Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2005, Side 56

Læknablaðið - 15.09.2005, Side 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ATHUGASEMD Nýi sloppur keisarans Jóhann Tómasson Höfundur er heilsugæslu- læknir í Mjódd. „Forstjóri íslenskrar erfðagreiningar stendur vaktina þessa dagana í afleysingum á taugasjúk- dómadeild Landspítalans." Þannig byrjaði Bogi Ágústsson stórfrétt ríkissjónvarpsins mánudaginn 18. júlí síðastliðinn. Daginn áður höfðu bæði stóru dagblöðin boðað tíðindin á forsíðu. Þessi afleysing Kára Stefánssonar á tauga- deild Landspítala var slíkt dómgreindarleysi og reginhneyksli að efast verður alvarlega um hæfi stjórnenda hins ríkisrekna heilbrigðiskerfis. Kári hefur skilyrt, takmarkað lækningaleyfi, útgefið til bráðabirgða 10. júní 1977. Önnur lækningaleyfi, sem íslenzk heilbrigðisyfirvöld hafa veitt honum, eru því sennilega ólögleg. Ferill Kára í verklegu og klínísku námi í lækna- deild Fláskóla íslands og á kandídatsári var með endemum. Um það getur heill her skólafélaga hans vitnað og fjölmargir aðrir. Þar á meðal núver- andi landlæknir, þá formaður félags læknanema. Kári fékk lækningaleyfi með undanþágu í júní 1977, þar sem hann var látinn undirrita eið, í vitna viðurvist, um að ljúka héraðsskyldu við fyrsta tæki- færi, enda „væri mér Ijúft að heita því að gera það að loknu sérnámi". (Sjá Guðni Th. Jóhannesson: „Kári í jötunmóð".) Kári hefur ekki starfað sem læknir á íslandi frá árinu 1977. í nærfellt áratug hefur hann ekkert starfað sem læknir. Þar áður vann Kári einkum við rannsóknir. Engu að síður er hann ráðinn til að „standa vakt- ina” á taugadeild Landspítala í fimm daga. Stekkur svo burt í miðju kafi til að opna hlutabréfamarkað í New York. Hvernig getur svona gerzt á æðstu heilbrigðisstofnun íslands? Er þetta leikhús? Það voru ekki gæði og traust sem þarna réðu ferð. Ekki einu sinni margrómað frelsi fólks til að velja sjálft lækni. Er ekkert gæðaeftirlit með ráðningum lækna? Beztu og færustu læknum þykir erfitt að taka upp þráðinn eftir nokkurra mánaða hlé. Hvað segir yfirstjórn spítalans? Gaf hún leyfi fyrir þess- ari ráðningu? Eins og sérstaklega var tekið fram í fréttatilkynningu að stjórn deCODE hefði gert. Hvað segir landlæknir? Veitti hann frekari undan- þágu á lækningaleyfinu? Kári talaði um „elegant tillögu" Elíasar Ólafs- sonar yfirlæknis taugadeildar. I sjónvarpinu 18. júlí sl. hafði hann eftir Elíasi „að þetta væri sniðug aðferð til þess að gera þessa góðu samvinnu ennþá betri, milli spítalans og íslenskrar erfðagreining- ar“. Hvers konar rugl er þetta eiginlega? Er það að- ferðin til að bæta enn frekar samvinnu Islenskrar erfðagreiningar og Landspítala að bjóða Kára vinnu á taugadeild? Skuldar taugadeildin Kára eitthvað? Hvað kemur næst? Við sem störfum sem læknar alla daga vikunnar hljótum að spyrja. Megum við eiga von á svona þjónustu við sjúklinga okkar, þegar við vísum þeim á Landspítala að vandlega athuguðu máli? Eru engin takmörk fyrir því hve hið ríkisrekna heil- brigðiskerfi ætlar að leggjast lágt í siðleysinu? J 692 Læknablaðið 2005/91

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.