Læknablaðið - 15.09.2005, Blaðsíða 57
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FRÁ LYFJASTOFNUN
Kódeinlyf verða tekin úr lausasölu
Forsaga málsins er sú að síðan vorið 2003 hefur
starfað vinnuhópur á vegum Lyfj astofnunar og Land-
læknisembættisins sem fjallað hefur um vandamál
tengd lausasölu verkjalyfja sem innihalda kódein.
í nefndinni hafa starfað fulltrúar Lyfjastofnunar,
landlæknisembættisins, apótekslyfjafræðinga og
sjúkrahúslyfjafræðinga. Niðurstaða nefndarinnar
var að leggja til að verkjalyf sem innihalda kódein
verði tekin úr lausasölu. Niðurstaðan byggir eink-
um á tvennu: veruleg misnotkun virðist eiga sér
stað og efasemdir eru um notagildi 10 mg kódeins
í hverri töflu eða stíl.
Á íslandi er heimilt að selja í lausasölu 10
stykkja pakkningar af lyfjum sem innihalda para-
setamól 500 mg og kódein 10 mg í töflu eða enda-
þarmsstíl (parkódín) og einnig íbúprófen 200 mg
og kódein 10 mg í töflu (íbúkód). Aðrar pakkn-
ingar þessara lyfja eru lyfseðilsskyldar og einnig
eftirritunarskyldar, ef heildarmagn kódeins fer yfir
eitt gramm.
Sala þessara lyfja í lausasölu hefur aukist gríð-
arlega á undanförnum árum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
hefur sala á lausasölulyfjum með kódeini, en lang-
stærsti hlutinn er parkódíntöflur, aukist stöðugt frá
því lyfin komu á markað 1989 og er nú nálægt átta
DDD/1000/dag (DDD, ráðlagðir dagsskammtar)
sem er mörgum sinnum meira en í Danmörku þar
sem verkjalyf með kódeini eru einnig í lausasölu.
Sé hins vegar litið á heildarnotkun verkjalyfja og
bólgueyðandi gigtarlyfja hefur hún einnig farið
hægt vaxandi í Danmörku og Noregi eins og hér
á landi en hér er þessi heildarnotkun nokkurn
veginn sú sama og í Danmörku og nokkru hærri
en í Noregi.
Ýmsar vísbendingar eru um að þessi lyf séu mis-
notuð sem fíknilyf vegna kódeininnihaldsins enda
er mjög auðvelt að ná tiltölulega hreinu kódeini úr
töflunum og þarf til þess ekki annan búnað en er
til í venjulegu eldhúsi. Þetta vandamál er vel þekkt
hér á landi sem erlendis. Hér á landi eru til upp-
lýsingar um einstaklinga sem nota allt að 70 töflur
af parkódín á dag í því skyni að svala kódeinfíkn
sinni. Gögn frá SÁÁ sýna að innlagnir á Vog vegna
kódeinfíknar voru nánast óþekktar fyrir 10 árum en
eru nú yfir 70 á ári. Svipað gildir um innlagnir vegna
morfínfíknar sem einnig voru nánast óþekktar fyrir
10 árum en eru nú milli 150 og 200 á ári. Þessar upp-
lýsingar sanna ekki að vaxandi lausasala kódeinlyfja
sé orsök hratt vaxandi fjölda ópíumfíkla en vekja
óneitanlega grunsemdir um orsakasamhengi.
Mörg Evrópulönd eru ekki með nein verkja-
lyf sem innihalda kódein í lausasölu og má þar
nefna sem dæmi Noreg, Svíþjóð, Belgíu, Holland,
Þýskaland og Ítalíu. Kódeinblönduð verkjalyf eru
hins vegar í lausasölu í löndum eins og Danmörku,
Frakklandi og Bretlandi.
í Noregi og Svíþjóð var verkjalyfjum með 10 mg
af kódeini í töflu hafnað á sínum tíma vegna þess
að ekki þótti sannað að svo lítill skammtur hefði
marktæka verkun. Við heimildaleit fundust engar
heimildir sem sýna tryggilega fram á marktæka
viðbótar verkjastillandi verkun af 10 mg kódeins í
töflu, umfram parasetamól eða íbúprófen.
Því má svo bæta við að vegna erfðafræðilegs
breytileika í lifrarensímum (CYP2D6) geta 7-10%
allra einstaklinga hvíta kynstofnsins ekki breytt
kódeini í morfín og fá þess vegna litla sem enga
verkjastillandi verkun eftir töku kódeins. Þetta
rýrir gildi kódeins við verkjum.
Viðhorf apótekslyfjafræðinga voru könnuð
óformlega og voru viðbrögðin á þá leið að þeir
sem talað var við töldu flestir að lausasölulyf með
kódeini séu misnotuð og best væri að taka þau úr
lausasölu.Viðhorf lækna voru einnig könnuð. Bréf
voru send til nokkurra sérgreinafélaga lækna og til
lyfjanefndar tannlækna. Þrátt fyrir ítrekanir bárust
einungis svör frá tveimur. Svörin voru nokkurn
veginn samhljóða, verkjalyf með kódeini megi vel
taka úr lausasölu, slík aðgerð sé ekki líkleg til að
valda vandræðum meðal annars vegna góðs að-
gengis að læknum og vænlegar mótvægisaðgerðir
séu fræðsla um verkjameðferð.
í tilskipun Evrópusambandsins nr. 2001/83/EB,
grein 71 og nánar í leiðbeiningum frá 1998 er fjall-
að um skilyrði fyrir lausasölu lyfja. Skýrt er kveðið
á um að lyf sem hætta er á að valdi ávana og fíkn
og séu misnotuð skuli vera lyfseðilsskyld. Þessi til-
skipun er í gildi hér á landi og ljóst er að samkvæmt
henni eiga kódeinlyf ekki að vera í lausasölu.
Verkjalyf sem innihalda kódein verða fljótlega
tekin úr lausasölu hér á landi en þau verða áfram
á markaði og þess vegna hægt að ávísa þeim með
lyfseðli. Ekki er gott að sjá fyrir allar afleiðingar
þessarar ráðstöfunar en eflaust fá læknar talsvert
af fyrirspurnum frá sjúklingum sínum. Verið er
að ganga frá bæklingi um verki og verkjalyf sem
ætlunin er að liggi frammi í apótekum og víðar og
vonast er til að hann geti veitt gagnlegar leiðbein-
ingar fyrir marga af þeim fjölmörgu sem fara í apó-
tek til að fá eitthvað við verkjum. Þegar nær dregur
því að kódeinlyf verði tekin úr lausasölu verða
sendar fréttatilkynningar til fjölmiðla og búast má
við einhverri fjölmiðlaumræðu um þetta mál.
Magnús
Jóhannsson
Höfundur er læknir og starfar
hjá Lyfjastofnun.
Læknablaðið 2005/91 693