Læknablaðið - 15.09.2007, Page 9
RITSTJÓRNARGREIN
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Hjartavernd og Hjartasjúkdómafélag íslenskra lœkna hafa ákveðið að fram-
fylgja evrópskri stefnuskrá um heilbrigði hjartans. Aðildin var handsöluð á dögunum og á myndinni eru frá vinstri: Inga
Dóra Sigfúsdótttir hjá ráðuneytinu, Karl Andersen, Vilmundur Guðnason, forstöðumaður Hjartaverndar, Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra og John Marlin prófessor.
æðasjúkdóma sem byggjast á sterkum grunni bæði
hugmyndafræðilega og pólitiskt. Hrundið verður
af stað aðgerðum til að ná fram framangreindum
markmiðum og því fylgt reglulega eftir með ár-
angursmælingum hvernig til hefur tekist. Prófessor
John Martin, sem er forstöðumaður rannsókn-
arstofnunar um hjarta- og æðasjúkdóma við
University College í London og einn af höfundum
evrópsku stefnuskrárinnar, sagði af þessu tilefni að
Islendingar ættu að setja sér það markmið að vera
í forystu um að uppræta með öllu hjarta- og æða-
sjúkdóma á komandi árum.
Fram til þessa hefur áherslan verið á því að
meðhöndla sjúkdóma og bæta horfur þeirra sem
veikjast. Með þessu móti hefur þeim fjölgað
sem eru hjartasjúklingar og þeir lifa lengur við
sjúkdóm sinn. Með stefnuskránni er áhersla lögð
á að fyrirbyggja hjarta- og æðasjúkdóma og ná
þannig því yfirlýsta markmiði sem fram kemur í
eftirfarandi yfirlýsingu stefnuskrárinnar: „Hvert
mannsbam sem fœtt er á nýju árþúsundi hefur rétt
til þess að lifa til að minnsta kosti 65 ára aldurs án
þess að fá hjarta- og œðasjúkdóm sem hœgt er að
koma í vegfyrir”.
Liftð heil.
Heimild
w w w. heartcharter. eu
Læknabi.aðið 2007/93 593