Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR
Konur, víkingar, munkar og berserkír
léku stór hlutverk á 20. þingi norrænna áhugamanna um sögu læknisfræðinnar
Atli Þór Ólason setur
þingið en að ofan má sjá
dönsku heiðursmennina
tvo, Povl Riis (í miðið á
stœrri myndinni) og Aksel
Kirkegárd. Til hœgri eru
Vilhelmína Haraldsdóttir
og Óttar Guðmundsson
sem bœði voru í skipulags-
nefnd þingsins.
Þröstur
Haraldsson
Ljósmyndir:
Sigurlín
Atladóttir
Íslensk lækningasaga var mikið í sviðsljósinu á
20. þingi norrænna áhugamanna um sögu læknis-
fræðinnar sem fram fór í Reykjavík dagana 10.-13.
ágúst. Nesstofa var mál málanna við opnunina
í Þjóðmenningarhúsinu, daginn eftir voru það
konur í íslenskri læknastétt sem áttu sviðið, þriðja
daginn var farið á vit íslenskra lækna fyrri alda
við Breiðafjörð og lokadaginn var röðin komin að
víkingunum og öðru miðaldafólki.
Blaðamaður Læknablaðsins fylgdist með þing-
inu eins og hægt var en vitaskuld fór margt framhjá
honum. Ekki við öðru að búast því tæpast getur
einn maður sótt fyrirlestra samtímis í þremur
sölum. Hér á eftir verður stiklað á stóru um þá
fyrirlestra sem ég rakst inn á en við munum gera
ýmsu efni betri skil í næstu blöðum.
Opnunarathöfnin var haldin á miðvikudags-
kvöldi í hinu fagra og sögufræga húsi sem löngum
hýsti bækur þjóðarinnar. Þar var leikin tónlist en
það var Nesstofa sem fór með aðalhlutverkið.
Atli Þór Ólason formaður Félags áhugamanna
um sögu læknisfræðinnar setti þingið og kallaði
síðan til sín tvo danska velgjörðarmenn íslenskrar
lækningasögu. Það voru þeir Aksel Kirkegárd for-
maður Augustiner sjóðsins og Povl Riis læknir og
íslandsvinur (kominn til landsins í 50. sinnl). Að
öðrurn ólöstuðum áttu þeir tveir stærstan þátt í því
að sjóðurinn styrkti endurbyggingu Nesstofu um
tvær danskar milljónir í vor. Var þeim báðum af-
hent heiðursmerki félagsins af þessu tilefni.
Formaður Læknafélags íslands eyddi einnig
lunganum úr sínu ávarpi í umfjöllun um Nesstofu
og þýðingu hennar fyrir íslenska lækningasögu. Að
ávarpi hans loknu sté Sverrir Tómasson í pontu og
fræddi ráðstefnugesti um íslensk handrit þar sem
fjallað er um læknisfræði. Um það var svo fjallað
meira síðasta dag þingsins.
Læknisfræði víikinga og munka
Gestirnir á þessu norræna þingi voru um 200 talsins
og þeir hlustuðu á yfir 50 fyrirlestra um breitt svið.
Yfirskrift þingsins var Sjúklingurinn og samfélagið
sem vissulega er rúmt hugtak enda var fjallað um
farsóttir á norðurslóðum, konur í læknisstörfum,
sögu tannlækninga og lyfjafræði og stöðu heimilis-
læknisins fyrr á öldum, svo fátt eitt sé talið.
682 Læknablaðið 2005/91