Fréttatíminn - 11.07.2014, Blaðsíða 27
Gott. Betra. Bosch.
Hjá Bosch er hvert smáatriði gaumgæft. Þess vegna prófar Bosch allar vörur
sínar vel og vandlega. Og svo prófa þeir þær aftur. Síðan prófa aðrir þær, til
dæmis Råd & Rön og hliðstæðar prófunarstofnanir í löndum víða í Evrópu.
Árangurinn? Sigursælt vörumerki!
Gæðin endurspeglast af hverju smáatriði.
Hæsta einkunn fyrir hraða og viðurkenning
fyrir gæði og góða frammistöðu hjá sænska
prófunar- og rannsóknarsetrinu Testfakta,
september 2013.
Uppþvottavél
SMU 53M72SK
Kæli- og
frystiskápur
KGN 36AW32
Hrærivél
MUM 52120
Hraðsuðukanna
TWK 8611
Ryksuga
BSGL 52237
Þvottavél
WAY 32890SN
Spanhelluborð
PIE 645F17E
Ryksuga
BGL 35MOV11
HÆSTA EINKUNN Ap
ríl
2
01
3
HÆSTA EINKUNN nó
v.
2
01
2
HÆSTA EINKUNN m
ar
s
20
13
GÓÐ KAUP ap
ríl
2
01
3
HÆSTA EINKUNN M
aí
2
01
3
HÆSTA EINKUNN se
pt
. 2
01
3
HÆSTA EINKUNN de
s.
2
01
2
HÆSTA EINKUNN m
ar
s
20
13
fyrir. Svo þurfti ég að panta krana-
bíl sem hífði herlegheitin upp á
svalir því þetta var á þriðju hæð.
Það þurfti að loka götunni í smá-
stund því ég var að flytja plötur.“
Þannig að pabbi þinn var alveg
jafn heltekinn af þessu eins og þú?
„Hann var töluvert verri, því
hann hirti allt. Ef einhver var að
losa sig við plötur fyrir austan þá
var hringt í Viðar Júlí,“ segir Andri
sem á ekki langt að sækja söfnun-
aráráttuna.
„Það var samt mjög mikið af
drasli í þessu safni. Einhverjar
harmonikkuplötur og þýskar út-
gáfur af þekktum popplögum og
slíkt. Það fékk alltaf að fjúka.“
Plötusöfnun krefst mikillar þol-
inmæði. Oft þarf að leita mjög lengi
til þess að finna eitthvað almenni-
legt. Sérstaklega þegar maður er
með stórt safn.
„Oft fer maður á bömmer þegar
maður er að leita, en á endanum
finnur maður alltaf eitthvað gott.
Þá gleymist fljótt tíminn sem fór í
það að leita, því að hann getur oft
verið langur.“
Hvað með uppröðun á safninu,
er stafrófsröðin klassísk eða eru
menn að prófa eitthvað annað?
„Einu sinni prófaði ég að raða
upp eftir stílum, en það er leiðin-
legt og flókið. Hvar á ég að setja
Black Sabbath? Í 70´s rokk eða bara
Þungarokk? Þetta er allt á gráu
svæði. Það sem er skemmtilegt við
stafrófsröðina er að þá finnur mað-
ur Squarepusher við hlið Steppen
Wolf. Eykur nýbreytnina.“
Þegar kemur að plötukaupum
eru nokkrar plötubúðir á Íslandi.
Lucky Records er þar fremst í
flokki. Svo eru verslanir eins og
Hljómsýn, Smekkleysa og Geisla-
diskabúð Valda sem eiga vínyl,
ekki má svo gleyma 12 Tónum og
Skífunni sem oft eiga góða rekka.
En hvar í heiminum hefur Andra
fundist best að versla? Hver er
besta búðin í heiminum?
„Amiba,“ segir Andri strax,
næstum með smá lotningu.
„Það er plötubúð sem er í San
Fransisco og líka í Los Angeles,
það er held ég besta plötubúð í
heimi. Ég fór í hana í San Fransisco
og það var mjög erfitt. Í rauninni
alveg hrikalegt. Ég ætlaði bara
aðeins að kíkja inn og það var bara
sturlun, hausinn á mér fór bara í
hringi. Úrvalið er svakalegt, þeir
eiga allt. Alveg ótrúlegt, rosalega
stór búð, stór salur. Maður labbar
ganga fulla af plötum. Súpermark-
aður með plötur. Ég varð að setja
mér einhverjar hömlur, einhver
mörk. Ég gat ekki verið að eyða
öllum peningunum mínum né
þurfa að flytja fleiri kíló af plötum
heim. Gat ekki leyft mér það. Svo
ég leyfði mér bara að versla í 7”
rekkanum, annars hefði þetta farið
út í vitleysu. Það var erfitt að rölta
þarna í gegn.“
Sástu þarna eitthvað sem þú
hafðir ekki séð áður?
„Þetta var áður en Lucky Re-
cords opnuðu hér, svo vínyllinn var
í smá lægð hérna heima. Þannig að
það var nýtt fyrir manni að sjá alla
þessa nýju titla sem voru að koma
út. Það segir mikið um úrvalið að
ég hef aldrei séð annarsstaðar sér
DVD Black Metal rekka, en hann
er þarna.“
Það eru mikil verðmæti í göml-
um vínyl. Hver er verðmætasta
platan í safni Andra?
„Ég veit það ekki, kannski Icec-
ross og Svanfríður, fyrsta platan
með Björk sem kom út þegar hún
var barn, maður má samt ekki
pæla of mikið í því. Þessar þrjár
eru svona þær helstu. Annars er
þetta alltaf að hækka með hverju
árinu. Það er hægt að fá allt fyrir
rétt verð.“
Andri á von á sínu fyrsta barni
með unnustu sinni og hann er
strax farinn að undirbúa fæð-
inguna.
„Ég er búinn að kaupa slatta af
barna vínyl. Það verður að kenna
þeim að bera virðingu sem fyrst
fyrir þessu. Ég á 3ja ára stjúpson
sem er að ná þessu. Hann veit
fátt betra en að sitja upp í sófa og
hlusta á Póstinn Pál á vínyl. Velur
það fram yfir sjónvarpið, sem er
ánægjulegt. Ég er mjög hepp-
inn með konu, hún sýnir þessu
mikinn skilning og er alltaf voða
glöð þegar ég kem heim með nýjar
plötur.“ Segir Andri og setur nýja
plötu á fóninn.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
viðtal 27 Helgin 11.-13. júlí 2014