Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.2007, Side 9

Læknablaðið - 15.09.2007, Side 9
RITSTJÓRNARGREIN Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Hjartavernd og Hjartasjúkdómafélag íslenskra lœkna hafa ákveðið að fram- fylgja evrópskri stefnuskrá um heilbrigði hjartans. Aðildin var handsöluð á dögunum og á myndinni eru frá vinstri: Inga Dóra Sigfúsdótttir hjá ráðuneytinu, Karl Andersen, Vilmundur Guðnason, forstöðumaður Hjartaverndar, Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra og John Marlin prófessor. æðasjúkdóma sem byggjast á sterkum grunni bæði hugmyndafræðilega og pólitiskt. Hrundið verður af stað aðgerðum til að ná fram framangreindum markmiðum og því fylgt reglulega eftir með ár- angursmælingum hvernig til hefur tekist. Prófessor John Martin, sem er forstöðumaður rannsókn- arstofnunar um hjarta- og æðasjúkdóma við University College í London og einn af höfundum evrópsku stefnuskrárinnar, sagði af þessu tilefni að Islendingar ættu að setja sér það markmið að vera í forystu um að uppræta með öllu hjarta- og æða- sjúkdóma á komandi árum. Fram til þessa hefur áherslan verið á því að meðhöndla sjúkdóma og bæta horfur þeirra sem veikjast. Með þessu móti hefur þeim fjölgað sem eru hjartasjúklingar og þeir lifa lengur við sjúkdóm sinn. Með stefnuskránni er áhersla lögð á að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma og ná þannig því yfirlýsta markmiði sem fram kemur í eftirfarandi yfirlýsingu stefnuskrárinnar: „Hvert mannsbam sem fœtt er á nýju árþúsundi hefur rétt til þess að lifa til að minnsta kosti 65 ára aldurs án þess að fá hjarta- og œðasjúkdóm sem hœgt er að koma í vegfyrir”. Liftð heil. Heimild w w w. heartcharter. eu Læknabi.aðið 2007/93 593

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.