Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 16
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SUMARÚTSALAN HAFIN
KLASSÍSK GÆÐAVARA
SUMARYFIRH
AFNIR - SPAR
IKJÓLAR - GA
LLAFATNAÐ
UR -
BOLIR - PILS
- PEYSUR OG
MARGT FLE
IRA
40%-60% afsláttur
Stórbrunar í Reykjavík
Júlí 2014
1. Skeifan
Gríðarlegt tjón í stórbruna hjá Griffli,
Fönn, Rekstrarlandi og fleiri fyrirtækjum
í Skeifunni 6. júlí. Mat á tjóni liggur ekki
fyrir en ljóst að það nemur hundruðum
milljóna króna.
Júlí 2011 og nóvember 2004
2. Hringrás
Endurvinnslufyrirtækið Hringrás við
Sundahöfn, tveir stórbrunar 2011 og
nóvember 2004. Mikill eldur og reykur
þann 12. júlí 2011. Hagstæð vindátt varn-
aði því að reykur af brennandi gúmmíi
bærist yfir nærliggjandi hverfi.
Nóvember 2004 Gríðarleg reykmengun.
Reyk sót og eiturgufur lagði yfir nær-
liggjandi byggð í bruna 22. nóvember
2004. Um 600 manns við Kleppsveg var
gert að rýma heimili sín.
Apríl 2007
3. Lækjargata
og Austurstræti
Rúmlega 200 ára gamalt hús, Austur-
stræti 22, gjöreyðilagðist í stórbruna í
miðborg Reykjavíkur og Lækjargata 2
sem var reist fyrir meira en 150 árum
stórskemmdist. Saman mynduðu þessi
hús eina elstu varðveittu götumynd í
Reykjavík.
Ágúst 2002
4. Fákafen
Mikill eldur í verslunar- og lagerhúsnæði
við Fákafen 9 þann 7. ágúst. Þar kviknaði
í lager verslunarinnar Teppalands. Á
annan tug fyrirtækja ráku verslanir eða
voru með vörulagera í húsinu, auk þess
sem Reykjavíkurborg geymdi þar verk
í eigu Listasafns Reykjavíkur. Tjón nam
mörg hundruð milljónum króna.
Október 2002
5. Laugavegur
Eldsvoði við Laugaveg 19. október 2002.
Fimm íbúðir í tveimur samliggjandi
húsum við Laugaveg eyðilögðust í mesta
eldsvoða sem orðið hafði í íbúðabyggð í
Reykjavík í áratugi. Mikil sambrunahætta
ríkti sökum nálægðar timburhúsa við
eldsupptökin.
Júlí 1998
6. Lækjargata
og Austurstræti
Stórbruni varð 30. júlí 1998 þegar hús
Nýja bíós á mótum Lækjargötu og Austur-
strætis brann. Slökkviliðsmaður var hætt
kominn þegar brennandi loftstokkur féll
yfir hann.
Janúar 1989
7. Réttarháls
Stórbruni 4. janúar er Gúmmívinnustofan
eyðilagðist algjörlega auk þess sem sex
önnur fyrirtæki sem höfðu starfsemi
í húsnæðinu og viðbyggingu þess
skemmdust mikið. Tjónið nam hundr-
uðum milljóna króna.
Október 1975
8. Skeifan
Tugmilljóna tjón er eldur kom upp
aðfararnótt 29. október í Persíu
teppaverslun sem stóð við Skeifuna 11, á
sama stað og stórbruninn varð um liðna
helgi. Eldurinn komst í gegnum vegg og á
verðmætan lager Stillingar. Litlu munaði
að stórslys yrði morguninn eftir þegar
hluti þaks féll yfir brunarústirnar þar sem
aðalvarðstjóri Slökkviliðsins hafði staðið
sekúndum áður.
Mars 1967
9. Lækjargata
Stórbruni varð á horni Vonarstrætis og
Lækjargötu. Þar brunnu þar 3 hús til
grunna. Stórhýsi Iðnaðarbankans stór-
skemmdist í eldinum.
Ágúst 1967
10. Borgartún
Eldur kom upp í vöruskemmum Eimskips
30. ágúst en þar voru þúsundir tonna af
vörum í geymslu. Slökkviliðið barðist við
eldinn í rúmlega sólarhring. Eignatjón
varð meira en áður hafði orðið í eldsvoða
hérlendis.
Júlí 1963
11. Rauðarárstígur
Stórbruni í gasstöðinni Ísaga 18. júlí.
Hættuástand skapaðist vegna gífurlegra
sprenginga á staðnum. Miklar skemmdir
urðu á húsum í námunda við gasverk-
smiðjuna og flúði fólk íbúðir sínar
umhverfis hana, enda flugu járn- og
steinflykki langar leiðir. Svo mikill var
loftþrýstingurinn af sprengingunum
að rúður brotnuðu í húsum langa vegu
frá brunastað, allt að Snorrabraut og
Grettisgötu.
Janúar 1962
12. Reykjavíkurflugv.
Gamlir herbraggar Loftleiða og Flug-
málastjórnar brunnu til kaldra kola
29. janúar. Þar brann varahlutalager
Loftleiða, vín- og vörulager. Bruninn varð
til þess að Loftleiðir fluttu starfsemi sína
til Keflavíkurflugvallar.
Febrúar 1944
13. Aðalstræti
Hótel Ísland, sem stóð við Aðalstræti á
lóð sem síðar var þekkt sem Hallæris-
planið, brann aðfararnótt 3. febrúar.
Húsið brann til kaldra kola á tveimur
tímum. Einn maður fórst.
Apríl 1943
14. Laugarnes
Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi brann
til grunna 7. apríl. Hernámsliðið hafði þá
yfirtekið spítalann. Þeir fáu holdsveik-
sjúklingar sem enn voru á landinu höfðu
nokkru áður verið fluttir á Kópavogshæli.
Apríl 1915
15. Miðbær Rvk.
Mesti bruni sem orðið hefur í Reykjavík
var aðfaranótt 25. apríl 1915, en þá fórust
tveir menn í gífurlegu eldhafi sem varð í
miðbæ Reykjavíkur þar sem samtals tólf
hús brunnu á skammri stundu.
Júní 1901
16. Klöpp
Mikill eldur og mengun þegar 150
tunnur af steinolíu brunnu 21. júní 1901
í steinolíubyrgi Reykjavíkurkaupmanna
skammt frá Batteríinu svonefnda við
Klöpp. Eldsmagn var mikið, reykjarsúlu
lagði hátt í loft upp og sást hún víða að.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Gríðarlegt eignatjón – jafnvel
manntjón
Mikið eignatjón – menningar-
verðmæti glatast
Umtalsvert eignatjón – Rask
fyrir íbúa
Bruni stakra húsa – mengun
1 4
8
10
11
12
13
14
16
15
3
9 5
7
6
2
Vel mannað og tækjum búið slökkvilið er nauðsyn því reglulega þarf að berjast við bruna – og
stundum stórbruna eins og í Skeifunni um síðustu helgi. Tjón getur orðið gríðarlegt í alvarlegum
brunum. Hér rifjum við upp nokkra stórbruna í Reykjavík, allt frá upphafi 20. aldar.
16 úttekt Helgin 11.-13. júlí 2014