Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 12
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Sigríður Dögg
Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@
frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
G engi krónunnar hefur verið stöðugt að undanförnu en raungengi krónunnar hefur hækkað nokkuð frá því það var lægst árið 2009. Hagfræðideild Landsbanka Íslands bendir á, í nýrri Hagsjá, að Seðlabankinn
virðist vera sáttur við núverandi raungengi
krónunnar. Í síðustu fundargerð peninga-
stefnunefndar bankans kom fram að nefndin
telur að raungengi nú sé ekki fjarri því sem
telja mætti ásættanlegt næstu
misserin. Seðlabankinn til-
kynnti í liðnum mánuði að
regluleg kaup á gjaldeyris-
markaði yrðu tekin upp á ný
en bankinn gerði hlé á þeim í
árslok 2012. Hagfræðideildin
metur það svo að ólíklegt sé
að bankinn ætli sér að leyfa
gengi krónunnar að styrkjast
næstu mánuði, heldur muni
hann kaupa þann afgangs-
gjaldeyri sem kemur inn á
gjaldeyrismarkað.
Það kann að skjóta skökku við, segir enn
fremur, að krónan skuli vera svona stöðug
og að Seðlabankinn geti keypt upp gjaldeyri
þegar halli er á vöruskiptum við útlönd en
hann nam 7,7 milljörðum króna í júní. Fyrstu
sex mánuði ársins var hallinn 3 milljarðar
króna en þetta er í fyrsta skipti síðan árið
2008 að halli er á vöruskiptum við útlönd
á fyrri helmingi ársins. Viðsnúningurinn
skýrist af minni útflutningi sjávarafurða
og áls, auk meiri innflutnings. Það er hins
vegar hin ótrúlega gróska í ferðaþjónustunni
sem drífur hagkerfið áfram, það er að segja
aukinn afgangur af þjónustuviðskiptum við
útlönd. Greining Íslandsbanka fjallar um
stöðuna á sömu nótum og segir allt benda
til þess að hreint gjaldeyrisinnflæði vegna
þjónustuviðskipta verði umtalsvert meira en
vegna vöruskipta. Innbyrðis þróun á milli
þessara þátta hefur gerst hraðar en reiknað
var með. Fyrstu árin eftir hrun var afgangur
af vöruskiptum hátt í þrisvar sinnum meiri
en hann var af þjónustuviðskiptum en litlu
munaði þó í fyrra.
Miðað við tölur um metfjölgun ferða-
manna má ætla, segir greiningardeildin, að
afgangur af þjónustujöfnuði vegna ferða-
laga hafi aldrei verið meiri en nú. Gróflega
áætlar hún að afgangurinn á öðrum árs-
fjórðungi þessa árs hafi numið um 12 millj-
örðum króna samanborið við 7,5 milljarða
í fyrra.
Þjónustuútflutningur gegnir því lykilhlut-
verki við að afla gjaldeyris fyrir þjóðarbúið
enda bendir allt til þess að á árinu verði
hreint gjaldeyrisinnflæði vegna þjónustuvið-
skipta umtalsvert meira en hreint innflæði
vegna vöruskipta.
Það metár í ferðaþjónustu sem að óbreyttu
er í uppsiglingu er fagnaðarefni. Fari sem
horfir fer tala erlendra ferðamanna sem
hingað koma í fyrsta skipti yfir milljón.
Ferðaþjónustan dregur því vagninn þegar út-
flutningsverðmæti sjávarafurða og iðnaðar-
vara dregst saman, skilar þeim gjaldeyri
sem þarf til að halda gengi krónunnar tiltölu-
lega stöðugu.
Uppgangurinn í ferðaþjónustunni hefur
margvísleg jákvæð áhrif og bætir þjónustu-
stig um allt land, auk hinna beinu efnahags-
legu áhrifa. Alls konar þjónusta stendur nú
til boða sem ekki var fáanleg áður. Vaxtar-
verkir fylgja hins vegar svo örri þróun og svo
mikill fjöldi gesta hefur breytingar í för með
sér. Margir hafa með réttu varað við hugs-
anagangi gullgrafara í sókn eftir skyndi-
gróða. Sigurður Már Jónsson, upplýsinga-
fullrúi ríkisstjórnarinnar, nefnir í nýrri grein
hin jákvæðu áhrif sem ferðamannafjölgunin
færir okkur en bendir jafnframt á atriði sem
áhyggjur vekja, meðal annars deilur um
gjaldtöku á vinsælustu ferðamannastöðun-
um og hver eigi að borga vernd þeirra og við-
hald og halda uppi þjónustustigi. „Ekki getur
verið með öllu sanngjarnt að skattgreið-
endur sitji uppi með þennan reikning og það
vegna greinar sem seint ætlar að reka af sér
slyðruorðið vegna skattsvika,“ segir Sigurð-
ur. Hann nefnir enn fremur að ferðagreinin
kalli á nýja sérhæfingu og að skortur sé að
verða á starfsfólki. Þá kalli aukið álag á vega-
kerfi landsins á ný verkefni og umbætur.
Vöxtur ferðagreinarinnar er jákvæður
og skilar miklu en gæta verður að því að
sem úrskeiðis getur farið í svo örum vexti.
Vöxturinn kallar á snerpu í viðbrögðum
stjórnvalda þegar að stefnumótun kemur.
Gjaldeyrisinnflæði vegna þjónustuviðskipta vegur upp halla á vöruskiptum
Ferðaþjónustan dregur vagninn
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LOABOROTORIUM LóA hjáLMTýsdóTTIR
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
MIÐASALA: 412 7711 - WWW.BIOPARADIS.IS
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI Í SAL 1
FRÍTT INN
EYE ON FILMS
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
Vinur við veginn
11 kg
2 kg
5 kg
10 kg
Smellugas fyrir
grillið, útileguna
og heimilið
Smellugas
Einfalt, öruggt og þægilegt!
eftir William Shakespeare
B
ra
n
de
n
bu
rg
Tryggðu þér miða í síma 528 5050,
á midi.is og harpa.is
Shakespeare’s Globe á Íslandi
www.harpa.is/hamlet
Fyrsta leikhúsuppfærslan
í Eldborg
23. júlí kl. 19:30
Hamlet
12 viðhorf Helgin 11.-13. júlí 2014