Læknablaðið - 15.09.2005, Side 47
UMRÆÐA & FRETTIR / SAGA LÆKNISFRÆÐINNAR
En það sem helst vakti áhuga undirritaðs (og
reyndar fleiri) var málstofa um læknisfræði vík-
inga og miðalda með sérstaka áherslu á ísland.
Aðalfyrirlesturinn flutti þýsk kona, Charlotte
Kaiser, og má segja að hún hafi tekið upp þráðinn
þar sem Sverrir Tómasson sleppti honum. Hún
hefur meðal annars verið að rannsaka fjögur íslensk
skinnhandrit frá miðöldum þar sem gefin er glögg
mynd af læknisfræðilegri þekkingu Islendinga á
13. öld. Par er lýst fjórum meðferðarkerfum sem
beitt var en þau voru töfralækningar, alþýðulækn-
ingar, hefðbundnar lækningar og munkalækningar.
Charlotte fór víða í fyrirlestri sínum en hún greindi
ítarlega frá rannsóknum sínum í viðtali við Lesbók
Morgunblaðsins í byrjun ágúst.
Næst kom í pontu ung vísindakona, Hildur
Gestsdóttir fornleifafræðingur, sem lesendur
Læknablaðsins kannast við því hún skrifaði grein
um mergæxli sem fannst í beinagrind á Hofstöðum
í Mývatnssveit. I erindi sínu ræddi Hildur um upp-
gröft sem fram hefur farið í Haffjarðarey á Mýrum,
Viðey og á Bessastöðum en kirkjugarðar þessara
staða geyma mikinn fróðleik um liðagigt, sýkingar,
beinbrot, vanskapanir og berkla.
Óttar Guðmundsson ræddi um berserki í
íslendingasögunum og kallaði þá „nowhere men“
með tilvísun í Bítlana. Enginn veit hvaðan þeir
koma (ef frá eru taldir tveir Svíar í Eyrbyggju)
og þeim svipar að mörgu leyti til sérsveitarmanna
nútímans. Þeir eiga það þó sameiginlegt að falla
yfirleitt fyrir hendi hetjunnar. Að sögn Óttars
voru þetta greinilega ungir menn haldnir persónu-
leikaröskunum sem voru notaðir í skítverkin.
Bókmenntalegt hlut-
verk þeirra var að vera
andstæða hetjunnar og
undirstrika þar með þau
kristnu gildi sem höf-
undar sagnanna vildu
að prýddu söguhetjur
sínar.
Islendingasögur i forgrunni
Eftir þetta var kærkomið að fá kaffi og kleinur
áður en næsti skammtur var innbyrtur. Þar var á
ferð bandarískur læknir á eftirlaunum, Charles
Poser að nafni, en hann hafði tekið sér það hlut-
verk að kenna norrænum víkingum um útbreiðslu
MS-sjúkdómsins um heiminn. Hann vísaði til
faraldsfræðilegra rannsókna sem sýna að þessi
sjúkdómur er hvergi útbreiddari en í þeim löndum
sem norrænir víkingar og afkomendur víkinga
lögðu undir sig. Það á bæði við lönd og eyjar við
Norður-Atlantshaf en einnig um fylkið Minnesota
í Bandaríkjunum þar sem hlutfall norrænna inn-
flytjenda er óvenjuhátt, sem og útbreiðsla MS.
/ lokfyrsta ráðstefnu-
dags var gestum boðið
að skoða Nesstofu og
Lyfjafrœðisafnið þar sem
Kristín Einarsdóttir úr
skipulagsnefnd þingsins er
öllum hnútum kunnug.
Efst til vinstri rœðir
Charlotte Kaiser við
íslenskan frœðimann en
efst til hœgri rýna gestir í
norrænt bókfell sem var til
sýnis í Þjóðmenningarhúsi
meðan opnunarhátíðin fór
fram.
Læknablaðið 2005/91 683