Læknablaðið - 15.11.2002, Qupperneq 3
FRÆDIGREINAR
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
799 Ritstjórnargreinar:
Að grípa í skottið á skugganum
Emil L. Sigurðsson
gQ3 Hormónameðferð og breytingaskeið kvenna
Jens A. Guðmundsson
807 Henoch-Schönlein purpura: Innlagnir á LSH 1984-2000
Valtýr Stefánsson Thors, Jón R. Kristinsson, Þröstur Laxdal,
Guðmundur Jónmundsson, Viðar Ö. Eðvarðsson,
Ásbjörn Sigfússon, Haraldur Briem, Ásgeir Haraldsson
Sjúkdómurinn einkennist af æðabólgu og kemur langoftast fram hjá börnum.
Rannsakaðir voru allir sjúklingar 16 ára og yngri sem höfðu fengið þessa
greiningu, en það voru alls 101. Áhugavert er að sjúkdómurinn er algengastur
meðal tveggja til fimm ára gamalla barna og gæti skýrst af því að algeng sýking
væri ein kveikjan að honum.
815 Vefjagigt og kvíðaröskun
Sigurður Thorlacius, Sigrujón B. Stefánsson,
Mohammed I. Ranavaya, Robert Walker
Orsök vefjagigtar er óljós en greining hennar byggist á því að sjúklingurinn hafi
útbreidda verki og þreifieymsli í vöðvum. Ýmis önnur einkenni geta fylgt -
truflaður nætursvefn, óeðlileg þreyta, kvíði og skert einbeiting. Sömu einkenni
geta fylgt kvíðaröskun og tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna hvort
vefjagigt tengdist öðrum sjúkdómum, einkum kvíðaröskun.
821 Estrógenvirk efni í plöntum og áhrif þeirra á heilsu manna
Elín V. Magnúsdóttir
Hér er gefið stutt yfirlit yfir þau heilsufarslegu áhrif sem mest hafa verið
rannsökuð í tengslum við plöntuestrógena, svo sem verndandi áhrif gegn
ákveðnum tegundum krabbameina, beinþynningu og hjarta- og æðasjúkdómum.
829 Sjálfkrafa hvarf á meinvörpum nýrnafrumukrabbameins í heila
og fleiðruholi. Tvö sjúkratilfelli
Tómas Guðbjartsson, Ásgeir Thoroddsen, Þorsteinn Gíslason,
Bjarni A. Agnarsson, Kjartan Magnússson,
Guðmundur Geirsson, Guðmundur V. Einarsson
Lýst er sjaldséðum fyrirbærum sem greindust hér á landi. Rúmur þriðjungur
sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein er með fjarmeinvörp og eru lífslíkur
lakar, en í einstaka tilfellum geta meinvörðin minnkað eða horfið alveg.
Ofangreindir sjúklingarnir eru báðir á lífi í dag og við góða heilsu.
832 Klínískar leiðbeiningar. Sykursýki af tegund tvö
Starfshópur Landlæknisembættisins
11. tbl. 88. árg. Nóvember 2002
Aðsetur
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfasími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu
http://lb.icemed.is
Ritstjórn
Emil L. Sigurðsson
Hannes Petersen
Jóhannes Björnsson
Karl Andersen
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@icemed.is
Auglýsingastjóri og ritari
Ragnheiður K. Thorarensen
ragnh@icemed.is
Blaðamennska/umbrot
Þröstur Haraldsson
umbrot@icemed.is
Upplag
1.600
Áskrift
6.840 kr. m.vsk.
Lausasala
700 kr. m.vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskílur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
Prentsmiðjan Gutenberg hf.,
Síðumúla 16-18,
108 Reykjavík
Pökkun
Plastpökkun,
Skemmuvegi 8,
200 Kópavogi
ISSN: 0023-7213
Læknablabíð 2002/88 795