,
bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar
á Akranesi.
Helgi Guðjónsson, til vinstri á myndinni, með sína viðurkenningu.
Móttaka til heiðurs
íslensku keppendunum í
Ólympíuleikum ungmenna
Fjölskyldutónleikar
Kalmans í Akraneskirkju
Sumarferð Samfylkingarinnar
um Hvalfjörð og Akranes
Guðrún Ingimars ásamt
rússneskum sellókvartett