Læknablaðið - 15.09.2003, Síða 63
UMRÆÐA & FRÉTTIR / NÁM í HEILSUHAGFRÆÐI
Heilbrigðismál í íslensku hagkerfi og
kennsla í heilsuhagfræði hérlendis
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands mun
bjóða upp á nám til meistaragráðu í heilsuhagfræði
sem hefst haustið 2003. Undirbúningur hefur staðið í
nokkurn tíma og var skipulag skoðað í háskólum
víða um heim. Niðurstaðan er að bjóða upp á svipað
fyrirkomulag og er í háskólanum í York á Bretlandi
sem er oft kallaður Mekka heilsuhagfræðinnar.
Ríflega 70 milljörðum er varið til heilbrigðismála
hérlendis árlega, einkum af opinberum aðilum, og
það er því Ijóst að mikilvægt er að álitamál í þessum
geira fái vandaða hagfræðilega umfjöllun. Með því
að bæta menntun á þessu sviði verður betri nýting á
fjármunum og umræða um heilbrigðismál verður
vandaðari.
Meðal kennara verða erlendir háskólaprófessorar
sem koma sérslaklega til landsins í þessu skyni auk
fastra kennara deildarinnar. Umsjónarmaður náms-
ins verður Gylfi Zoega prófessor. Með náminu stór-
eflast rannsóknir í heilsuhagfræði og er mikil þörf á
slíku í hagkerfi okkar. Það er von og vissa viðskipta-
og hagfræðideildar að hér gefist kostur á spennandi
framhaldsnámi sem muni gagnast nemendum og
samfélaginu vel.
Heilsuhagfræði er sú undirgrein hagfræði sem
fjallar um framboð og eftirspurn eftir heilsugæslu.
Sérstök áhersla er lögð á að meta árangur þjónust-
unnar og félagslegan og peningalegan fórnarkostnað
hennar. Ahersla er lögð á kostnað og ábata þjónust-
unnar fyrir þjóðina í heild fremur en einstaka ein-
staklinga og tekið tillit til þjóðfélagshátta og þjóðfé-
lagsþróunar.
Skipulag meistaranáms í heilsuhagfræði
Nauðsynlegt er að þeir sem heija nám í heilsuhag-
fræði á meistarastigi séu einnig vel að sér í almennri
hagfræði, stærðfræði og tölfræði. Námið er fyrst og
fremst ætlað þeim sem hafa lokið BA- eða BS-námi í
hagfræði eða viðskiptafræði. Þeir nemendur sem
ekki hafa lokið slíku námi en hafa BA- eða BS-próf
úr öðrum greinum verða að sýna fram á kunnáttu
sem samsvarar námsefni eftirfarandi námskeiða sem
eru á BS-stigi í viðskipta- og hagfræðideild. Þau eru:
Stærðfræði A/I; Stærðfræði B/II; Þjóðhagfræði I og
II; Rekstrarhagfræði I og II og Tölfræði IA. Þetta eru
sjö námskeið og þeir sem ekki hafa lokið þeim geta
vænst þess að verja einu skólaári í undirbúningsnám.
Kjarni námsins felst í tveimur námskeiðum í
heilsuhagfræði, auk grunnnámskeiða í rekstrarhag-
fræði, tölfræði og haglýsingu. Markmiðið er að nem-
endur kynnist bæði grundvallaratriðum heilsuhag-
fræði og öðlist þekkingu á stofnanaumhverfi heilsu-
gæslu hér á landi ásamt þeirri aðferðafræði sem hag-
fræðingar beita við rannsóknir, fræðilegum og empír-
ískum. Á vormisseri er kunnátta í tölfræði skerpt og
verður unnt að taka námskeið í beitingu hennar inn-
an hagfræði eða læknisfræði. Einnig er námskeið í
kostnaðar- og ábatagreiningu en þar eru kynntar að-
ferðir við opinbera ákvarðanatöku.
Námið samanstendur af tíu þriggja eininga nám-
skeiðum, auk ritgerðar, og skiptast jafnt á haust- og
vormisseri. Ritgerðin er 15 eða 30 einingar þannig að
námið er 45 eða 60 einingar, sbr. mynd 1.
Ágúst Einarsson
Höfundur er forseti viðskipta-
og hagfræðideildar HÍ.
Mynd 1. Skipulag náms í
heilsuhagfrœði.
Læknablaðið 2003/89 707