Læknablaðið - 15.09.2007, Síða 7
RITSTJÚRNARGREIIU
Evrópsk stefnuskrá um heilbrigði hjartans:
Betra er heilt en vel gróið
Flest deyjum við af völdum hjarta- og æða-
sjúkdóma. Þrátt fyrir gríðarlegar framfarir í með-
ferð þessara sjúkdóma eru þeir ennþá orsök 55%
dauðsfalla hjá konum og um 43% karla. Það er
líklegra að sá sem les þessar línur deyi úr hjarta- og
æðasjúkdómi en af völdum allra tegunda krabba-
meina samanlagt. Þrátt fyrir að gríðarlegar fram-
farir hafi orðið í meðferð hjarta- og æðasjúkdóma,
er stærri hluti þjóðarinnar hjartveikur en var fyrir
nokkrum áratugum. Mótsögnin í þessu stafar af
því að bætt greining og meðferð hjarta- og æða-
sjúkdóma hefur leitt til þess að horfur þeirra sem
fá hjartasjúkdóm eru betri en áður var. Af þessu
leiðir að fleiri lifa með sjúkdóminn fram á efri
ár. Kostnaður samfélagsins vegna hjarta- og æða-
sjúkdóma er gríðarlegur. Heildarkostnaður vegna
þessara sjúkdóma innan Evrópusambandsins er
169 milljarðar evra á ári.
Evrópska stefnuskráin um heilbrigði hjartans
(European Heart Health Charter) er samstarfs-
verkefni Evrópusamtaka hjartaverndarfélaga
(European Heart Network) og Evrópusamtaka
hjartalækna (European Society of Cardiology)
með stuðningi Evrópusambandsins (ESB) og Evr-
ópusvæðis Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO). Stefnuskráin, sem var formlega sett fram
í Brussel 12. júní síðastliðinn, hefur að markmiði
að draga úr byrði samfélagsins vegna hjarta- og
æðasjúkdóma með því að samræma og sameina
aðgerðir fagfélaga, heilbrigðisstétta, heilbrigð-
isyfirvalda og almennings í forvarnarmálum. Fyrir
Islands hönd hafa Hjartavernd, Hjartasjúkdóma-
félag íslenskra lækna og heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið sameinast í því að framfylgja áætl-
uninni hér á landi.
I stefnuskránni er lögð áhersla á að í aðild-
arlöndunum verði fundnar leiðir til að allur al-
menningur nái
• reykja ekki
• tileinka sér heilbrigðar matarvenjur
• fá nægjanlega líkamsþjálfun (minnst
30 mínútur á dag)
• halda kjörþyngd (lfkamsþyngdarstuðull
(BMI) undir25 kg/m2)
• blóðþrýstingur sé undir 140/90 mm Hg
• heildarkólesteról sé undir 5,0 mmól/L
• sykurefnaskipti séu eðlileg
• forðast mikið álag
Það er skilningur þeirra aðila sem standa að
stefnuskránni að þessum markmiðum verði aðeins
náð með samstarfi heilbrigðisyfirvalda, heilbrigð-
isstarfsfólks, hjartaverndarsamtaka og almenn-
ings. Aðkoma þessara aðila er með mismunandi
hætti. Til dæmis er það hlutverk stjórnvalda að
setja lög um tóbaksvarnir og reglur um nið-
urgreiðslur kólesteról- og blóðþrýstingslækkandi
lyfja. Heilbrigðisstarfsfólk ber ábyrgð á því að
veita ráðgjöf á faglegum grunni og læknar að
greina og meðhöndla einstaklinga í áhættuhópum
þannig að meðferðarmarkmið náist. Að lokum
er það hlutverk einstaklingsins að bera ábyrgð á
sjálfum sér og eigin heilsu með því að temja sér
heilbrigðan lífsstíl. Sérstaklega er lögð áhersla á að
vinna með bættan lífsstíl barna og unglinga.
Það er fagnaðarefni að Hjartavernd, Hjarta-
sjúkdómafélag íslenskra lækna og heilbrigðisyf-
irvöld hafa nú staðfest vilja sinn til að sameinast
um að framfylgja evrópsku stefnuskránni um heii-
brigði hjartans hér á landi. Með því hefur ísland
fyrst Norðurlandaþjóða stigið fram fyrir skjöldu
með nýja nálgun og áherslur í forvörnum hjarta- og
Karl
Andersen
European Heart Health
Charter implementcd in
lceland
Læknablaðið 2007/93 591
L