Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LANDSPÍTALINN Spítali í spennutreyju stjórnunarvanda Tómas Helgason Höfundur er prófessor, fyrrum sviðsstjóri geðsviðs Landspítalans. í júníhefti Læknablaðsins fjallaði Þröstur Har- aldsson um ágreininginn á Landspítalanum þar sem takast á sjónarmið lækninga annars vegar og rekstrar og stjórnsýslu hins vegar í tilefni bréfs 12 yfirlækna til heilbrigðisráðherra (1). Greinin er byggð á bréfaskiptum um málið og viðtölum við lækna sem fæstir „voru fúsir til að tala opinskátt um málið - sem segir sína sögu“. Þrátt fyrir að læknaráð eigi að vera spítalastjórn til ráðuneytis um fagleg málefni (öll málefni spítala snerta lækn- ingar og eru því fagleg) hundsaði framkvæmda- stjórn spítalans tillögur ráðsins um endurskoðun stjórnskipulags hans því að „þær fara aftur á móti í veigamiklum atriðum þvert á skoðanir fram- kvæmdastjórnar um stjórnskipulag spítala". Eimir hér enn eftir af viðhorfi einveldiskonunga, vér einir vitum. Illt er til þess að vita að enn skuli ríkja svo forneskjulegir stjórnarhættir á eina sjúkrahús- inu í Reykjavík. Enn hrósað sigri! Um miðjan júní birtist greinaflokkur í Morgun- blaðinu með fyrirsögninni „Spítali í spennutreyju" (2), aðallega byggður á drottningarviðtölum við forstjóra og framkvæmdastjóra Landspítalans sem börðu sér á brjóst og lýstu yfir sigri við misheppn- aða sameiningu spítalanna, þrátt fyrir að afköst spítalans hafi minnkað um rúm 11% og kostnaður aukist um tæp 3%, og töldu nánast ekkert vera að nema að það vantaði nýja spítalabyggingu. Það eru ekki ný sannindi, hana hefur vantað í 30-40 ár. En þá voru þrír spítalar í Reykjavík sem veittu ágæta þjónustu um leið og þeir veittu hvor öðrum aðhald með faglegri samkeppni. Samvinna og verkaskipt- ing milli þessara spítala var eftir því sem þurfti og þekking lækna sem þar unnu sagði til um. Refsing lækna í greinaflokki Morgunblaðsins var ekki minnst á ofannefnda grein í Læknablaðinu og þess að- eins getið í einni setningu að kannanir hefðu sýnt töluverða óánægju starfsfólksins og að gagnrýni hefði komið fram á stjórnskipulagið. f lok greinaflokksins var getið rannsóknar Báru Ketilsdóttur hjúkrunarfræðings á Landspítalanum sem byggir á ftarlegum viðtölum við 12 heilbrigð- ismenntaða núverandi og fyrrverandi starfsmenn spítalans sem flestir gegndu stjórnunarstöðum. Samkvæmt niðurstöðum þessara viðtala höfðu starfsmenn ekki nægilegt faglegt athafnafrelsi Tafla 1. Afköst og rekstrarkostnaöur Landspítala 1999 og 2004 (3) 1999 2004 Legudagar 335.552 261.052 Dagdeildarkomur/2* 47.257 50.900 Göngudeildarkomur/3* 65.929** 79.379 Slysa- og bráöakomur/3* 20.446 24.395 Afköst samtals 469.184 415.726 Kostnaöur á föstu verölagi (án S-lyfja) 25.414.060 26.127.057 Fjöldi stööugilda 3.882,5*** 3.824 * Við útreikning afkasta hefur hver legudagur vægið 1, dagdeildar- koma vægió V2 og göngudeildarkoma 1/3. **Komur á árinu 2000. ***Stöðugildi á árinu 2001. og vantaði hvatningu yfirmanna til þróunar og hugmyndavinnu. Viðmælendur voru almennt and- vígir sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík og lýstu Landspítalanum sem gamaldags bákni. Bára telur að hugsjónafólk sem berjist fyrir ákveðnum málaflokkunt skorti innan heilbrigðiskerfisins og þaggað sé niður í þeim starfsmönnum sem séu gagnrýnir. Niðurstöður úr ofannefndri rannsókn eru í samræmi við niðurstöður úr viðamiklum könn- unum landlæknis meðal starfsfólks og læknaráðs Landspítalans og Vinnueftirlitsins meðal lækna. Samkvæmt athugun landlæknis í maí 2002 reynd- ust álíka fjölmennir hópar sammála og ósammála sameiningunni, en meirihluti taldi markmið, stefnu og framtíðarsýn sjúkrahússins óskýr. Flestir töldu að illa hafi verið staðið að sameiningu sjúkra- húsanna (4). Rannsókn læknaráðs og Vinnueftirlitsins í mars 2003 sýndi að aðeins rúmur þriðjungur lækna taldi sig geta haft áhrif á mikilvægár ákvarðanir um starf sitt og starfsumhverfi. Rúmur helmingur læknahópsins hafði hugleitt að hætta í starfi vegna óánægju. Níu af hverjum tíu stunduðu einhverja kennslu innan spítalans, en helmingi þeirra fannst þeir hvorki fá tíma né aðstöðu til að sinna henni og langflestir sögðu að ekki væri gert ráð fyrir tíma til að sinna fræðilegum rannsóknum. Meirihluti læknanna (65%) var óánægður með stjórn spít- alans og aðeins 13% voru ánægðir eða frekar ánægðir með hana; 54% voru sjaldan eða aldrei ánægðir með upplýsingaflæði frá stjórninni. Rúm- lega 80% töldu þátttöku lækna í stjórn spítalans ónóga og að áhrif læknaráðsins á stjórnun væru of lítil (5). Það er því ekki að undra þótt í lok umfjöllunar Morgunblaðsins um rannsókn Báru 688 Læknablaðið 2005/91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.