Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2003, Síða 71

Læknablaðið - 15.09.2003, Síða 71
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BROSHORNIÐ 40 Sálfræði og hlátur Að hlusta Tveir landskunnir sálfræðingar voru með stofur í sama húsi. Annar var fertugur, hinn um sjötugt. Þeir voru samferða í lyftunni í lok vinnudags þegar mjög heitt var úti og báðir höfðu haft fullbókaða stofu frá því snemma um morguninn. Yngri sálfræðingurinn virtist býsna lúinn og það fór ekki framhjá honum að eldri kollegi hans var hress eins og hann væri að mæta í vinnuna eftir fjögurra vikna sumarfrí. „Eg skil þetta ekki. Hvernig geturðu hlustað á sjúklinga frá morgni til kvölds á degi eins og þessum og verið svona ótrúlega ferskur í lok dagsins eins og sjá má?“ Gamli sálfræðingurinn leit á hinn og spurði: „Hver hlustar?" Að strjúka Þrír geðsjúklingar sem vistaðir voru á lokaðri deild ákváðu að strjúka. Sá fyrsti komst framhjá vakt- manninum, mjálmaði og hélt svo áfram. Annar sjúk- lingurinn gerði nákvæmlega það sama, mjálmaði og komst einnig undan. Sá þriðji var á leið framhjá vakt- manninum þegar hann öskraði: „Ég er köttur líka.“ Að dreyma „Mig dreymdi ótrúlegan draum í nótt,“ sagði hjúkk- an við lækninn sem hún vann með. „Ég horfði á hnakkann á móður minni, en þegar hún sneri sér við til að horfa á mig var hún með andlitið þitt. Ég vakn- aði alveg í sjokki og gat með engu móti sofnað aftur. Ég velti mér og bylti það sem eftir lifði nætur, fór síðan á fætur, fékk mér kók og mætti svo í vinnuna. Finnst þér þetta ekki alveg furðulegt?" Læknirinn leit hálfönugur á hjúkkuna og sagði: „Kók. Kallarðu það morgunmat?“ Ekki hlæja Maður kom til læknis og var hinn vandræðalegasti. „Ég er með vandamál og ef þú ætlar að hjálpa mér verður þú að lofa mér því að hlæja ekki að mér.“ „Að sjálfsögðu mun ég ekki hlæja að þér. Ég hef verið læknir í meira en aldarfjórðung og hef aldrei hlegið að sjúklingi. Þú getur treyst mér fullkomlega." „ Allt í lagi,“ sagði maðurinn og tók að leysa niður um sig buxurnar. Þá kom í ljós minnsta tippi sem lækn- irinn hafði nokkru sinni séð. Læknirinn fann hvernig hann missti tökin á alvörunni, skellti upp úr og hló síðan hömlulaust í nokkrar mínútur. Loks linnti hlátrasköllunum og læknirinn sagði afsakandi: „Ég biðst innilega forláts á hegðun minni og ég get ekki með nokkru móti skýrt hvað kom yfir mig. Ég lofa því að þetta mun ekki gerast aftur. Og hvert er svo vandamálið?" spurði læknirinn. „Tippið er bólgið.“ Úr hverju dó’ann? Guðbrandur læknir var að taka sjúkrasögu hjá gam- alli konu. „Úr hverju dó faðir þinn sálugi?“ spurði læknirinn. „Æ, ég man það ekki. Það getur ekki hafa verið neitt alvarlegt.“ Eftir aðgerö Aslákur skurðlæknir var að skoða sjúkling sem hann hafði skorið upp vegna kviðslits þremur dögum áður. Læknirinn spurði sjúklinginn hvað hann hefði verið mikið á fótum eftir aðgerðina. „A fótum? Mig hefur verkjað svo rosalega í nár- ann þar sem þú skarst mig að ég hef verið rúmfastur síðan og varla komist á klósett. Ef þú bara vissir hvernig mér líður,“ sagði sjúklingurinn. „Ég veit allt um það,“ sagði Áslákur, „því ég fór í alveg samskonar aðgerð í síðasta mánuði og var kominn aftur í vinnu tveimur dögum seinna.“ „Jæja, er það svo? Ætli þú hafir ekki verið eitt- hvað heppnari með skurðlækni en ég?“ sagði sjúk- lingurinn og gerði sig líklegan til að kveðja. Skorin hvar? Eldri kona var flutt á slysadeildina í Fossvogi eftir að hafa lærbrotnað. Ljóst var að konan þurfti að fara í aðgerð og deildarlæknirinn gaf sig því á tal við þá gömlu. „Hefur þú einhvern tíma verið skorin upp?“ spurði læknirinn ungi. „Já,“ sagði konan. „Hvers vegna varstu skorin upp?“ „Æ, ég er ekki viss,“ sagði konan, „það er svo fjarska langt síðan.“ Læknirinn sá ör hægra megin á kviði konunnar. Hann benti á örið og spurði: „Varstu skorin hérna?“ „Nei, ég var skorin norður á Akureyri." Bjarni Jónasson bjarni.jonasson@gb.hgst.is Læknablaðið 2003/89 715
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.