Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 5
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
II M R /E 0 A 0 0 F R É T T I R
672
673
674
676
682
685
688
690
692
693
700
F A S T
Af sjónarhóli stjórnar LÍ: Breytingar á vaktafyrirkomulagi
unglækna
Bjarni Þór Eyvindsson
Er hálshnykkur læknisfræðilegt eða lögfræðilegt úrlausnarefni?
Þröstur Haraldsson
Aðalfundur Læknafélags íslands 2005
Forvarnir byggjast á sanistarfi margra
Lýðheilsustöð heimsótt og rætt við starfsmenn og stjórnendur
Þröstur Haraldsson
Konur, víkingar, munkar og berserkir
léku stór hlutverk á 20. þingi norrænna áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
Þröstur Haraldsson
Berklafaraldur á Hólum 1959
Guðmundur Helgi Þórðarson
Spítali í spennitreyju stjórnunarvanda
Tómas Helgason
... að iðja hans verði til góðs
Ávarp formanns LÍ við móttöku kandídata í Hlíðasmára 24. júní 2005
Sigurbjörn Sveinsson
Nýi sloppur keisarans
Jóhann Tómasson
Kódeinlyf verða tekin úr lausasölu
Magnús Jóhannsson
Fréttatilkynning frá Eli Lilly
I R P I S T L A R
694 Hugðarefni: Golf er ... ?
Sigurður Þ. Guðmundsson
697 íðorð 179: Nokkur orð um sár
Jóhann Heiðar Jóhannsson
699 Broshorn 61: Eftir morgunmat
Bjarni Jónasson
701 Okkar á milli
702 Lausar stöður/þing
708 Sérlyfjatextar
715 Ráðstefnur og fundir
Löngum hefur tíðkast sú aðferð innan
myndiistarinnar að skeyta saman list-
formum og nú á dögum heyrir það
nánast til undantekninga að listamaður
titli sig „málara“ eða „myndhöggvara".
Sá miðill sem hann velur sér skilgreinir
hann ekki lengur því hann grípur hverju
sinni til þess forms sem honum þykir
hæfa hverri hugmynd. Þá er jafnframt
fáheyrður titillinn „fjöllistamaður“ en
hann lýsir samt sem áður mörgum
samtímalistamönnum vel. Ragnar
Kjartansson (f. 1976) útskrifaðist
frá málunardeild Listaháskóla Islands
árið 2001 og síðan hefur ferill hans
einkennst af frjórri tilraunamennsku.
Hann hefur unnið að margsháttar list-
sköpun en helst tónlist og myndlist.
Sem gjörningalistamaður beitir hann
málaralist, tónlist og tækni leikhúsa
í svokölluðum „Tableau Vivant" eða
lifandi málverkum. Þá byggir hann
sviðsmynd og leikur sjálfur hlutverk
eins og til dæmis á Listahátíð Reykja-
víkur í vor, þegar hann var allan sýning-
artimann uppáklæddur og sönglandi
innan um málað landslag, teikningar
og tónlist af segulböndum. Þess háttar
verk byggja á ákveðnu augnabliki sem
listamaðurinn reynir að viðhalda eða
endurtaka um ákveðinn tíma. Ragnar
hefur líka gert myndbandsverk sem
standa ein eða eru hluti skrautlegra
innsetninga. Síðast en ekki síst málar
hann málverk eins og það sem nú
prýðir forsiðu Læknablaðsins. Djöfull
hata ég sjálfan mig (2005) er gott
dæmi um list Ragnars sem einkennast
iðulega af samspili gagnstæðra tilfinn-
inga - sorgar og gleði, hryllings og
fegurðar, dramatíkur og húmors. Verkið
lýsir fallegri náttúrustemningu þar sem
rigning vorsins bræðir vetrarsnjóinn
og maður situr hugsi og horfir á. Hann
snýr baki í áhorfandann sem upplifir
þannig útsýnið með augum hans eins
og ekki var óalgeng aðferð rómantísku
málaranna. Hugsun streymir frá höfði
mannsins og er letruð með gulli nánast
þvert yfir myndina. Textinn er svo blátt
áfram og furðulegur á myndfletinum
að manni bregður við og verkið virðist
allt einn öfugsnúinn brandari. Málverk-
ið býr þó yfir eiginleikum sem bjóða
áhorfendum að skynja fallega einlægni
og einfalda myndlíkingu við það sem
svo oft gerist í lífinu - þegar andstæður
mætast. Það er til sýnis á sýningunni
„Tívolí í Hveragerði" í Listasafni Árnes-
inga út september.
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið 2005/91 641