Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2005, Page 41

Læknablaðið - 15.09.2005, Page 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÝÐHEILSUSTÖÐ leið? Anna segir að ein aðferðin við að mæla ár- angur starfsins sé að koma upp svonefndum heilsu- vísum. „Þá eru sett fram markmið, svo sem um að reykingar kvenna á meðgöngu dragist saman um ákveðið hlutfall á tilteknum tíma eða fækkun slysa um ákveðinn prósentuhluta á tilteknum tíma og svo er fylgst með því hvort það næst. Þess ber þó sérstaklega að geta að breytingar á lýðheilsu taka jafnan langan tíma og því verðum við að horfa langt fram í tímann. I kjölfar markmiðssetningar eru síðan unnar aðgerðaráætlanir þar sem meðal annars kemur fram hverja við þurfum að eiga sam- starf við til að ná settum markmiðum en forsenda árangurs er samstarf fjölmargra. Heilsuvísana getum við notað til að meta árangur starfsins og fylgjast með þróun lýðheilsu og áhrifaþáttum heilbrigðis. Með þeim er hægt að mæla árangur á ýmsum sviðum, svo sem hvernig gengur að draga úr reykingum, tíðni sjálfsvíga og vinna gegn of- þyngd. Þeir gefa einnig vissan möguleika á saman- burði við aðrar þjóðir," segir hún. Eins og áður segir var ákveðið að skipta starf- semi Lýðheilsustöðvar í þrjú svið. Stofnuninni er ætlað töluvert hlutverk á sviði rannsókna í sam- vinnu við landlækni, mennta- og rannsóknarstofn- anir og aðra. „Við höfum þegar gert samning við Háskólann á Akureyri um rannsókn á heilsu og líðan skóla- barna en hún er liður í alþjóðlegri rannsókn sem byggir á spurningalistum frá alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni. Þar fáum við samanburð á stöðu mála hjá börnum og unglingum í 6., 8. og 10. bekk grunnskóla hér og í 40 öðrum löndum, þar á meðal Kanada og Bandaríkjunum, auk Evrópu. Við höfum líka verið að vinna að stórri rannsókn á tannheilsu þjóðarinnar í samvinnu við ráðuneytið og fleiri og eigum von á fyrstu niðurstöðum nú í haust. Þar hafa tennur unglinganna verið skoðaðar og af því sem ég hef séð sýnist mér að um forvitni- legar niðurstöður verði að ræða,“ segir Anna. Samskiptasvið annast gerð fræðsluefnis, útgáfu, Framtíðarsýn Lýðheilsustöðvar Árið 2008: • er Lýðheilsustöð í fararbroddi í almennri heilsueflingu og forvörnum með heildræna nálgun á þá þætti sem hafa áhrif á heilsu og líðan fólks • hefur Lýðheilsustöð myndað tengslanet talsmanna lýðheilsu í samfé- laginu • er Lýðheilsustöð í samstarfi við háskóla og rannsóknastofnanir í kennslu og rannsóknum á sviði lýðheilsu • gengst Lýðheilsustöð reglulega fyrir heilsufarskönnunum í samstarfi við aðra og nýtir niðurstöður í lýðheilsustarfi og stefnumótun • hefur grunnur verið lagður að heilbrigðismati þar sem metin eru áhrif stjórnvaldsaðgerða á heilsu • er Lýðheilsustöð í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi • hefur Lýðheilsustöð skapað sér ímynd meðal þjóðarinnar sem byggist á trausti og trúverðugleika • er markvisst unnið úr rannsóknaniðurstöðum með hliðsjón af skil- greindum „heilsuvísum" heimasíðu og ráðstefnuhald svo fátt eitt sé nefnt. Eitt þeirra verkefna sem þar eru í gangi er skipu- lagning norrænnar lýðheilsuráðstefnu sem verður haldin í október. Allt hefur áhrif Á verkefnasviði eru hins vegar starfrækt flest þau verkefni sem áður heyrðu undir ráðin ásamt nýjum verkefnum sem bæst hafa við. Þar er unnið að tó- baksvörnum, áfengis- og vímuvörnum, tannheilsu, slysavörnum og geðrækt. Einnig er þar verkefni sem nefnist Árvekni og beinist að slysavörnum hjá börnum. Loks er þar nýjasta verkefnið sem nefnist Allt hefur áhrif- einkum við sjálf. „Það verkefni byggist á samstarfi Lýðheilsu- stöðvar og sveitarfélaganna í landinu en markmið þess er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum barna og fjölskyldna þeirra, einkum með því að auka hreyfingu, bæta mataræði og fyrirbyggja sjúk- dóma. Við höfum farið út um allt land og reynt að Fagráð Geðrœktar sat á fundi þegar blaðamaður var í heimsókn og þar mátti sjá kunnugleg andlit, talið frá vinstri: Halldór Kolbeinsson geðlœknir, Guðrún Guðmundsdóttir verkefttisstjóri Geðrœktar, Anna Björg Aradóttir hjtíkrunarfrœðingur, Sigurður Guðmttndsson landlœknir og Lúðvík Ólafsson lœkningaforstjóri Heilsugœslunnar. Sveinn Rúnar Hauksson heimilis- lœknir var rétt ókominn. Læknablaðið 2005/91 677

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.