Fréttatíminn - 11.07.2014, Síða 54
T Ú R I S T I
Einfaldari lEit að ódýrum
hótElum í útlöndum
Leitaðu og berðu saman tilboð á hótElum út um aLLan heim og skoðaðu úrvaLið af
sérvöLdum gististöðum, orLofsíbúðum og gistiheimiLum fyrir næstu utanLandsferð
á túristi.is. Lesendur okkar fá einnig regLuLega sérkjör á gististöðum út í heimi.
Myndlist systkini sýna í sögusetrinu
Tileinka föður sínum sýninguna
Systkinin Guðrún og Kalman le Sage
de Fontenay opna myndlistasýn-
inguna Sýn / Vision í Sögusetrinu
Hvolsvelli, á laugardaginn, 12. júlí
klukkan 17.
Guðrún er grafískur hönnuður frá
Myndlista- og handíðaskóla Íslands,
útskrifaðist þaðan 1989. Á sýning-
unni sýnir Guðrún landslagsmynd-
ir sem unnar eru með olíu á striga.
„Náttúran er tilviljunarkennd og óút-
reiknanleg, í raun skipuleg óreiða.
Ég vil ekki binda mig ákveðnum
formum úr náttúrunni eða ákveðn-
um stöðum heldur snýst þetta um
tilfinningu sem ég reyni að fanga.“
Kalman er grafískur hönnuður frá
Myndlista- og handíðaskóla Íslands,
útskrifaðist þaðan 1988.
Hann sótti námskeið í listum við
University of Washington State Art
dep. 1985-86. Stúdent af myndlista-
sviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti
1983. Á sýningunni sýnir Kalman
myndir unnar með vatnslitum sem
og myndir unnar í tölvu.
„Tölvan er miðill sem listamenn
hafa í auknum mæli notað og er á
ensku talað um „Photo manipula-
tion“ sem væri hægt að útskýra með
því að segja að listamaðurinn noti
tölvuna sem blýant, pensil og liti.
Þessi sýning er tileinkuð föður
okkar, Jean Robert Edouard le Sage
de Fontenay, sem lést 12. júlí 1987.“
Jean var mikill unnandi lista, ís-
lenskrar náttúru, sögu og menn-
ingar. Á yngri árum málaði hann
myndir í abstrakt stíl bæði í olíu og
vatnslit.
Hann var frumkvöðull á sviði
ræktunar, uppgræðslu og fóðurfram-
leiðslu í Rangárþingi eystra. Jean
kom að stofnun Stórólfsvallabúsins
þar sem hann var farsæll bústjóri í
áratugi.
Guðrún og Kalman hafa bæði unn-
ið sem grafískir hönnuðir um árabil.
Hún á auglýsingastofunni Pipar/
TBWA og hann á RÚV.
Sýningin í Sögusetrinu á Hvols-
velli stendur til sunnudagsins 17.
ágúst. -hf
Systkinin Guðrún og Kalman
le Sage de Fontenay.
Strákarnir í Dúndurfréttum
gerðu allt vitlaust í Hörpu í
mars þegar þeir fylltu Eld-
borgarsalinn í þrígang og
fluttu The Wall eftir Pink
Floyd. Nú hyggjast Matti Matt
og félagar gefa tónleikana út á
DVD og geisladiski en til þess
að það geti orðið að veruleika
leita þeir til aðdáenda sinna
um fjármögnun.
H ljómsveitin Dúndurfréttir hélt í marsmánuði þrenna hljómleika í Eldborgarsal
Hörpu þar sem meðlimir hennar
fluttu meistaraverkið The Wall eft-
ir hljómsveitina Pink Floyd í heild
sinni. Með Dúndurfréttum var 35
manna sinfóníuhljómsveit sem
Bernharður Wilkinsson stýrði, 30
manna kór Hljómeyki og 20 krakk-
ar úr Skólakór Kársnesskóla. Þegar
mest lét voru yfir 90 manns á svið-
inu.
„Tónleikarnir áttu upphaflega
bara að vera í þetta eina skipti en
þegar miðasalan fór af stað þá sáum
við strax að við þyrftum að fjölga
tónleikunum,“ segir Matthías
Matthíasson, einn meðlima Dúnd-
urfrétta. Tónleikarnir urðu þrenn-
ir á tveim dögum og voru rúmlega
fjögur þúsund manns sem upplifðu
eina stærstu tónleikauppsetningu
sem sett hefur verið upp í Eldborg.
„Við ákváðum að taka þetta upp,
bæði hljóð og mynd. Fyrst og fremst
bara fyrir okkur sjálfa til þess að eiga
og jafnvel senda til útlanda. Gæðin
voru bara svo mikil og stemningin
skilaði sér svo vel á upptökurnar
að núna langar okkur hreinlega til
þess að gefa þetta út. Bæði á DVD
og geisladiski,“ segir Matti.
Það kostar sitt að gefa svona efni
út og Matti og félagar hafa kosið
að fjármagna útgáfuna í gegnum
Karolinafund. Það virkar þannig að
markmið er sett og því þarf að ná á
ákveðnum tíma. Á þeim tíma legg-
ur fólk verkefninu lið með að leggja
mismunandi upphæðir með kredit-
korti í verkefnið. Ekki er gjaldfært
af kortinu fyrr en ljóst er að mark-
miði fjármögnunarinnar er náð. Ef
það næst hins vegar ekki verður
ekki gjaldfært það sem fólk lagði til
og því er engin áhætta á því að fólk
borgi í verkefni sem ekki verður af.
„Við eigum rúmlega þrjár vikur
eftir af tímanum og viljum biðla til
allra um hjálp. Hvort sem það er fólk
sem var á tónleikunum, þeir sem
hafa áhuga á músík eða fólk sem
hefur fylgt okkur í gegnum tíðina,“
segir Matti en Dúndurfréttir fagna
20 ára afmæli á næsta ári.
„Þeir sem leggja verkefninu lið fá
eintök af tónleikunum, allt frá venju-
legri útgáfu upp í árituð eintök og
nafnið sitt á þakkarlistanum. Þetta
gæti orðið mjög persónuleg eign,“
segir tónlistarmaðurinn.
Þeir sem hafa áhuga á að leggja
verkefninu lið finna það á www.kar-
olinafund.com undir nafninu Dúnd-
urfréttir.
tónlist HljóMsveitin dúndurfréttir safnar fyrir útgáfu á karolinafund
Gefa goðsagnarkennda
The Wall-tónleika út á DVD
Strákarnir í Dúndurfréttum héldu þrenna frábæra tónleika í Eldborgarsal Hörpu þar sem þeir fluttu The Wall í
heild sinni. Nú stefna þeir að því að gefa tónleikana út.
54 menning Helgin 11.–13. júlí 2014