Fréttatíminn - 12.12.2014, Page 102
Bökunarráð:
n Þegar súkkulaði er brætt yfir
vatnsbaði þarf að gæta þess að
hvorki vatn né gufa komist í súkkul-
aðið því þá getur það farið í kekki. Ef
það gerist getur dugað að setja te-
skeið af bragðlítilli olíu út í og hræra
þar til blandan verður slétt.
n Ef kaka er föst í formi eftir bakstur
er gott að láta formið standa á röku
viskastykki eða dagblaði þar til
kakan losnar.
n Kökukefli er ef til vill ekki til á
öllum heimilum og því er hægt að
grípa til þess ráðs að nota vínflösku
til að fletja út deig. Útkoman verður
sú sama.
n Kælið smákökudeig í ísskáp í að
minnsta kosti fjóra klukkutíma, en
gjarnan í tvo sólarhringa. Með því
að geyma deigið í kæli kemur smjör-
bragðið betur fram. Á aðventunni
getur verið ágætt að eiga deig í
plastfilmu og baka á hverjum degi
splunkunýjar smákökur, en þær eru
jú bestar þannig.
n Notið egg við stofuhita. Flest
vitum við að betra er að nota smjör
við stofuhita og það sama á við um
eggin. Köld egg gera það að verkum
að þau þeytast ekki nægilega vel. Ef
eggin eru tekin beint úr ísskápnum
er gott að láta þau liggja í skál með
heitu vatni í 10-15 mínútur.
Helgin 12.-14. desember 2014 matur & vín 103
Eldhúsráð:
n Skata er ómissandi hluti af jólunum, hjá
sumum að minnsta kosti, en flest getum
við verið sammála um það að skötulyktin
er ekki velkomin á aðfangadag. Til að
losna við fnykinn er tilvalið að sjóða saman
appelsínubörk og negul. Jólailmur tekur þá
við af skötulyktinni.
n Möndlugrautur er til í ýmsum út-
færslum. Til að koma í veg fyrir að sjóði
upp úr grautnum skal leggja trésleif yfir
pottinn, en þá sýður síður upp úr honum.
n Uppvaskið safnast upp sem aldrei fyrr
yfir jólahátíðina. Til að þrífa matarafganga
úr eldföstum mótum úr gleri er tilvalið að
búa til kúlu úr álpappír, dýfa henni ofan
í sápuvatn og nota hana til að skrúbba
óhreinindin burt.
n Ef jólaísinn er of frosinn til að hægt sé
að ná honum úr boxinu eða forminu er
ekki ráðlagt að setja boxið í heitt vatn því
þá bráðnar ísinn of mikið. Mun betra er að
nota kalt vatn, en það gerir sama gagn og
ísinn heldur sér betur.
Húsráð sem nýtast
vel yfir jólahátíðina