Læknablaðið - 15.09.2005, Síða 55
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MÓTTAKA KANDÍDATA
nægjandi og alls ekki veitt þá leiðsögn sem þörf er
á. Annars vegar er um að ræða áberandi mótsögn
sem þarf með einhverjum hætti að sætta. Hins
vegar blasir við sú staðreynd að efniviður siðmenn-
ingar þess þjóðfélags sem við búum í eru allar þær
eigindir sem fylgt hafa manninum fram að þessu,
hæfileikar, gáfur og sjúkdómar. Við lifum í samfé-
lagi sjúkra og heilla. Umönnun sjúkra er m.a. eitt
af því sem gert hefur okkur að þeim mönnum sem
við erum. Hvernig mun sú þekking sem til er að
verða á okkar dögum breyta mannlegu samfélagi
að þessu leyti? Læknar þurfa samfélagslega leið-
sögn í þessu tilliti. Þeir svara þessum spurningum
ekki einir.
Við í stjórn Læknafélagsins höfum kosið
að þessu sinni að dreifa til ykkar handbók um
siðamál lækna sem tekin hefur verið saman af
Alþjóðafélagi lækna, World Medical Association,
og byggir á samþykktum þess. Alþjóðafélag lækna
var stofnað eftir síðari heimsstyrjöldina af læknum
sem vildu koma í veg fyrir að atburðir stríðsins
endurtækju sig og að læknar tækju alls ekki þátt í
sams konar háttalagi og þeir höfðu gert á þessum
stríðstímum.
Hugsanlega má halda því fram að WMA sé
íhaldssamt, ósveigjanlegt og úr takti við siðfræði
okkar daga. Einkum hefur þessi gagnrýni beinst
að Helsinki-yfirlýsingunni, en hana þekkja flestir
læknar og læknisefni. Hinn siðfræðilegi grund-
völlur er sagður um of „Anglo-American“ og gefa
ekki nægan gaum að mismunandi menningarsam-
félögum og jafnvel mismunandi auðlegð þjóðanna
sem hljóti að hafa áhrif á afstöðu þeirra og hugs-
anlega getu til að mæta siðferðilegum viðmiðum
Vesturlandabúa.
Þeir sem verja yfirlýsinguna benda á að hún
hefur verið traustur bakhjarl vísindasiðfræði í
heiminum í 40 ár sem hefur gefist vel og þeir hafna
þeirri nytjasiðfræði markaðshyggjunnar sem rekur
á eftur breytingum og alls kyns afslætti í siðferði-
legum efnum. Varað er við að krísur eða „ad hoc“
úrlausnarefni séu látin ráða breytingum á grund-
vallarreglum, sem vísa eiga veginn við fjölbreyti-
legar aðstæður.
Því má hins vegar ekki gleyma að þessi siðferði-
legu viðmið sem við notumst við hafa sprottið upp
úr umhverfi stríðsátaka og mannlegrar niðurlæg-
ingar. Spurning er hvort nýjar forsendur hafa skap-
ast í velferðarsamfélaginu þar sem bæði almenn
og sértæk pólitísk viðhorf eru meira undir áhrifum Lœknakandídatar hlýða
mannúðarstefnu en áður. Eru forsendur aðrar nú á á boðskap formanns
dögum en áður fyrir gagnkvæmu trúnarðartrausti Lœknafélags fslands.
í samfélaginu? Eða mun vaxandi markaðshyggja
skapa ný vandamál að þessu leyti?
Markaðshyggjan er iðandi stórfljót sem við vilj-
um beisla í þágu mannúðar og til að deila gæðum.
Munu taumarnir halda þegar vernda þarf hið smáa
og hið veika?
Þessi viðfangsefni okkar krefjast þess að við
nálgumst þau með lotningu, sömu lotningu og
sömu undrun og vísindamaðurinn nálgast við-
fangsefni sitt. í áðurnefndum Hannesar Árnasonar
fyrirlesturm segir Nordal: „Bak við eyðimörkina
er ný útsýn og nýr skilningur. Þar undrast menn
stjörnurnar og blómin sem vísindamenn, mann-
eskjurnar sem skáld og sálfræðingar, yfirborð
hlutanna sem málarar. En alltaf undrast menn ef
rétt er séð. Því undrunin er ekki eingöngu upphaf
allrar visku og speki, eins og Platon sagði, heldur
líka endir hennar. Hvar sem við leitum fyrir okkur
að vita og skilja, finnum við að lokum ómælandi
haf og óleysandi gátur. Og gagnvart því er aðeins
ein afstaða til: að beygja kné sín og undrast.“
Primum nil nocere. Svo ég geri nú engan skaða
vil ég ljúka þessum orðum mínum hér og nú og
bjóða ykkur velkomin í hið alþjóðlega samfé-
lag lækna og til þátttöku í varðveislu þeirra gilda
sem varðað hafa veg læknisins allt frá dögum
Hippókratesar.
Læknablaðið 2005/91 691