Skessuhorn - 05.11.2014, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2014
Rúta skemmd
AKRANES: Skemmdarverk
voru unnin á rútu sem stóð fyrir
utan bifreiðaverkstæði við Æg-
isbraut á Akranesi um næst-
síðustu helgi, dagana 24.-26.
október. Gluggi var spenntur
upp til að komast inn í rútuna
og áklæði á fimm sætum skorið
með eggjárni. Tjón vegna þessa
er talsvert. Lögreglan á Akra-
nesi biður þá sem kunna að búa
yfir vitneskju um hverjir voru
þarna á ferð að hafa samband í
síma lögreglunnar, 444 0111.
–þá
Fjármissir í
skurðum
LBD: Bóndi í Borgarbyggð
tilkynnti til lögreglu að hann
hefði frá því í haust misst sex
kindur og sex lömb ofan í skurði
hjá sér og hefði féð allt drep-
ist. Taldi bóndinn víst að ná-
grannahundar hefðu hrakið féð
í skurðina sem voru hálffullir af
vatni. Að sögn lögreglu könn-
uðust bændur í nágrenninu ekki
við að þeirra hundar hefðu ver-
ið að atast í fé og hrekja það í
skurði.
–þá
Preststúnið selt
REYKHÓLASV: Fyrr í mán-
uðinum auglýsti Kirkjumála-
sjóður prestsfjárhúsin og
prests túnið til sölu á almenn-
um markaði en báðar eignirn-
ar eru á jaðri þorpsins á Reyk-
hólum. Eignirnar voru áður
hluti af hlunnindum prestsins
á Reykhólum þar sem hann gat
haldið fé og verið með beit en
eignirnar hafa ekki verið nýtt-
ar til þess í langan tíma. Prests-
fjárhúsin voru byggð 1960 og
er áföst hlaða við þau. Útihúsin
koma til með að hýsa safnkost
Bátasafns Breiðafjarðar fram á
mitt næsta sumar. Þau standa á
eignarlóð sem er 3.240 fermetr-
ar og lóðin er skráð sem iðnað-
ar- og athafnalóð hjá Fasteigna-
mati ríkisins. Preststúnið er
ræktað land, rétt um 5,5 hektar-
ar að stærð. Að sögn Ingibjarg-
ar Birnu Erlingsdóttur, sveit-
arstjóra Reykhólahrepps gerði
hreppurinn tilboð í eignirnar
upp á 1.800 þúsund og til vara
upp á kr. 1.200 þúsund í ein-
göngu fjárhúsið og tilheyrandi
lóð þess. „Þar sem um eignar-
lóðir er að ræða og þær staðsett-
ar í og við þéttbýli Reykhóla, þá
tók sveitarstjórn ákvörðun um
að gera tilboð í eignirnar og
stækka þar með land sveitar-
félagsins um þéttbýlið,“ segir
Ingibjörg Birna. Hún bætir því
við að fimm aðilar hafi gert til-
boð í eignirnar ásamt sveitarfé-
laginu og einn þeirra hafi hlotið
hnossið. Ekki hefur komið fram
opinberlega hver það var.
-grþ
Hjálmar og
félagar selja
ÍSLAND: Hvanneyringurinn
Hjálmar Gíslason, stofnandi og
framkvæmdastjóri Datamarket,
greindi frá því í liðinni viku að
fyrirtækið Qlik hafi keypt allt
hlutafé í Datamarket. Sjálfur
átti Hjálmar stóran hlut í fyr-
irtækinu. Söluverðið var 1,6
milljarðar króna. Qlik er amer-
ískt viðskiptagreindarfyrirtæki.
Datamarket verður áfram starf-
rækt á Íslandi og stefnir Qlik að
vexti þess en sérhæfing byggir
m.a. á framsetningu opinberra
gagna á myndrænan hátt. –mm
Century kaupir
álver af Alcoa
NORÐURÁL: Century Alum-
inum, móðurfélags Norðuráls,
hefur eftir nýleg viðskipti eignast
Mt. Holly álverið í Suður Kar-
ólínu í Bandaríkjunum að fullu.
Century átti áður tæplega 50%
hlutafé en keypti á dögunum hinn
helminginn eða 50,3% hlut, sem
Alcoa átti áður. Kaupverðið er
67,5 milljónir bandaríkjadollara.
Um 600 manns starfa í álverinu
og er framleiðslugeta 229 þús-
und tonn á ári. Til samanburðar
má nefna að Norðurál framleiðir
um 290 þúsund tonn á ári. Í til-
kynningu segir Mike Bless, for-
stjóri Century Aluminum m.a.
að Century þekki vel til rekstrar-
ins og tækifæri felist í því að ál-
verið verði alfarið í eigu Century
Aluminum. Þá þekki starfsmenn
Mt. Holly verksmiðjunnar vel til
þeirrar miklu áherslu sem lögð er
á öryggis- og gæðamál innan fyr-
irtækja Century Aluminum. –þá
Aflatölur fyrir
Vesturland
25. 31. október.
Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu:
Akranes 3 bátar.
Heildarlöndun: 4.012 kg.
Mestur afli: Stapavík AK: 2.290
kg í tveimur löndunum.
Arnarstapi 6 bátar.
Heildarlöndun: 87.291 kg.
Mestur afli: Kristinn SH:
30.454 kg í fjórum löndunum.
Grundarfjörður 9 bátar.
Heildarlöndun: 216.403 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
61.575 kg í einni löndun.
Ólafsvík 8 bátar.
Heildarlöndun: 61.371 kg.
Mestur afli: Brynja SH: 18.441
kg í fjórum löndunum.
Rif 9 bátar.
Heildarlöndun: 158.047 kg.
Mestur afli: Saxhamar SH:
97.727 kg í tveimur löndunum.
Stykkishólmur 5 bátar.
Heildarlöndun: 49.214 kg.
Mestur afli: Hannes Andrés-
son SH: 27.178 kg í fimm lönd-
unum.
Topp fimm landanir á tíma
bilinu:
1. Hringur SH – GRU:
61.575 kg. 29. október
2. Grundfirðingur SH – GRU:
54.520 kg. 25. október
3. Saxhamar SH – RIF:
52.895 kg. 25. október
4. Helgi SH – GRU:
46.587 kg. 26. október
5. Saxhamar SH – RIF:
44.832 kg. 31. október
mþh
Í Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranes er starfandi forvarnaklúbb-
ur. Í síðustu viku framkvæmdu fé-
lagar í honum athugun á því hversu
auðvelt er fyrir unglinga að kaupa
tóbak. Sjálfboðaliðar voru fengnir
úr hópi nemenda undir sjálfræðis-
aldri, 16 og 17 ára gamlir. Fóru þeir
á alla útsölustaði tóbaks á Akranesi
sem eru sjö að tölu. Í 22 heimsókn-
um á sölustaðina fengu þeir af-
greiðslu í samtals tíu skipti á nef-
tóbaki á öllum sjö afgreiðslustöð-
unum. Talsmenn forvarnahóps-
ins komu í heimsókn á ritstjórn
Skessuhorns og greindu frá þessu.
Það voru þeir Þorsteinn Bjarki Pét-
ursson, Guðmundur Brynjar Júlí-
usson og Hlynur Snær Sæmunds-
son. Þeir furðuðu sig á því hversu
auðvelt það sé fyrir unglinga undir
18 ára aldri að nálgast tóbak.
Aðspurðir segja þeir að tóbaks-
neysla sé og hafi verið talsverð í
Fjölbrautaskóla Vesturland. Gera
þeir ráð fyrir að í heildina sé hún
svipuð milli ára en sú breyting hafi
orðið í seinni tíð að notkun neftób-
aks bæði í vör og munn hafi auk-
ist en reykingar minnkað að sama
skapi. Talsvert sé um að stúlkur
noti einnig neftóbakið. Þorsteinn
Bjarki og Hlynur Snær eru nem-
endur á þriðja ári og Guðmund-
ur Brynjar á fjórða ári. Sá síðast-
nefndi segir sjaldséða sjón núorð-
ið að nemendur reyki á skólalóð en
það hafi tíðkast nokkuð þegar hann
var að byrja í skólanum. Þeir fé-
lagar sögðu að forvarnaklúbburinn
myndi í vetur beita sér í sameigin-
legu átaki gegn nef- og munntób-
aksnotkun ásamt íþróttafélögunum
á Akranesi og Akraneskaupstað.
þá
Í sumar var gamla Hvítárvallaveg-
inum, sem lengi var þjóðvegur 1
um Borgarfjörð, lokað ofan Sel-
eyrar, suður af Borgarnesi. Veg-
inum var lokað með tveimur hlið-
um, öðru út við Vesturlandsveg og
núverandi þjóðveg 1 og hinu aust-
ar í landi Skógarkots, sem er ný-
býli úr landi Grjóteyrar. Það var
Orkuveita Reykjavíkur sem kost-
aði uppsetningu og gerð hliðanna
sem lokar veginum en engar girð-
ingar eru tengdar hliðunum þann-
ig að vegurinn er eingöngu lokað-
ur fyrir ökutækjum. Ekki eru allir
sáttir við þessi hlið og barst sveit-
arstjórn Borgarbyggðar nýlega
kvörtun frá íbúa í Borgarnesi vegna
þeirra. Í fundargerð byggðarráðs sl.
föstudag segir að sveitarstjóri hafi
greint frá svörum Guðmundar B.
Guðmundssonar læknis og eiganda
Skógarkots varðandi lokun á vegi
ofan Seleyrar. Landeigandi greinir
frá ástæðum fyrir lokun fyrir akandi
umferð og bendi m.a. á að þar sem
vegurinn sé í hans eigu beri hann
ábyrgð á umferð um hann.
Guðmundur í Skógarkoti segir að
með tilkomu Borgarfjarðarbraut-
ar hafi gamli þjóðvegurinn farið í
hendur landeigenda. Hann segist
hafa rætt ástand vegarins við for-
svarsmenn OR og af þeirra frum-
kvæði hafi hliðin verið sett upp,
enda liggi vegurinn um vatnsvernd-
arsvæði. Guðmundur sagðist í sam-
tali við Skessuhorn lengi hafa hugs-
að til þess að rétt væri að loka veg-
inum til að fyrra sig ábyrgð ef tjón
yrði á ökutækjum sem um veginn
færi og jafnvel slys. Guðmundur
sagðist aðeins vita af tveimur mönn-
um sem væru óánægðir með hlið-
in og einnig vegna nýlegrar lokun-
ar innkeyrslu inn á svæðið við við-
snúningsplan sem Vegagerðin hafi
látið gera. „Það hefur enginn haft
samband við mig út af þessu, frek-
ar hafa menn kosið að beina klögu-
málum sínum til sveitarstjórnar. Ég
tek það fram að hliðið út við Þjóð-
veg eitt og við viðsnúningsplan eru
mér með öllu óviðkomandi enda
landið ekki í minni eigu þar,“ seg-
ir Guðmundur í Skógarkoti.
þá
Um 110 manns sóttu
málþing Faxaflóa-
hafna sf. með not-
endum, en þingið var
haldið í Hörpu um
miðja síðustu viku.
Að loknum ávörp-
um Kristínar Soffíu
Jónsdóttur formanns
stjórnar Faxaflóa-
hafna sf., Gísla Gísla-
sonar, hafnarstjóra,
Bergþóru Bergsdótt-
ur, Davíðs Stefánsson-
ar og Davíðs Samúels-
sonar voru fyrirspurn-
ir úr sal. Meðal annars
var spurt um mögulega
afleidda starfsemi vegna fyrirhug-
aðrar starfsemi Silicor á Grundar-
tanga, aðstöðu haftengdrar ferða-
þjónustu í Suður- og Vesturbugt,
fyrirhugaðar framkvæmdir í „hol-
unni“ við hlið Hörpu, tekjur af far-
þegum vegna haftengdrar ferða-
þjónustu og skemmtiferðaskipum
og skipulagsmál á Kassagerðar-
reit svo dæmi séu
nefnd.
Stjórn Faxaflóa-
hafna heldur mál-
þing í októbermán-
uði árlega þar sem
notendur eru upp-
lýstir um starfsemi
og ýmis mál. Gísli
Gíslason hafnar-
stjóri sagði m.a.
vegna málþingsins
og fyrirspurnar frá
Skessuhorni varð-
andi málefni Sili-
cors á Grundar-
tanga að þess væri
beðið að skipulags-
málin yrðu frágengin hjá sveitar-
stjórn Hvalfjarðarsveitar svo for-
svarsmenn Silicor gætu lokið fjár-
mögnun. þá
Hlið á gamla Hvítárvallaveginum út við Þjóðveg eitt, Vesturlandsveg.
Vegi lokað við Seleyri
Vel sótt málþing Faxaflóahafna
Hlynur Snær Sæmundsson, Guðmundur Brynjar Júlíusson og Þorsteinn Bjarki Pétursson frá forvarnaklúbbi FVA.
Unglingar fengu á öllum af
greiðslustöðum keypt tóbak