Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 8
200o
300o
400o
1000 m
500 m
2000 m
1500 m
500o
Heitasti staðurinn
í sumar!
Kvika
Verið velkomin í heimsókn í sumar!
Krafla: Jarðvarmasýning er opin 10-17 alla daga.
Búrfell: Gagnvirk orkusýning er opin 10-17 alla daga.
Vindmyllur á Hafinu: Starfsfólk tekur á móti gestum alla
laugardaga í júlí, frá 13 til 17.
Kárahnjúkastífla: Leiðsögn um svæðið miðvikudaga
og laugardaga, frá 14 til 17.
www.landsvirkjun.is/heimsoknir
Á ferð um Norðurland er upplagt að heimsækja
háhitasvæðið við Kröflu og kynnast brautryðjenda–
verkefni í vinnslu jarðvarma. Gestastofan er opin
alla daga og það er alltaf heitt á könnunni.
B eint frá býli er félag heimavinnsluaðila sem var stofnað árið 2008 og innan þess starfa hátt í 100 bændur sem vinna og selja vörur sínar
beint frá býli. Tilgangur félagsins er að hvetja til
heimavinnslu afurða og vinna að hagsmunum bænda
sem hyggjast stunda framleiðslu og sölu á heima-
unnum afurðum.
„Þetta eru regnhlífarsamtök fyrir bændur sem vilja
vinna sínar vörur sjálfir og selja þær beint. Í grunninn
getum við sagt að heimavinnslan sé til að hafa ein-
hverjar tekjur af afurðum okkar,“ segir Guðmundur
Jón Guðmundsson, bóndi á Holtsseli og formaður
Beint frá býli samtakanna. „Ef bóndinn leggur lamb
inn í sláturhús, tekur það svo aftur út sjálfur og selur
það án milliliða, þá fær hann tvöfölt hærri laun fyrir
lambið.“
Naut skiptir oft um kyn í stóru sláturhúsunum
Guðmundur segir vörur Beint frá býli auk þess
tryggja gæði til neytenda þar sem öryggi og rekjan-
leiki sé í fyrirrúmi. „Svona heimasala byggist að
sjálfsögðu á því að þú gerir þína vöru sem besta svo
viðskiptavinurinn komi aftur. Hakkið sem þú kaupir
beint frá bónda er til að mynda alveg laust við vatn og
kartöflumjöl. Það sem ég sel yfir borðið mitt er kjöt af
gripunum mínum sem ég vil sjálfur borða. En þegar
kjötið fer í gegnum stórt sláturhús fer allt í hakkið
og varan getur breytt um kyn í millitíðinni þrátt fyrir
að allt sé stimplað naut. Menn
eru auðvitað alltaf að reyna
að keyra niður verðið. Fyrir
lambakjötið eru til að mynda
um 20 eða 30 verðflokkar fyrir
kjöt sem fer inn í húsið en ég
hef nú aldrei séð nema einn
flokk í búðunum.“
Nýtt sláturhús á Seglbúðum
Á Íslandi er heimaslátrun ekki
leyfð nema afurðirnar séu til
eigin nota og ekki til sölu. Kjöt
af búpeningi verður að vera af
gripum sem hefur verið slátrað
í viðurkenndu sláturhúsi og
heilbrigðisskoðað. Þróun síð-
ustu ára hefur verið sú að sláturhúsum fækkar og þau
stækka. Sífellt erfiðara er því fyrir bændur að fylgja
vöru sinni eftir. „Það er til að mynda ekkert sláturhús
á Vestfjörðum sem þýðir að gripirnir þurfa að ferðast
mörg hundruð kílómetra í slátrun. Sú meðferð á
skepnum þykir mér taka út yfir allan þjófabálk.“
Guðmundur segir þróunina vera að snúast við
vegna aukinnar meðvitundar neytenda.
„Fyrsta litla sláturhúsið er að komast á legg núna í
haust. Það er á Seglbúðum við Kirkjubæjarklaustur,
bænum hans Jóns Helgasonar, fyrrverandi landbúnað-
arráðherra, og þeir hafa fengið leyfi fyrir slátrun á um
50 kindum og munu vonandi slátra í haust.“
Aðeins 6 aðilar á landinu
kunna að gera skyr
Beint frá býli vill einnig
hvetja til varðveislu hefð-
bundinna framleiðsluaðferða
og hefðum í matargerð. „Eins
og til dæmis skyrið okkar,“
segir Guðmundur. „Það eru
ekki nema sex aðilar á Íslandi
í dag sem gera skyr á hefð-
bundinn hátt. Sú hefð deyr
út ef henni er ekki haldið við.
Svo veit ég til þess að þau
í Reykkofanum í Mývatns-
sveit eru að vinna eftir upp-
skrift frá ömmu þeirra. Það er verið að reyna að halda
í þetta gamla og koma því inn í þann veruleika sem
við sjáum erlendis, þar sem menn eru víða með búðir
heima hjá sér. Við erum að koma okkur inn í þetta
hægt og rólega.“
Á höfuðborgarsvæðinu er hægt að nálgast vörur
Beint frá býli í sérverslunum eins og Frú Laugu,
Melabúðinni og Lifandi markaði en þar að auki er
mjög auðvelt að panta heimsendingu á heimasíðu
samtakanna: www.beintfrabyli.is
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Engin aukaefni í
hakki beint frá býli
Guðmundur Jón Guðmundsson, bóndi á Holtsseli og formaður Beint frá býli samtakanna, segist
aðeins selja það kjöt sem hann myndi sjálfur borða, án allra aukaefna. Auk þess að tryggja gæði
vörunnar sé Beint frá býli stimpillinn ávísun á atvinnusköpun, hærri laun til bænda og varðveislu
hefða sem séu að deyja út.
„Það er til að mynda ekkert sláturhús á Vestfjörðum sem þýðir að gripirnir þurfa að ferðast mörg
hundruð kílómetra í slátrun. Sú meðferð á skepnum þykir mér taka út yfir allan þjófabálk.“
Guðmundur Jón Guðmundsson, bóndi á Holtsseli og formaður
Beint frá býli.
Verðdæmi
1 kg. hakk
- Beint frá HoltS-
Seli: 1400 kr.
til SAmAnBurðAr
- frá kJötHöllinni:
2298 kr.
1 kg. lund
- Beint frá HoltS-
Seli: 5200 kr.
til SAmAnBurðAr
- frá kJötHöllinni:
6878 kr.
1 kg. framfillé
- Beint frá HoltS-
Seli: 3000 kr.
til SAmAnBurðAr
- frá kJötHöllinni:
5990 kr.
Vanilluís 1 l.
- HeimAGerður á
HoltSSeli: 1400
til SAmAnBurðAr
- frá kJöríS:
668 kr.
BeiNt frá Býli merkið tryggir:
- Gæði
- rekjanleika
- milliliðalausa verslun
- Heimavinnslu og verndun hefða
- kynningu á svæðisbundnum hráefnum
8 fréttaskýring Helgin 11.-13. júlí 2014