Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 54
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MÓTTAKA KANDÍDATA ... að iðja hans verðí til góðs Ávarp formanns LÍ flutt við móttöku kandídata í Hlíðasmára 24. júní 2005 Sigurbjörn Sveinsson Góðir félagar, kandídatar í læknisfræði, forseti læknadeildar, formaður siðfræðiráðs Læknafélags íslands og aðrir góðir gestir. í Hannesar Arnasonar fyrirlestrum sínum um einlyndi og marglyndi segir Sigurður Nordal: „Mín skoðun er sú, að meðan þjóðfélag er til, hlýtur líka siðferði að vera til. Mér finnst þjóðfélags- fræðin hafa sannað það greinilega, að siðferðið er lifandi partur félagslífsins og ekki háð siðfræði eða prédikunum eins mikið og menn hafa haldið. En þetta er aðeins hversdagssiðferði, siðferðið sem nauðsynjavara, lægri tegund siðferðis. Allur hærri siðferðisþroski heimtar einhverja trú, einhverja skoðun á tilverunni í baksýn, stoð í einhverri há- speki. Jafnvel nytsemiskenningin sjálf, þessi flat- lendasta siðferðiskenning, sem uppi hefur verið, leitaði að lokum hælis í háspekilegum kenningum, gat ekki án þeirra verið.“ Hér er Nietsche greinilega á ferð. Það skýrist í eftirfarandi orðum Sigurðar sem hann lætur falla skömmu áður. „Tökum spurningu eins og siðferð- islega ábyrgð. Margar vísindagreinar leggjast á eitt að skýra hana og svara henni, sálarfræði, siðfræði, guðfræði, háspeki, læknisfræði, rökin eru mörg og merkileg, með og móti, og ég verð að játa, að mér finnst sem stendur rökin á móti vera sterkari, að vér berum ekki ábyrgð á gerðum vorum og ekk- ert æðra réttlæti gæti dæmt oss fyrir þær. En hér get ég ekki beygt mig fyrir rökum, jafnvel þó að mér fyndust þau vera sannanir. Virðing mín fyrir sjálfum mér, siðferðistilfinning mín, heimta þessa ábyrgð, og sú krafa er sterkari en öll rök. Ef að þessi ábyrgð er ekki til fyrir utan sjálfan mig, ef ekkert eilíft réttlæti er til, þá get ég a.m.k. gert mitt litla til að skapa það með því að lifa eins og það væri til.“ Ég geri ráð fyrir að öll getum við fallist á það að frelsi vísindanna sé ekki fólgið í rannsóknum án takmarkana siðalögmála. Þótt sagt sé að akarnið geti aldrei orðið eik eigi rætur þess að rúmast í litlum jurtapotti, þá mun eikin aldrei standa lengi ein á berangri án skjóls og stuðnings af öðrum jarðargróða. Allt sem maðurinn tekur sér fyrir hendur lýtur einhverjum siðalögmálum. Þetta getur verið alveg óháð tímabundnu mati okkar hvort eitthvað sé gott eða slæmt, rétt eða rangt. Ég geri þó ráð fyrir að málskilningur okkar flestra sé á þann veg að siðareglur lúti að því að bæta samskipti manna og að auka tillit það sem taka á til samborgaranna. Öll vísindi hljóta að lúta siðferðishugmyndum þeirra vísindamanna, sem þau stunda. Vísindamenn eru í engu ólíkir öðrum að því leyti að störf þeirra eru „mannaverk“ og lúta því þeim lögmálum sem allir hafa gengist undir í því samfélagi sem þeir lifa. Þannig verður að gera þær kröfur til rannsókna í læknisfræði að þær séu siðlegar og taki tillit til viðurkenndra hugmynda í þeim efnum. Siðareglur samfélagsins, skráðar og óskráðar, hljóta að taka til bæði rannsókna og rannsóknaraðferða, rann- sókna í læknisfræði sem annarra. Þekkingaröflun er að sínu leyti til góðs, en snúa má henni til ills. Vísindamaðurinn leitar sann- leikans án þess að hugsa beint um hagrænar eða siðrænar afleiðingar. Siðrænt atferli er honum eðlislægt eins og síðar verður vikið að. Leiðarljósið er að iðja hans verði til góðs. Þekkingin sem hann skapar er hins vegar eins og verkfæri sem getur orðið beggja handa járn. Það má með nokkurri sanngirni halda því fram að nyt læknisfræðinnar hafi stundum farið fram úr umræðunni um hin siðrænu sjónarhorn til þeirra úrræða sem beitt er. Einfalt dæmi er að þjóðfélagið heimilar okkur að nýta þekkingu til að finna van- skapnað og erfðagalla hjá fóstrum og eyða þeim undir vissum kringumstæðum, en tekur ekki af- stöðu til æxlunar fullveðja fólks með sömu ágalla. Ég tel að umræðan að þessu leyti hefi verið ófull- 690 Læknablaðið 2005/91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.