Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 42
MRÆÐA & FRÉTTIR / LÝÐHEILSUSTÖÐ Geðorðin tíu 1. Hugsaðu jákvætt, það er léttara 2. Hlúðu að því sem þér þykir vænt um 3. Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir 4. Læröu af mistökum þínum 5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina 6. Flæktu ekki líf þitt að óþörfu 7. Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum þig 8. Gefstu ekki upp, velgengni í iífinu er langhlaup 9. Finndu og ræktaðu hæfileika þína 10. Settu þér markmið og láttu drauma þína rætast virkja börnin, foreldrana og skólana til að vinna að þessu verkefni. Við höfum sett saman gátlista fyrir þessa hópa til að auðvelda þeim sjálfsmat og samanburð við aðra en þeir eru um leið tæki til að fylgjast með framgangi verkefnisins. Þetta verkefni endurspeglar þá stefnu okkar að konta á nánu samstarfi við sem flesta aðila í sam- félaginu sem vinna að forvörnum og heilsueflingu. Svona stofnun gerir í sjálfu sér ekki rnikið ein og sér heldur er það hlutverk hennar að virkja stjórnvöld, heilbrigðiskerfið, skólakerfið, frjáls félagasamtök og einstaklinga til þess að bæta lífshætti almenn- ings í landinu. Við sjáum þetta fyrir okkur eins og köngurlóarvef þar sem við spinnum vef sem tengir alla þessa hópa og einstaklinga saman.“ Hjólreiðar og önnur hreyfing Annað verkefni sem Lýðheilsustöð tók við nefnist Geðrœkt en því var hrundið af stað af einstakling- um, félagsmönnum í Geðhjálp og starfsfólki á sviði geðverndar. Grunnur þessa verkefnis eru meðal annars Geðorðin 10 (sjá ramma). „Þetta verkefni snýst einnig um að virkja grasrótina og við erum einmitt núna að leggja lokahönd á undirbúning herferðar sem hefst í haust en þá verða geðorðin birt á strætó og víðar auk þess sem skrifað verður um þau öll á síðum blaða,“ segir Anna. Lýðheilsustöð hefur liaft hönd í bagga með ýmsum verkefnum sem snúa að því að hvetja almenning til að breyta lífsháttum sínum. „Eitt dæmi um það er verkefnið Hjólað í vinnuna sem er reyndar á vegum Iþróttasambands Islands með þátttöku Lýðheilsustöðvar. Það vakti verulega at- hygli og varð mörgum hvatning til að draga fram hjólið. Þá er Lýðheilsustöð samstarfsaðili ÍSÍ í ár- legu kvennahlaupi. Annað verkefni til þess að örva hreyfingu snýr að eldri borgurum en við ákváðum að beina athyglinni að fólki sem er að ljúka starfs- ævinni og setjast í helgan stein en það er verkefni sem við munum vinna í náinni samvinnu við félag sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu auk félags eldri borgara sjálfra.“ Alþjóðlegt samstarf Lýðheilsustöðvar er þegar orðið töluvert og vex ört. „Við leggjum verulega áherslu á að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi og höfum tilkynnt áhuga okkar á að verða meðal stofnaðila alþjóðasamtaka lýðheilsustöðva sem Rannsóknir eru undirstaðan Laufey Steingrímsdóttir sviðstjóri rannsókna og þróunar. Laufey Steingrímsdóttir hefur starfað lengi að forvörnum sem framkvæmdastjóri Manneldisráðs. Nú er hún orðin sviðstjóri rannsókna og þróunar og segir að sjónarhornið hafi vissulega víkkað. „Nú starfa ég með öllunt verkefnisstjórunum að rannsóknum á þeirra sviði og einnig ineð aðilum utanhúss. Við eigum samstarf við skóla og rann- sóknarstofnanir víða um land,“ segir hún. Laufey segir að framtíðarsýn stöðvarinnar hvað varðar rannsóknir sé meðal annars að koma á reglubundnum heilsufarskönnununt þar sem skoðaðir verða helstu þættir sem varða heilsu og líðan, ekki síst áhrifaþættir heilbrigðis, svo sem lífshættir, lífsskilyrði og aðstæður fólks. „Við viljum fylgjast með og kanna skilgreinda þætli sem skipta máli fyrir heilsu fólks og vinna það í samráði við landlækni og fleiri aðila. Það er stöðugt verið að gera afmarkaðar rann- sóknir á þessu sviði en það vantar heildstæða rannsókn sem nýtist til stefnumótunar og ákvarðanatöku og einnig til samanburðar á stöðu okkar og annarra þjóða,“ segir hún. Hún bætir því við að slíkar rannsóknir skipti meginmáli fyrir alla stefnumótun í heilbrigðis- og velferðarmálum. „Vilji menn vita hvar á að beita sér, hvaða þjónustu á að veita og hvernig á að haga forvörnum og heilsueflingu þarf þekkingin að vera til staðar. Könnunin er þó enn sem komið er aðeins á undirbúningsstigi þar sem við erum rétt að byrja að velja helstu mælikvarðana og meta umfang verksins. Lýðheilsustöð fjármagnar að stórum hluta tvær fjölþjóðlegar rannsóknir sem ná til ungs fólks. Annars vegar er það ESPAD rannsóknin sem gerð er á fjögurra ára fresti í 30 Evrópulöndum og lýtur að áfengis- og vímuefnanotkun nem- enda í 10. bekk. Hins vegar er búið að sernja við Háskólann á Akureyri um rannsókn á heilsu og líðan ungs fólks sem nær til um 40 landa og er unnin í samstarfi við WHO. Rannsóknin á sér langa sögu í Evrópu, en hér á landi fer könnunin fram í fyrsta sinn eftir áramót.“ Laufey nefnir líka að stöðugt þurfi að fara fram mat á árangri heilsueflingarverkefna, ekki síst þeirra sem unnin eru á vegunt stöðvarinnar. „Þegar við hrintum verkefninu Allt hefur áhrif af stað gerðum við könnun meðal skólastjóra, foreldra og barna á aðstæðum, lífsháttum og við- horfum til næringar og hreyfingar barna. Þessar kannanir ætlum við svo að endurtaka eftir tvö ár til að sjá hvaða áhrif verkefnið hefur haft, hvort viðhorfin hafa breyst og aðgengi barna að hollum lífsháttum batnað," segir Laufey að lokum. 678 Læknablaðið 2005/91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.