Fréttatíminn - 11.07.2014, Side 57
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Í Bíó Paradís við Hverfisgötu
er starfræktur flóamarkaður
í sumar. Starfsfólk bíósins
skiptir því á milli sín að sjá
um þetta skemmtilega fram-
tak. „Hugmyndin kviknaði
síðasta sumar þegar það var
minna að gera í bíóinu, það
fara færri í bíó á sumrin,“
segir Bergur, starfsmaður
Bíó Paradís. „Við vorum með
markað allt síðasta sumar
og núna eru tveir markaðir
komnir það sem af er sumri.
Þetta er annan hvern laugar-
dag frá klukkan 12 til 18.
Það má hver sem er leigja
borð hjá okkur, það kostar
3000 krónur fyrir annan
daginn en 5000 krónur ef
báðir dagarnir eru teknir.
Fólk hefur verið að selja allt
milli himins og jarðar, allt frá
geisladiskum upp í húsgögn.
Poppvélin er svo í gangi, kaffi
á könnunni og aðrar veit-
ingar, svo þetta er allt saman
mjög skemmtilegt.“
Starfsfólk bíósins segir að
viðtökurnar séu það góðar að
það líti út fyrir að markaður-
inn sé kominn til þess að
vera.
„Já það er búið að bóka
borð fram í tímann hjá okkur,
svo þetta verður bara áfram.
Það er þó hægt að panta borð
og það skiptir engu máli
hvað fólk er að selja, allir eru
velkomnir.“
Næsti flóamarkaður verður
laugardaginn 19. júlí og hægt
er að panta borð í gegnum
tölvupóstfangið biomarkad-
ur@gmail.com. -hf
Samband
texta og tóna
Sópransöngkonan Margrét
Hrafnsdóttir og píanóleikarinn
Hrönn Þráinsdóttir halda tónleika
í safni Sigurjóns Ólafssonar í
Reykjavík þriðjudagskvöldið 15.
júlí. Á efnisskránni verða söng-
lög eftir m.a tónskáldin Gustav
Mahler, Franz Liszt og Richard
Wagner við ljóð Franz Werfel,
Mathilde Wesendonk, Viktor
Hugo og fleiri.
Ýmislegt kemur í ljós þegar
grafið er í sögu tónlistarinnar.
Sé rýnt ofan í tóna og texta má
ímynda sér undir hvaða áhrifum
tónskáldið – og textahöfundar
hafa verið er þeir sömdu sín verk.
Þekkt dæmi eru um að tónskáld
áttu í ástarsamböndum við ljóð-
skáldin og leituðu til þeirra –
kannski einmitt til að fá uppljóm-
un eða hugmynd. Þessi efnisskrá
býður áheyrendum að rýna nánar í
samband texta og tóna.
Margrét Hrafnsdóttir og Hrönn
Þráinsdóttir hafa unnið saman
síðan 1998. Þær námu báðar við
ljóðadeild Tónlistarháskólans í
Stuttgart og hafa þær haldið fjölda
ljóðatónleika hér heima, í Þýska-
landi og á Ítalíu. Efnisskrár þeirra
eru metnaðarfullar og oft eru
kventónskáld höfð í fyrirrúmi og
verk sem heyrast sjaldan.
Aðgangseyrir er 1500 krónur og
hefjast tónleikarnir klukkan 20.
Flóamarkaður í Bíó Paradís
menning 57 Helgin 11.–13. júlí 2014