Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 179 Nokkur orð um sár Frá starfsmanni lyfjafyrirtækis barst fyrirspurn um tiltekna tegund sárs. Af því tilefni var farið yfir ýmis heiti sem notuð hafa verið um sár. í Samheitaorðabókinni eru heitin: áverki, ben, bor, kaun, meiðsl, skeina, særi, und. í íslenskri orða- bók Eddu er nafnorðið sár sagt merkja 1. (opið) meiðsli, ben, und, áverki. 2. brotflötur. I ritmáls- safni Orðabókar Háskólans má sjá að orðið sár er gamalt og er upphaflega ýmist stafsett sár, sar eða saar. Mörg notkunardæmin eru býsna skemmtileg. í ritum Lærdómslistafélagsins frá síðari hluta hluta 18. aldar segir til dæmis: Sár innibera svovel undir (vulnera) sem kaun (ulcera). Fram kemur enn fremur að orðið sár hefur verið notað um brotfleti á dauðum hlutum, svo sem á steinum eða bergi, og jafnvel um skurðfleti, svo sem á kökusneiðum og kjötbitum. Samkvæmt hinni miklu orðabók Websters er enska orðið sore talið eiga uppruna í fornensku orði, sár, en það er sett í tengsl við forn- íslenska heitið sár. Wound Enska orðið wound er notað um sár sem verða til við áverka þegar yfirborð húðar eða slímhúðar er stungið, skorið eða rifið. Það er af sama stofni og íslenska heitið und. Latneska heitið er vuln- us. íðorðasafn lækna tilgreinir sár og særi. Þegar mikillar nákvæmi er krafist væri heppilegt að nota yfirheitið áverkasár. Slík sár má svo auðveld- lega aðgreina með sértækum íslenskum heitum í samræmi við tegund áverka, stungusár (puncture wound, stab wound), skotsár (gunshot wound), skurðsár (cut, incised wound), rifið sár (lacerated wound), marið sár (contused wound), opið sár (open wound) og afrifusár (avulsed wound). Ulcer Enska heitið ulcer er dregið af latneska heitinu uicus. Iðorðasafn lækna skilgreinir fyrirbærið þannig að um sé að ræða löskun á yfirborði húðar eða slímu vegna vefjataps, oft samfara bólgu. Læknisfræðiorðabók Stedmans er þó enn nákvæm- ari: meinsemd í yfirborði Iiúðar eða slímhúðar sem stafar af yfirborðslœgu vefjatapi, oftast með bólgu. íðorðasafn lækna tilgreinir sömu íslensku heitin sár, særi. Það er á vissan hátt óheppilegt að geta ekki aðgreint þess konar sár frá áverkasári með stuttu og einföldu heiti. Af nothæfum samsettum heitum má þó nefna drepsár og bólgusár. Sértæk sáraheiti eru mörg. Af þeim má nefna magusár (ulcus ventriculi), ætisár (ulcus pepticum, sjá pistil nr. 60, Læknablaðið 1995; 81: 498), legusár (ulcus decubitus), leggsár (ulcus cruris), ofholdgunarsár (exuberant ulcer) og sprungið sár (ulcus perforans). Rétt er að vekja athygli á því að íðorðasafn lækna hefur ekki kosið fulla samræmingu í íslensku heitunum þannig að í stað ulcus kemur ýmist sár, sœri eða fleiður: glæru- fleiður (ulcus corneae), linsæri (ulcus molle), skrið- sár (ulcus serpens). Margir latínugránar telja að ulc- eration sé heiti sem eigi við um þann feril sem leiðir til þess að sár myndast, en ekki um sárið sjálft. Erosion Þetta orð á sér áhugaverðan uppruna. Það er myndað af forskeytinu ex- og latnesku sögninni rodere, að naga, og er því skylt enska nafnorðinu rodent, nagdýr. Orðrétt þýðing á erosion gæti því verið útnögun. íðorðasafn lækna birtir þýðingarn- ar fieiður og sœri. Grunnt sár til orðið við áverka eða bólgu. Undirritaður hefur notað heitið grunn- særi um þetta fyrirbæri. Kvensjúkdómalæknar hafa hins vegar notað heit- ið erosion um sérstakt fyrirbæri í leghálsi þar sem tunga af stuðlaþekju úr innhálsi hefur skriðið niður í úthálsinn og komið í stað flöguþekjunnar sem þar á að vera. Svæðið getur verið rautt og hrjúft, en eiginlegt sár hefur ekki myndast. Tannlæknar hafa svo notað heitið erosion um eyðingu tanna af völdum efna og jafnvel um tannslit vegna hlutrænna áverka. Húðrof Ýmsir læknar hafa kvartað undan því að orðið húðrof sé í vaxandi mæli notað á sjúkrastofnunum í staðinn fyrir húðsár eða sár í húð. Lausleg leit á netinu leiddi í ljós að orðið kemur fyrir í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7 frá 1998, þar sem fjallað er um starfsleyfi fyrir tiltekinn at- vinnurekstur og þá sérstaklega hvers konar snyrti- stofur þar sem húðgötun eða húðrof fer fram. Undirritaður getur ekki lagst gegn þessari notkun. Vísað er mjög almennt í snyrtiaðgerðir, sem geta haft það í för með sér að húð rofni. Annað dæmi fannst á netinu: [bakteríur] geta einnig verið í hálsi og á órofinni húð án þess að gefa nokkur einkenni þaðan. Sýkingin nœr oftast fótfestu eftir minni hátt- ar húðrof. Þarna er lögð áhersla á að rof í húð eða slímhúð getur verið uppspretta sýkingar. Hvorki er vísað sérstaklega í áverka- eða drepsár heldur að hvers kyns húðrof auki hættu á að sýklar nái fótfestu í líkamsvef. Ekki er hægt að leggjast gegn orðanotkun af þessu tagi. þegar orðið er notað sem almennt og ósértækt samheiti. Hins vegar virðist engin þörf á því að nota orðið húðrof þegar vísað er til vel þekktra meinsemda, sem augljóslega falla undir samheitið sár. Jóhann Heiðar Jóhannsson johannhj@landspitali. is Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2005/91 697
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.