Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 13
FRÆÐIGREINAR / BÓLUSETNING BARNA
Þekjun bólusetningar barna
við Monkey Bay, Malaví
Þórður Þórarinn
Þórðarson1
LÆKNANHMI
Ásgeir
Haraldsson1,2
BARNALÆKNIR
Halldór Jónsson1,3
HEIMILISLÆKNIR
Richard G. Chola4
AÐSTOÐARHEILBRIGÐIS-
FULLTRÚI
Geir
Gunnlaugsson1,5
BARNALÆKNIR
‘Læknadeild Háskóla íslands,
2Barnaspítali Hringsins,
Landspítala Hringbraut,3
Þróunarsamvinnustofnun
íslands,4 Monkey Bay hérað,
5Miðstöð heilsuverndar barna.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Þórður Þórarinn Þórðarson,
læknadeild Háskóla íslands.
thíhth@hiis
Lykilorð: bólusetning, þekjun,
Malaví.
Ágrip
Tilgangur: Að leggja mat á þekjun bólusetningar
barna í Monkey Bay héraði í Malaví þar sem að
Þróunarsamvinnustofnun íslands (ÞSSÍ) hefur
unnið að uppbyggingu heilsugæslu undanfarin ár.
Efniviður og aðferðir: Notast var við aðferðir al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) til
þess að meta þekjun bólusetningar barna á aldrin-
um 12-23 mánaða í Monkey Bay héraði. í héraðinu
búa um það bil 105.000 íbúar í 97 þorpum. Fimm
heilsugæslustöðvar veita þjónustu á svæðinu. Börn
á svæðinu voru bólusett fyrir berklum (BCG),
barnaveiki, stífkrampa og kíghósta (DTP), mænu-
veiki (OPV) og mislingum. Ef börn voru ekki
bólusett voru ástæður þess skráðar. Valin voru 217
börn af handahófi í 30 þorpum/klösum (clusters)
og þekjun metin með skoðun bólusetningarkorta
eða samkvæmt heilsufarssögu.
Niðurstöður: Þekjun bólusetningar miðað við kort
eða sögu var 97% fyrir BCG, og 99%, 95% og 85%
fyrir DTPl, DTP2 og DTP3. Þekjun OPVl, OPV2
og OPV3 miðað við kort eða sögu var 99%, 93% og
85%. Þekjun mislinga miðað við kort eða sögu var
78%. Fullbólusett böm miðað við kort eða sögu voru
152, eða 70%. Tvö böm höfðu ekki fengið neinar
bólusetningar. Brottfall milli DTPl og DTP3 miðað
við kort eða sögu var 14,5 prósentustig, og brottfall
milli DTPl og mislinga var 21 prósentustig.
Alyktun: Aðgengi að bólusetningu á svæðinu virð-
ist gott. Brottfall frá fyrstu bólusetningu til síðustu
er áhyggjuefni, sérstaklega hvað varðar mislinga
en sú bólusetning er einnig oft gefin of seint. Því
verður að huga að leiðum til þess að auka skil-
virkni þeirrar þjónustu sem er í boði.
Inngangur
Þá sjaldan fjallað er um málefni Afríku í fjölmiðl-
um hér á landi er umfjöllunarefnið nánast undan-
tekningarlaust hungursneyð, styrjaldir eða sjúk-
dómar. Að öðru leyti er þessari stóru heimsálfu
með 770 milljónir íbúa sem tala allt að 1500 tungu-
mál gefinn heldur lítill gaumur. Lífskjör almenn-
ings eru þó almennt bágborin, sérstaklega sunnan
Sahara eyðimerkurinnar. Fólksfjölgun er mikil og
ungbarna- og mæðradauði hár. Vannæring og sjúk-
dómar hamla framþróun og eyðnifaraldur heggur
æ stærri skörð í þá hópa þjóðfélagsins sem sjá fyrir
vexti og þróun þess. Eitt þessara landa er Malaví,
ENGLISH SUMMARY
Þórðarson ÞÞ, Haraldsson Á, Jónsson H, Chola RG,
Gunnlaugsson G
Immunization Coverage in the Monkey Bay
head zone Malawi
Læknablaðið 2005; 91: 649-54
Objective: To assess the immunization coverage of
children in the Monkey Bay head zone, Malawi where
the lcelandic International Development Agency
(ICEIDA) has been working to improve health care
services in the recent years.
Materials and methods: A 30 by 7 cluster sample
survey, as defined by WHO’s Expanded Programme
on Immunization (EPI) was conducted to estimate
immunization coverage of children aged 12-23
months for tuberculosis (BCG), diphtheria, tetanus
and pertussis (DTP), polio (OPV) and measles
immunizations. The Head Zone consists of 97 villages
with a population of around 105.000 inhabitants. Five
health centres provide immunization services in the
area. In total were 217 children in 30 clusters randomly
selected and their immunization status by card or
history registered.
Results: Immunization coverage by card or history
was 97% for BCG, and 99%, 95% and 85% for DTP1,
DTP2 and DTP3 respectively. Coverage of OPV1, OPV2
and OPV3 by card or history was 99%, 93% and 85%
respectively. Coverage for measles by card or history
was 78%. Fully immunized children by card or history
were 152 or 70%. Two children had not received any
immunizations. Drop-out rate from DTP1 to DTP3
vaccination by immunization card or history was
14,5%, and drop-out from DTP1 to Measles by card or
history was 21%.
Conclusion: These results indicate that access to
childhood immunization in the Monkey Bay head zone
is good while drop-out rate is high. This indicates
that access to health services is adequate. However,
the coverage of measles appears to be insufficient
to prevent outbreaks, and must be improved. The
efficacy in delivering immunization can be improved
and enhanced utilization of the services offered should
be sought.
Key words: immunization, coverage, Malawi.
Correspondence: Þórður Þórarinn Þórðarson, ththth@hi.is
eitt fátækasta ríki heims. Það er ámóta stórt og
Island, en íbúarnir eru um 12 milljónir. Af hverjunt
þúsund börnum sem fæðast deyja 114 á fyrsta ald-
ursári og um 200 fyrir fimm ára aldur. Talið er að
Læknablaðið 2005/91 649