Fréttatíminn - 11.07.2014, Síða 38
38 hönnun Helgin 11.-13. júlí 2014
Hönnun ÓttHar Edvardsson nýtir rEkavið og annað Efni sEm fEllur til
Smíðar húsgögn úr vörubrettum
Ótthar Edvards-
son, fram-
kvæmdastjóri
Þróttar, eyðir
frístundum sínum
inni í bílskúr þar
sem hann hannar
og smíðar muni
og húsgögn úr
vörubrettum og
rekavið. Hann
segir gaman
að sjá tréhrúgu
verða að verki í
stofunni og ekki
verra ef aðrir
kunni líka að
meta það.
Þ að er gríðarleg vakning með þetta núna úti um allt. Maður sér það þegar maður
„sörfar“ á netinu,“ segir Ótthar
Edvardsson. Hann hefur undan-
farin ár dundað sér við að smíða
húsgögn og ýmsa muni úr vöru-
brettum og rekavið.
Ótthar er framkvæmdastjóri
knattspyrnufélagsins Þróttar en
notar frístundir í smíðar í bílskúrn-
um. Vörurnar selur hann í gegnum
Facebook þar sem finna má hann
undir ÓE design.
„Það hefur alltaf blundað
fönduráhugi í mér. Pabbi er mikill
safnari og grúskari og hendir
engu. Það er ríkt í mér. Þegar ég
flutti norður í Skagafjörðinn fyrir
þremur árum byrjaði ég að fikta
við þetta því þar er allt morandi í
rekavið og alls kyns hlutum sem
falla til. Einhvern veginn fór ég að
sjá alls konar möguleika í þessu,“
segir Ótthar.
Hann kveðst vera afskaplega lít-
ill sölumaður og fyrst um sinn hafi
smíðarnar bara verið fyrir hann
sjálfan. „Síðan vatt þetta upp á sig.
Ég fór að skoða á netinu og fékk
alls kyns hugmyndir og með tíð og
tíma eykst færnin líka. Svo fór fólk
að hvetja mig til að gera eitthvað
meira með þetta,“ segir Ótthar en
hann var duglegur að gefa fólki í
kringum sig handverk sitt. „Já, það
var vinsælt að fá okkur í veislur.
Fólki finnst gaman að fá hand-
unnar gjafir.“
Hvað smíðarðu?
„Ég byrjaði að smíða úr reka-
við. Hann tekur á sig alls konar
myndir og býður upp á ýmsar út-
færslur. Svo fór þetta að færast yfir
í brettin. Ég smíða ýmislegt; borð-
stofuborð, konsúmborð, skilti og
kertastjaka sem ég held mikið upp
á. Að sjá tréhrúgu verða að verki
í stofunni gefur manni mikið en
það er líka gaman þegar öðru fólki
finnst þetta flott.“
Þú hafðir nægan efnivið fyrir
norðan. Hvernig gengur þér að
finna efni hér í borginni?
„Það er aðeins meira vesen, sko.
Ég var eiginlega eins og krakki í
nammibúð fyrir norðan. Ég er bú-
inn að gera þegjandi samkomulag
við nokkrar búðir um vörubretti
en ég nýti bara bretti sem eru ekki
seld. Það er fullt af hlutum sem
hægt er að nýta sem er hent hvort
eð er.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Ótthar Edvardsson
smíðar húsgögn og
muni úr vörubrettum
og rekavið. Konan
hans hjálpar honum
við að selja munina
og bræður hans,
pabbi og börnin taka
þátt í smíðunum.
Ljósmyndir/Hari
Sófaborðið hjá Ótthari er úr vörubrettum og hann hefur betrekkt einn vegg úr sama við.
Glæsilegur bekkur í forstofunni hjá Ótt-
hari og fjölskyldu.